Fréttablaðið - 02.11.2009, Page 30
2. NÓVEMBER 2009 MÁNUDAGUR4 ● fréttablaðið ● híbýli og viðhald
„þetta er mikil bylting, sérstak-
lega fyrir þá sem stunda fimleika
sem eru stór íþrótt fyrir norðan,“
segir Böðvar Kristjánsson, verk-
efnastjóri hjá SS Byggi, sem hefur
fengið það verkefni að ljúka við
byggingu nýrrar íþróttamiðstöðv-
ar við Giljaskóla á Akureyri.
SS Byggir og stjórn fasteigna
Akureyrarbæjar undirrituðu
samning og eru byggingafram-
kvæmdir þegar hafnar. Fram
undan er vinna við uppsetningu
á þaki, glugga og hurðir ásamt
ýmsum frágangi innan sem utan
húss.
„Íþróttamiðstöðin skiptist niður
í tvo sali, venjulegan leikfimis-
al sem er 607 fermetrar að stærð
og svo 1.090 fermetra fimleika-
sal. Með búningsaðstöðu og öllu
er gólfflöturinn samtals 2.723 fer-
metrar,“ segir Böðvar um nýju
íþróttamiðstöðina og bætir við að
stefnt sé að því að ljúka verkinu
sem fyrst, en áætluð verklok eru
15. júlí 2010.
Verkefnastað SS Byggis er góð
þessa dagana. Vinnubúðir verða
væntanlega settar upp í vikunni
við Undirhlíð. Það er líka góður
gangur á framkvæmdum fyrir-
tækisins við VMA, áfanga 7b, og
nú bætist Giljaskólinn við. - rve
Frábær aðstaða
fyrir fimleikafólk
Með nýrri íþróttamiðstöð við Giljaskóla
stórbatnar aðstaða fimleikafólks.
Leigufélag Vestfjarða hefur hug á
að koma að byggingu hjúkrunar-
heimilis á Ísafirði. Þar með gæti
þeirri framkvæmd verið hrint úr
vör á næstu mánuðum. Að því er
fram kemur í bréfi leigufélags-
ins til bæjaryfirvalda liggur fyrir
lánsloforð frá Íbúðalánasjóði fyrir
hluta af byggingarkostnaði. Fyrri
ríkisstjórn gerði ráð fyrir bygg-
ingu þrjátíu hjúkrunarrýma á
Vestfjörðum árið 2010.
Leigufélagið er í eigu Vest-
firskra verktaka á Ísafirði og bygg-
ing hjúkrunarheimilisins gæti ýtt
vá atvinnuleysis að einhverju leyti
frá þeirra dyrum. Bæjarráð mun
funda um málið með félagsmála-
ráðherra á morgun og með full-
trúum Heilbrigðisstofnunar Vest-
fjarða á næstu dögum.
Heimild: www.bb.is
Vilja byggja
Fundað verður um nýtt hjúkrunarheim-
ili á næstu dögum.
Í Nuuk. Ístaksmenn ætla að ljúka uppsteypu í
næsta mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nýr skóli er að rísa í Nuuk á Grænlandi og er
bygging hans eitt af viðfangsefnum Ístaks um
þessar mundir. Páll Eggertsson verkfræðing-
ur stjórnar verkinu nú og segir það ganga alveg
þokkalega. „Við byrjuðum að sprengja fyrir
grunninum í apríl og steypa í júní og reiknum
með að ljúka uppsteypu á húsinu í næsta mán-
uði,“ lýsir hann.
Um þrjátíu manns vinna við bygginguna en
Páll segir alltaf nokkra í fríi enda skiptist þeir
á. En hvernig er veðrið í Nuuk? „Það er fínt, bara
svolítið kalt. Það er komið frost og við þurfum að
beita upphitun þegar við steypum.“
Páll býst við að vinnuflokkurinn verði í Græn-
landi í allan vetur og spurður hvort hann kunni
vel við sig er svarið hlutlaust. „Þetta er eins og
hver önnur vinna.“ Vinnubúðir og mötuneyti er
á staðnum og Ístak leigir einnig nokkrar íbúðir
að sögn Páls. Hann segir yfirleitt engin vanda-
mál með aðdrætti. „Það er flest fyrir hendi hér en
efnisinnkaup fyrir framkvæmdina fara að mestu
gegnum Danmörku eða Ísland.“
Skólinn verður samtals 6.100 fermetrar að
stærð, á tveimur hæðum, og áætlað er að bygg-
ingu hans ljúki í maí 2011. Annað verkefni bætt-
ist svo við sem á að verða tilbúið á sama tíma.
„Við fengum 650 fermetra leikskóla hér við hlið-
ina sem aukaverkefni og erum aðeins byrjaðir á
því líka,“ lýsir Páll og var ekki tafinn með lengra
skrafi á föstudagseftirmiðdegi. - gun
Byggja yfir börn í Nuuk á Grænlandi