Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Síða 10
meistara. Jafnframt tók hann einkanámskeið í járn-
bentri steinsteypu.
FYRSTA FYRIRTÆKIÐ
Heim kom liann 1919 og stofnaði þá fljótlega sitt
fyrsta fyrirtæki, sem var steinsteypuverkstæði á Akur-
eyri. Hóf liann framleiðslu á svokölluðum r-steinum,
sem hann hannaði og byggði þar á kenningum Jóns
Þorlákssonar og Guðmundar Hannessonar um tvö-
falda steinveggi, með tróði á milli.
„Þessi steinn minn hefur orðið býsna farsæll. Var
hann einkum notaður fyrir norðan og er notkun
lians nýlega hætt. Húsin reyndust traust og kom það
vel fram í jarðskjálflanum mikla á Dalvík, — en
þetta var óttalegt basl“, segir Sveinbjörn urn þetta
fyrsta fyrirtæki sitt.
„Sökurn kunnáttu minnar í steinsteypufræðum,
varð ég að taka að mér ýmis tæknileg verkefni. Með-
al þeirra var bygging sundþróar á Akureyri 1921.
Lagði ég mig allan fram um að vanda það verk,
því það lxefði orðið geysilegur skandali ef þróin
hefði brostið. Vatnsflaumurinn hefði að sjálfsögðu
tekið með sér mannvirki neðar í brekkunni. Ég lét
starfsmenn mína meðal annars bursta og hreinsa
klöppina, sem þróin var byggð á. Héldu þeir að
ég væri orðinn vitlaus, en unnu verkið samt.“
„Er þetta mannvirki ekki betur gert, en margt
af því, sem unnið er i dag?“
„Jú, það lield ég. Mörgurn árum síðar, þegar
byggja átti hús ofan á þróna, reyndist hún hin
traustasta undirstaða og sagði sá, sem kannaði hana,
að sá sem þetta gerði, hafi vitað hvað hann var að
gera.
Ég vildi fá 35 krónur fyrir teikninguna, en bæjar-
stjórn vísaði öllu slíku á bug. Áleit það líklega nægi-
lega umbun fyrir mig, að fá að standa fyrir verkinu.
ÓTAL SYNDIR
Steinsteypufræðin var mín sérgrein, þar til ég
fluttist suður. Merkilegasta verkefnið, sem ég vann
að á því sviði í Noregi var þátttaka í byggingu stein-
steypuskips. í framhaldi af þeirri vinnu, hvarflaði
að mér, að nota mætti svipaða tækni til að byggja
steinker, til notkunar sem bryggjuundirstöðu. Var
mér falið slíkt verkefni á Ólafsfirði árið 1922. Má
eiginlega heita merkilegt, að svo ungum manni
og óreyndum skyldi treyst til að gera þetta. Kerin
standa óhögguð á sínum stað, en eftir fyrstu vetrar-
brimin, þurfti ég að lagfæra þau að ofan.
Ég á, auk þessa, ótalmargar syndir á Akureyri,
meðal annars KEA-húsið á horninu skammt frá
kirkjutröppunum, og ég stóð fyrir byggingu Krist-
neshælis, sem fulltrúi húsameistara ríkisins."
Auk beinnar byggingastarfsemi vann Sveinbjörn
að ýmsum merkum verkefnum á þessum tíma. Á
þriðja áratugnum lagði hann t.d. hitaveitu að þrem
býlum í Eyjafirði og í íbúðarhúsið á Syðra-Laugar-
landi. Á liann margar skemmtilegar endurminning-
ar um samskipti sín við rnenn vegna þessara verk-
efna. Lenti liann m.a. í því, að leysa úr deilu milli
Arnórs Sigurjónssonar á Laugum og Jónasar frá
Hriflu, með óbeinum hætti að vísu.
Þeir deildu um staðsetningu skólahúss. Arnór
vildi hafa það nálægt raforkuvinnslusvæði, en Jónas
þar sem laugahitinn væri fyrir hendi. Þegar Arnór
Jreyrði, að Sveinbjörn Jryrði að leggja liöfuð sitt að
veði fyrir Jrví, að góður grundvöllur væri fyrir lauga-
hitun hússins, gaf hann sig.
EIGINKONA OG KREPPA
Sveinbjörn kvæntist árið 1921 Guðrúnu Þ. Björns-
dóttur, garðyrkjukonu í Gróðurstöðinni á Akur-
eyri. Segir hann, að hún hafi verið álitleg kona
mjög, en ekki fundið neinn við sitt hæfi, fyrr en
hann bar að garði, — og lilær við. Þau byggðu sér
nýljýlið Knarraberg í Eyjafirði árið 1925 við mikla
erfiðleika og vanefni, en hún keypti sjálf G hektara
landspildu af landi Kaupangs.
„Svo kom kreppan úr 1930, og við lneinlega
flosnuðum upp. Kreppunni fylgdi atvinnuleysi og
pjakk,“ segir Sveinbjörn um Jressa tírna.
Það var nú samt á kreppuárunum, sem lionum
datt í hug, að setja mætti á fót verksmiðju til að
framleiða rafmagnstæki til notkunar á heimilum,
er rafmagnið kæmi frá Soginu. Ræddi hann Jiessi
mál við Emil Jónsson og Nikulás Friðriksson, og
saman stóðu Jreir að stofnun Rafha.
Samtímis tók hann þátt í stofnun Ofnasmiðjunn-
ar og auk Jress Vikurfélagsins, með Jóni Loftssyni.
Tilraunir með vikur hóf Sveinbjörn árið 1928, er
hann var að byggja sláturhús fyrir KEA á Akureyri.
Vikurinn var fluttur frá Axarfirði og steyptir úr
honum steinar, sem síðan voru sendir til háskólans
í Þrándheimi til rannsókna. Kom í Ijós, að vikur-
inn var heppilegur til einangrunar og að loknum
frekari rannsóknum hér lreima jókst áhugi manna
fyrir vikrinum til muna.
Mikil fyrirliöfn fór í tilraunir og leit að vikri, en
Sveinbjörn og Höskuldur Baldvinsson, verkfræð-
ingur, fundu loks vikurnámur undir rótum Snæ-
fellsjökuls. Fleyttu þeir Jón Loftsson honum til
sjávar niður lækjarfarveg. Um síðir dró Sveinbjörn
sig til baka úr vikrinum og einbeitti sér að rekstri
Ofnasmiðjunnar og félagsmálum.
FÉLAGSMÁL
Hann var ritstjóri Jressa blaðs um 12 ára skeið, og
tók að öðru leyti virkan þátt í starfi Landssambands
iðnaðarmanna, m.a. sem framkvæmdastjóri. Hann
var formaður Iðnaðarmannafélags Akureyrar og