Ljósberinn - 01.06.1952, Qupperneq 21
LJDSBERINN
69
Kanntu vel Biblíusögur?
1. Hvernig er fjórða boðorðið?
2. Hvað þýðir orðið Biblía?
3. Hver ætli hafi skrifað Postulasöguna?
4. Hverjir af postulum Jesú voru fyrstir settir
í fangelsi?
5. Hver var fyrsta borgin í Evrópu, sem Páll
postuli starfaði i?
Þekkirðu landið þitt?
1. Hvað heitir fjörðurinn, sem Reykjavik
stendur við?
2. Hvaða 6 stórár er farið yfir á landleiðinni frá
Reykjavík til Akureyrar?
3. Hverjir eru 3 stærstu skógar á íslandi?
4. Hverjir eru 3 stærstu jöklar á íslandi?
5. Hver er lengsti fjörður á íslandi?
Raðaðu 10 peningum í þríhyrning á borðið,
eins og myndin sýnir. Geturðu nú fært til 3 af
peningunum þannig, að þríhyrningurinn snú-
ist við, mjórri endinn vísi niður?
Rökfrœði:
Geturðu sannað, að einn köttur hafi þrjú
skott?
Hver var það?
Gísli kemur inn til Sveins og sér þar mynd
af ungum manni á veggnum. Hann spyr, hver
þetta sé.
Sveinn svarar: Faðir þessa manns var einka-
sonur föður míns.
Hver var maðurinn?
Á rjúpnaveiðum:
5 veiðimenn skjóta 5 rjúpur á 5 mínútum.
Hve marga veiðimenn þarf þá til að skjóta
100 rjúpur á 100 mínútum?
Stafaþraut:
IxxxMxxDxR
xIxxLxS
GxxMxxDxR
xIxHxxLxUR
xRxGxxMxR
RxxHxxÐxR
Settu rétta stafi í stað x-anna, og þá koma
fram 6 mannanöfn. Sé rétt raðað, mynda upp-
hafsstafirnir sjöunda nafnið.
XJppfinningamenn:
Við höfum komist yfir lista yfir nokkrar
frægar uppfinningar og þá menn, sem fundu
þær upp. En því miður hafa nöfnin ruglazt svo,
að ómögulegt er að sjá, hver fann hvað. Getur
þú nú ekki hjálpað okkur og fundið út hvaða
uppfinningamaður á hverja þeirra uppfinn-
inga, sem hér eru taldar:
1. Gufuvélin
2. Prentlistin
3. Púðrið
4. Sjónaukinn
5. Kvikmyndavélin
6. Flugvélin
7. Loftskeytin
8. Penicillin
9. Sjónvarpið
10. Aureomycin
Eldspýtnaþraut:
Raðaðu 60 eldspýtum þannig, að þær myndi
25 litla ferhyrninga eins og myndin sýnir. Taktu
nú burtu 28 eldspýtur þannig, að þær 32, sem
eftir eru, myndi aðeins 5 litla ferhyrninga og
einn stóran (níu sinnum stærri en hina).
Úraþraut:
Skiptu úrskífunni í 6 reiti þannig, að tvær
tölur komi í hvern, er samanlagðar séu allar
jafnar.
Reikningsþraut:
123456789 = 100
+ + "T- -T"
Settu reikningsmerkin þar, sem við á svo
að útkoman verði rétt. Geturðu lokið því á 5
mínútum?
Gáta:
Ég er á nema skaft og skott,
skrautlega búin stundum;
engri skepnu gjöri gott
og geng í lið með hundum.
Svör á bls. 70.
Edison
Nipkow
Galilei
Wright
Flemming
Gutenberg
Dugger
Schwarz
Marconi
Watt