Ljósberinn - 01.10.1941, Blaðsíða 2

Ljósberinn - 01.10.1941, Blaðsíða 2
140 LJÓSBERINN / Hallormsstadarskógur Ég hefi séð Hallormsstaðai’skóg á öllum árstíðum, og allt af hefir hann sterk og heillandi áhrif á hug minn, sem ég get tæplega gert grein fyrir. Þegar maður kemur í þennan skóg, þá er eins og mað- ur sé kocminn inn í eitthvert æfintýraland, þar sem maður býst við að sjá töfrahallir og tindilfættar skógardísir þá og þegar, það er eins ’og verið sé að hvíslast á allt í kringum mann. 1 Hallormsstaoar-skógi er enginn vandi að sjá í huganum lifandi myndir af uppáhaldsæfintýrum bernsku- áranna, tij dæmis æfintýrinu um Hans og Grétu, eða Rauðhettu litlu. Auðvitað er skógurinn fegurstur á sumr- in þegar hann er í skrúði sínu, en hann er líka töfrandi á vetrum. Ég hefi verið þar »:heimamaður« tvívegis að vetrarlagi og farið um .skóginn þveran og endilang- an, og á hverjum degi fannst mér ég sjá þar eitthvað nýtt, sem au'ga mitt gladdi, og allt af gagntók mig sama tilfinningin, þegar ég var á gangi í skóginum, tilfinn- ing, sem ég hefi hvergi fundið til annars- staðar, — nema þá í Lindarrjóðri, þó að það væri með nokkrum öðrum hætti, — ósk um, að allir fslendingar gætu notið þess unaðar, sem það veitir, að vera í svq dásamlegu umhverfi. Það er eins og að hlusta á góða tónlist: Það hefir á mann göfgandi og hressandi áhrif án þess að maður viti eiginlega hvernig það gerist, og það er eins og maður nálgist Guð miklu meir en endranær. Og sannarlega hlýþur maður að hugsa, ósjálfrátt: þetta hlýtur að vera helgur staður, sem Drottinn hef- ir vandað svona mikið til og látið sér svo annt um að varðveita. Hallormsstaðarskógur er við Lagarfljót ofarlega og er fljótið þar breiðast, en lít- ið undirlendi þeim megin fljótsins, sem skógurinn er (austanvert) og er hann í hlíðum og á h.j.öllum upp eftir hálsinum á milli Fljótsdalshéraðs og Skriðdals. Niður við fljóíið eru klettóttir ásar og víða kletta- drangar fram í fljótið. Þegar gengið er fram á suma þessara dranga má sjá svo að segja yfir allan skóginn, svo að hægt er að gera sér grein fyrir hve geysilega víðáttumikill hann er. Mér er sérstaklega í minni hve dásamlegt er útsýni af ein- um þessara dranga. Hann er í þeim hluta skógarins, sem nefndur er Gatnaskógur, nokkru fyrir utan Hallormsstað. Þaðan sér maður vítt yfir í allar áttir: skóginn, þeg- ar baki er snúið við fljótinu, Snæfell í fjarska fyrir botni Fljótsdals, þegar horft er inn eftir fljótinu, — maður rennir aug- unum síðan út eftir hinni fögru og blóm- legu Fljótsdalsbyggð, noirðan fljótsins, -- utar eru, Fellin, og að baki þeirra, í bláma, glampar á Smjörfjöllin, og loks snýr mað- ur sér þannig, að horft er út eftir fljót- inu. Þá blasir við Héraðið og hið mikla og lygna fljót, eins og breiður og fagur fjörð- ur, svo langt sem augað eygir. Oft hefi ég staðið á þessum kletti og allt af haft yndi af því að virða fyrir mér þetta dá- samlega útsýni. Það var ekki ætlunin, að skrifa langt mál um Hallormsstaðarskóg að þessu sinni, — áttu aðeins að vera fáeinar línur meo forsíðumyndinni. En einhverntíma síðar verður tækifæri til að segja eitthvað meira um þennan fagra stað. Þessu vil ég. þó bæta við: Sá, sem ekki hefir séð Hallorms- staðarskóg, veit ekki, hversu dásamlega fagurt er á. Islandi. Þangað ættu allir að reyna að komast, einhverntíma á æfinni. Það er áreiðanlega stórviðburður í æfi hvers manns, að sjá Hallormsstaðarskóg. Th. A. Englendino'ur nokkur, 83 ára gamall, hefir haft þann sið undanfarin 24 ár, að skrifa, upp af dán- airlistum enska blaðsins Times nöfn þeirra, sem náð hafa að verða 90 ára eða enn eldri. Fram að þessu hefir bann skráð 9781 nafn og á næsta ári, þegar hann hefir »safnað« í 25 ár, er ætlun hans að senda Times þau til birtingar. Hugmynd ha,ns hefir vakið athygli víða, því hvaðanæva ór heim- inum berast honum bréf, þa.r sem honum eru send slík nöfn úr öðrum blöðum, en hann fæst ekki við annað en það, sem hann les í blaðinu sínu.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.