Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Blaðsíða 19

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Blaðsíða 19
SKIPfl- IflDGERDAR- VERKEFNI SVEINN S. HANNESSON Nýlega komu fram í dagsljósið niðurstöður þess lióps, sem í sumar var falið að kanna ástand og horf- ut' í íslenskum skipaviðgerðum. Könnun þessari var ^tlað að „leiða í ljós hvaða lykilatriði væri æski- legt að hafa áhrif á, til þess að auka samkeppnis- hæfni iðnaðarins", eins og það stendur í verkefna- lýsingunni. Tilgangurinn er þannig að skapa grund- völl fyrir ákveðnum aðgerðum innan skipaviðgerða- 'ðnaðarins í víðustu merkingu og ná athuganir og niðurstöður hennar þannig bæði til ytri aðstæðna fyrirtækjanna, s.s. stefnumörkunar ríkisvalds og sveitarfélaga, fjármögnunar og verðlagsmála og síð- ast en ekki síst til samskipta viðgerðaraðila og út- gerðar, svo nokkuð sé nefnt. Könnun þessi er gerð að tilhlutan Iðnþróunar- stofnunar íslands, Landssambands iðnaðarmanna, Kannsóknarstofnunar iðnaðarins og Sambands uiálm- og skipasmiðja. Að sjálfsögðu er ráð fyrir því gert að fjölmargir aðrir aðilar, sem hagsmuna eiga at'1 gæta, komi inn í myndina þegar fjallað verður Um niðurstöður og tillögur þær, sem fram koma í skýrslu vinnuhópsins og við framkvæmd þeirra til- hagna, sem samþykktar verða. Skýrt skal tekið fram, aö niðurstöður og tillögur í skýrslunni eru umræðu- grundvöllur og settur fram af vinnuhópnum, en við- komandi samtök hafa ekki tekið endanlega afstöðu dl þeirra. Til verksisins voru fengnir þeir Agnar Erlingsson, skipaverkfræðingur og Pétur Maack, rekstrarverk- fræðingur, auk starfsmanna þeirra stofnana og sam- taka, sem áður voru nefndar. Engxn tök eru á því að gera í stuttu máli grein fyrir efni þeirrar skýrslu, sem hópurinn tók saman, enda er hún mjög löng og margþætt. Skýrslan var unnin þannig að hver kafli hennar gæti að sem mestu leyti staðið sem sjálfstæð heild, sem lesa mætti án þess að þekkja efni hennar að öðru leyti. Kaflaheiti í skýrslunni eru eftirfarandi: 1. Inngangur 2. Flokkun skipastólsins 3. Skipaviðgerðir 4. Kostnaður við skipaviðgerðir 5. Viðgerðaraðilar 6. Fjármögnun viðgerða 7. Samkeppni 8. Markaðsskortur 9. Skipulag 10. Niðurstöður 11. Tillögur Ætlunin er að gefa skýrsluna rit í endanlegu formi þegar fyrir liggur athugasemdir og ábendingar frá liagsmunaaðilum bæði í iðnaðinum sjálfum, útgerð- inni svo og frá stofnunum, lánastofnunum, sveitar- 19

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.