Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Blaðsíða 28

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Blaðsíða 28
PETIIR SVEINBJARNARSON FRAMKV/EMDASTJÓRI HEFIIR STARF IDNKVNNINGAR BORID ARANGUR? Opinberar aðgerðir íslenskrar iðnkynningar lxóf- ust 3. september s.l. Starfsácetlun „iðnkynningarárs- ins“ var þá kynnt almenningi í fjölmiðlum, en þann dag var efnt til fundar með blaðamönnum i verk- smiðjunni Dúk í Reykjavik að viðstöddu starfsfólki fyrirtœkisins. Gunnar Thoroddsen, iðnaðarráðherra, flutti þar rœðu um islenskan iðnað og lýsti þvi yfir að iðnkynningarárið vœri hafið. Hjalti Geir Krist- jánsson, formaður verkefniráðs iðnkynningar, gerði grein fyrir helstu viðfangsefnum og Halldóra Ólafs- dóttir iðnverkamaður flutti ávarp. Iðnkynningar- árinu, sem svo hefur verið nefnt, er skipt i þrjá starfsáfanga: 1. áfangi 1. september — 31. desember 1976 2. áfangi 1. janúar — 30. apríl 1977 3. áfangi 1. maí — 31. ágúst 1977. Hér verður á eftir gerð grein fyrir helstu viðfangs- efnum íslenskrar iðnkynningar sem fram fóru í fyrsta áfanga. ÍSLENSK FÖT 76 Sýningin íslensk föt 76 var fyrsta viðfangsefni ís- lenskrar iðnkynningar og var hún opnuð 8. sept- ember í Laugardalshöllinni. Sýningin var jafnframt árleg fatakaupstefna Félags islenskra iðnrekenda, en að þessu sinni var efnt til mun viðameiri sýningar í tilefni iðnkynningarárs. Sýningin var stærsta fata- sýning sem fram hefur farið hér á landi þar sem 30 fyrirtæki kynntu framleiðslu sína. Jafnframt voru á sýningunni kynntar fjórar aðrar iðngreinar: 1. Hárgreiðsla 2. Hárskurður 3. Kjólasaumur 4. Klæðasaumur (klæðskerar). Efnt var til viðamikilla tískus^ninga tvisvar á dag meðan sýningin stóð yfir og vöktu þær mikla at- hygli. 21500 manns sóttu sýninguna íslensk föt 76. DAGUR IÐNAÐARINS Verkefnisráð íslenskrar iðnkynningar taldi nauð- synlegt að kynna sem best íslenskan iðnað víðs veg- ar um landið og var því ákveðið að efna til „Dags iðnaðarins', á nokkrum stöðum. Fyrsti staðurinn var Akureyri og stóð iðnkynningin þar yfir í viku tíma, en „Dagur iðnaðarins" fór fram föstudaginn 22. október. Á iðnkynningunni á Akureyri voru fyr- irtæki kynnt, sett var upp viðamikil sýning i Hafn- arstræti á framleiðsluvörum fyrirtækja á Akureyri og efnt var til tískusýningar í Sjálfstæðishúsinu. Á Egilsstöðum fór iðnkynningin fram 29.—31. október, en föstudagurinn 29. október var nefndur „Dagur iðnaðarins" á Egilsstöðum. Sett var upp viðamikil iðnsýning í Valaskjálf þar sem 25 fyrir- tæki og iðnmeistarar kynntu þjónustu og framleiðslu sína. Þá voru iðnfyrirtæki heimsótt og skipulagðar kynnisferðir skólafólks í iðnfyrirtæki. Þriðji staðurinn sem iðnkynning fór fram í fyrsta áfanga íslenskrar iðnkynningar var Borgarnes. „Dag- ur iðnaðarins" í Borgarnesi var föstudagurinn 12. nóvember. Iðnkynningin var skipulögð með svip- uðum hætti og á Egilsstöðum og sett upp iðnsýning í barnaskólanum í Borgarnesi, sem stóð yfir í þrjá daga. Sýningin var eins og fyrri sýningar mjög vel sótt og til marks um það má nefna, að allir skólar í nágrenni Borgarness og skólar á Snæfellsnesi heim- sóttu iðnkynninguna í Borgarnesi. „Dagur iðnaðarins" í Kópavogi var 28. febrúar. Sýningar fóru fram í tveimur skólum og sáu nem- endur um undirbúning þeirra og uppsetningu að mestu leyti. Heimsóttu nemendur fyrst fyrirtækin og að því búnu settu þeir upp sýningardeildirnar í samráði við forstöðumenn fyrirtækjanna. Með þessu móti fór fram hin besta starfskynning. 8 þúsund manns sóttu sýninguna í hvorum skóla. Á þessum fjórum stöðum fóru fram fundir um iðnað og iðnþróun. Framsögumenn þar voru heirna- menn og gestir. Þá heiðruðu samtök iðnaðarins ýmsa aðila sem unnið hafa að iðnðarmálum. Félag ís- lenskra iðnrekenda veitti þeim fyrirtækjum, sem starfað hafa í 25 ár eða lengur eða 50 ár og lengur sérstakan viðurkenningarskjöld. Landssamband iðn- aðarmanna veitti iðnaðarmönnum viðurkenningu, sem var borðfáni sambandsins, Landssamband iðn- verkafólks veitti öldruðu iðnverkafólki viðurkenn- ingu, með því að afhenda því sérstakt viðurkenning- arskjal og Útflutningsmiðstöð iðnaðarins veitti fyr- irtækjum, sem náð hafa sérstökum árangri á sviði útflutnings veggskjöld. Dr. Gunnar Thoroddsen, iðnaðarráðherra, og frú Vala Ásgeirsdóttir Thorodd- sen, heimsóttu Akureyri, Egilsstaði, Borgarnes og Kópavog á „Degi iðnaðarins" og tóku ráðherrahjón- in Joátt i öllum dagskráratriðum, auk þess sem þau efndu til móttöku á hverjum stað. 28

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.