Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Side 8

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Side 8
A FORSETILANDSAMBANDSIDNADARMANNA HEIDRADUR Sigurður Kristinsson NORSKE HÁNDVERK.S- OG INDUSTRIBEDRIFTERS FORBUND HARTltDrtT ZtcíjM.idwi- 3ju.-iluiivi.cn l'ORBlÍNDns HE DERSTEGN Heiðursskjalið Lyder Soltvedt A aðalfundi systursamtaka Landssambands iðnað- armanna í Noregi, sem haldinn var í Lillehammer dágana 30. maí — 1. júní 1976, var Sigurður Krist- insson, forseti Landssambandsins, sæmdur heiðurs- merki Norsku iðnaðarsamtakanna úr gulli, sem er æðsta heiðursmerki samtakanna. Við sama tækifæri var Lyder Soltvedt, pípulagningameistari, fráfarandi formaður Norsku samtakanna, sæmdur sams konar heiðursmerki. Einnig var þeim afhent sérstakt heið- ursskjal, sem fylgir jafnan gullmerkinu. Fjölmargir aðrir iðnaðarmenn voru einnig, við jretta tækifæri, sæmdir heiðursmerkjum sambandsins úr silfri fyrir vel unnin störf í þágu þess. Heiðrunin fór fram í hófi, sem haldið var að lokn- um aðalfundinum. Sigurður Kristinsson var að þessu sinni annar tveggja og eini útlendingurinn, sem hlaut þann mikla heiður að vera sæmdur æðsta heiðursmerki Norsku iðnaðarsamtækanna. Var hon- um við þetta tækifæri sérstaklega þakkaður mikill áhugi á norrænni samvinnu, sem liann hefur á Ijós- an hátt sýnt í verki síðan hann varð forseti Lands- sambandsins. í þessu sambandi bað formaður Norsku iðnaðarsamtakanna menn minnast þess, að íslendingar væru gjarnan duglegri að hressa upp á norræna samvinnu með heimsóknum til frændþjóða sinna en þær með heimsóknum til íslands. Sigurður Kristinsson er annar íslendingurinn sem heiðraður hefur verið á þennan hátt af Norsku iðn- aðarsamtökunum. Árið 1971 var þáverandi forseti Landssambands iðnaðarmanna, Vigfús Sigurðsson, sæmdur gullmerki samtakanna. Með Jressari heiðursútnefningu hafa norðmenn enn einu sinni sýnt og sannað að [reim er annt um að íslendingar finni að [reir séu liluti af hinni „nor- rænu fjölskyldu“. Þeir liafa auk þess að sýna Sig- urði persónulega mikinn heiður, ,óneitanlega hvatt til áframhaldandi samvinnu minni samtakanna, sem forsvarsmenn Landssambandsins liafa jafnan kapp- kostað að liafa eins mikla og fjárhagur hefur frekast leyft á liverjum tíma. > Tímarit iðnaðarmanna óskar Sigurði Kristinssyni til liamingju með þennan mikla heiður og lætur í ljós þá von, að þetta verði til þess að efla sam- vinnu Landssambandsins og Norsku iðnaðarsam- takanna, jafnvel frarn yfir það sem nú er. Þ. J. 8

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.