Tímarit iðnaðarmanna - 01.09.1964, Blaðsíða 34
SIKA ÞÉTTIEFNI
Gerir steinsteypu og steinhúð íullkomlega vatnsþétta.
SIKA hefur verið notað hér í hundruð húsa, þ. á. m. Hótel Borg,
Landspítalarin, Landsímahúsið, Kleppsspítalann, Þjóðleikhúsið,
Austurstræti. 14, Hafnarstræti 5 og fleiri stórhýsi, ásamt hundruð-
um íbúðarhúsa.
SIKA er framleitt af ýmsum gerðum til mismunandi nota. Til
dæmis:
STEYPU-SIKA til að gera veggja- og loftsteypu vatnsþétta.
SIKA 1 til að gera steypuhúð vatnsþétta.
SIKA 2 harðnar strax, er notað saman við sement til þéttingar á
miklum leka, jafnvel undir talsverðum vatnsþrýstingi.
SIKA 3 til að flýta fyrir hörðnun á steypuhúð, auka slitþol, til
dæmis á gólfum og til varnar gegn frosti.
SIKA 4 eykur bindihæfni steypuhúðar, við raka og olíumettaða
bletti, til verndunar steypustyrktarjárni gegn ryði og steypuhúð
gegn olíu.
IGOL ASFALT MÁLNING til varnar gegn raka á járn- og stein-
flötum, til dæmis neðanjarðar, innan í geyma, leiðslur og fleira.
IGAS er notað í samskeyti eða sprungur á flötum, sem hætt er
við hreyfingu.
PLASTOCRETE loftblendiefni hefur þá kosti fram yfir önnur loft-
blendiefni, að loftblendnin takmarkast sjálfkrafa við ákveðið há-
mark loftblendis. Þetta er mjög veigamikið atriði, þar sem mikið
loftblendi skaðar steypuna.
PLASTIMENT „Vítamín steinsteypunnar" stórlega bætir steyp-
una. Fyrirbyggir göt og holur í steypunni og gölluð samskeyti.
Steypan verður mjög þjál og vatnsþétt. Eykur bindihæfni stein-
steypu við járn og hindrar ryðmyndun.
Forðist þá ótrúlegu eríiðleika og óþægindi, sem eru samíara raka og leka í húsum. Það
margborgar sig að vanda til verksins í upphafi eða bæta úr þegar gerðum mistökum
strax. — SIKA er fyrirliggjandi hjá einkaumboðsmönnum framleiðenda.
J. Þorláksson & Norðmann hf.
SKÚLAGÖTU 30 — BANKASTRÆTI 11
Ii8
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA