Fréttablaðið - 02.11.2009, Side 8

Fréttablaðið - 02.11.2009, Side 8
8 2. nóvember 2009 MÁNUDAGUR BANDARÍKIN Hillary Clinton, utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, hefur hvatt Ísraela og Palestínu- menn til þess að hefja frið- arviðræður á nýjan leik eins fljótt og hægt er. Clinton fund- aði með Benja- min Netanyahu, forsætisráð- herra Ísraels, og Mahmoud Abbas, for- seta Palestínu, hvorn í sínu lagi á laugardag. Hún ræddi við blaða- menn eftir fundinn með Netanya- hu. Hann tók undir orð Clinton og kvaðst vilja hefja viðræður sem fyrst. Bandaríkjastjórn hefur sett aukna áherslu á að stuðla að friðarviðræðum og er ferð utan- ríkisráðherrans til Mið-Austur- landa liður í því. - þeb 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 5. nóvember Ísafjörður Fjármál heimilisins 12. nóvember Akranes Fjármál heimilisins 19. nóvember Hamraborg Fjármál heimilisins N B I h f. ( L a n d s b a n k in n ), k t . 4 7 1 0 0 8 - 2 0 8 0 . Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld Landsbankinn mun í vetur bjóða upp á röð fjármálanámskeiða fyrir almenning undir yfirskriftinni Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld. Markmið námskeiðanna er að auðvelda fólki að öðlast betri yfirsýn yfir fjármálin svo því sé unnt að taka upplýstar ákvarðanir um fjármál heimilisins og móta fjárhagslega framtíð fjölskyldunnar. FJÁRMÁLARÁÐGJÖF | landsbankinn.is | 410 4000 Skráning fer fram á landsbankinn.is og í síma 410 4000. Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna á landsbankinn.is. O kt ó b e r N ó ve m b e r 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 Sun Mán Þri Mið Fim Fös La u 2009 E N N E M M / S ÍA / N M 3 9 4 2 0 1. Hversu margir hafa orðið uppvísir að því að svíkja út atvinnuleysisbætur undanfarið? 2. Hversu háar fjárhæðir telur Evrópusambandið að þurfi í að- gerðir vegna loftslagsbreytinga? 3. Í hvaða lið var knattspyrnu- maðurinn Atli Jóhannsson að ganga? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 30 VIÐSKIPTI Evrópski fjárfestingar- bankinn hefur samþykkt að lána Orkuveitu Reykjavíkur 30 millj- arða króna. Samkvæmt heimild- um Fréttablaðsins barst samning- ur þess efnis til fyrirtækisins á föstudag, þar sem skilyrði bankans fyrir lánveitingu eru tíunduð. Það er fyrirtækisins að ákveða hvort það samþykkir þau skilyrði og þar með lánið. Verði það gert verður skrifað undir í vikunni, samkvæmt heimildum blaðsins. Lánveitingin hefur tafist um ár vegna efnahagshrunsins. Það á að nota til að ljúka framkvæmd- um við Hellisheiðarvirkjun og 15 milljarðar fara í Hverahlíð- arvirkjun, verði hún byggð. Guð- laugur G. Sverrisson stjórnarfor- maður segir að þegar lánið gangi í gegn sé búist við því að Þróunar- banki Evrópu láni það sem vant- ar upp á til að ljúka síðarnefndu framkvæmdinni. Lánveiting Evr- ópska seðlabankans sé heilbrigð- isvottorð sem liðki fyrir annarri lánveitingu. Á stjórnarfundi á föstudag voru nýjar áætlanir vegna Hverahlíð- arvirkjunar lagðar fram, en þar kemur fram að gert er ráð fyrir að framkvæmdin verði dýrari en ætlað var. Guðlaugur segir viðræð- ur í gangi við Norðurál um kaup á orkunni þaðan. Orka úr Hellis- heiði fari til Norðuráls óháð álveri í Helguvík. „Nú erum við í viðræðum við Norðurál um Hverahlíðarvirkjun. Túrbínur hafa hækkað í verði og innlendur kostnaður lækkað. Við þurfum að hækka allar tölur að okkar mati. Ef Norðurál tekur þátt í kostnaði vegna seinkunar hefur það áhrif á samningana.“ Eigið fé Orkuveitunnar hefur minnkað mjög undanfarið; úr 109 milljörðum króna árið 2007 í tæpa 40 og er það nú á milli 15 og 16 prósent. Guðlaugur segir að geng- isþróun hafi gríðarleg áhrif á stöð- una. Batnaði gengi krónunnar um 10 prósent myndi eigið fé fyrirtæk- isins aukast um 20 milljarða. Hann hefur ekki áhyggjur af því að fyrirtækið sé að verða of skuldsett. Það hafi staðið í mikl- um framkvæmdum undanfarið. „Við höfum haldið uppi atvinnu- stigi og framkvæmt fyrir 16 millj- arða á árinu 2009, en nefna má að ríkið hefur framkvæmt fyrir 17 milljarða á sama tíma. Þetta höfum við fjármagnað að hluta til með skammtímalánum sem þessi lántaka hreinsar upp.“ Guðlaug- ur segir Orkuveituna búa við gott vaxtastig; meðaltalsvextir sem fyrirtækið greiðir séu 1,25 pró- sent. Það muni þó hækka eilítið við nýju lántökuna. Spurður hvort Icesave og endur- skoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafi áhrif á tímasetningu samn- inganna segir Guðlaugur svo ekki vera. kolbeinn@frettabladid.is Fjármögnun virkjana Orkuveitunnar á lokastigi Evrópski seðlabankinn hefur samþykkt lán til Orkuveitu Reykjavíkur. Í kjölfarið fylgir lán frá Þróunar- banka Evrópu. Þar með er búið að tryggja fjármögnun Hellisheiðar- og Hverahlíðarvirkjana að fullu. STRÓKAR FRÁ HELLISHEIÐARVIRKJUN Fjármögnun er nú á lokastigi fyrir Hellisheið- arvirkjun og Hverahlíðarvirkjun. Líklega verður skrifað undir samninga um lán frá Evrópska seðlabankanum í vikunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI HILLARY CLINTON Við höfum haldið uppi atvinnustigi og framkvæmt fyr- ir 16 milljarða á árinu. GUÐLAUGUR G. SVERRISSON STJÓRNARFORMAÐUR ORKUVEITUNNAR SÍBERÍA Ellefu manna áhöfn fórst í Síberíu í gær þegar rússnesk herflugvél brotlenti í flugtaki. Þetta er annað slysið á skömm- um tíma þar sem flugvél af gerðinni Il-76 á í hlut, en vélarn- ar hafa verið burðarás í flota rússneska flughersins frá því á áttunda áratug síðustu aldar. Slysin hafa vakið spurningar í sambandi við ástand rússneska flotans. Flugvélin sprakk þegar hún brotlenti við gamla námu. Aðstæður á svæðinu voru góðar, það var heiðskírt, smá gola og frost. Slysið átti sér stað um tvo kílómetra frá flugbrautinni, en enginn slasaðist á landi. - afb Herflugvél brotlenti í Síberíu: Ellefu Rússar létust í flugslysi VERSLUN „Þetta er örugglega létt geggjun. En við erum rosalega bjartsýn og vongóð,“ segir Telma Birgisdóttir, einn eigenda Tekk ehf., sem hefur tekið við rekstri Habitat. Habitat opnaði fyrst á Íslandi árið 1983, en verslunarkeðjan er frá Bretlandi. Versluninni var lokað í febrúar í fyrra, en Telma og félagar opnuðu á ný á laugardag í Holtagörðum. „Verslunin fór rosa- lega vel af stað. Það er greinilega mikið til af Habitat-unnendum,“ segir Telma. „Það var brjálað að gera alla helgina.“ Óhagstætt gengi krónunnar hrakti hamborgaratrúðinn Ronald McDonald og félaga úr landi í síð- ustu viku, en Telma segir að rekstur með innfluttum vörum sé möguleg- ur. „Þetta er hægt með bjartsýni og smá hjálp,“ segir hún, en stjórnend- ur Habitat hjálpuðu til við að koma keðjunni aftur til Íslands. Verslun- in var á sínum tíma sú fyrsta sem var opnuð utan Bretlands. Annríkasti tími ársins í verslun er að fara í hönd og Telma játar að verslunin sé opnuð á besta tíma. „Fólk var mikið að kaupa smávöru og jólagjafir um helgina,“ segir hún. „Það kom okkur líka á óvart að það var mikil eftirspurn eftir húsgögnunum.“ - afb McDonald´s flýr land en húsgagnaverslunin Habitat snýr aftur: „Við erum rosalega bjartsýn og vongóð“ NÓG AÐ GERA Kaupglaðir Íslendingar lögðu leið sína í nýja verslun Habitat um helgina. FR ÉTTA B LA Ð IÐ /PJETU R Hillary Clinton: Friðarviðræður hefjist sem fyrst VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.