Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Síða 29

Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Síða 29
SAMSTARF VIÐ OPINBERA AÐILA Einn megin tilgangur íslenskrar iðnkynningar er að hvetja íslenska stjórnmálamenn og embættis- menn og aðra áhrifaaðila til Jress að búa betur að ís- lenskum iðnaði, taka aukið tillit til hans og vinna að eflingu hans. Verkefnisráð íslenskrar iðnkynning- ar hefur litið á þetta sem eitt af megin viðfangsefn- um iðnkynningar. Hefur alþingismönnum verið boðið að sækja fundi þá er efnt liefur verið til'á „Degi iðnaðarins" og um leið kynnast iðnfyrirtækj- um á Jressum stöðum. Er Alþingi kom saman 11. október 1976 var öllum alþingismönnum sent opið bréf sem jafnframt var birt í öllum dagblöðum. Bréfið er undirritað af fjórum forsvarsmönnum sam- taka iðnaðarins: Birni Bjarnasyni, formanni Lands- sambands iðnverkafólks, Davíð Sch. Thorsteins- syni, formanni Félags íslenskra iðnrekenda, Eysteini Jónssyni, formanni Sambands íslenskra samvinnu- félaga og Sigurði Kristinssyni, forseta Landssam- bands iðnaðarmanna. íslensk iðnkynning hefur lagt á Jjað áherslu að Jiessir aðilar hefðu með sér sem besta samvinnu og kæmu fram opinberlega sem einn aðili. Þannig hafa farið fram, fyrir milligöngu ís- lenskrar iðnkynningar, viðræður við fulltrúa í fjár- veitinganefnd Aljringis, fjárhagsnefndum Aljúngis og iðnaðarnefndum Aljringis. Má fullyrða að það er íslenskum iðnaði mikill styrkur að Jressir aðilar skuli þannig sameiginlega koma frarn gagnvart opin- berum aðilum. Óskað var eftir ]iví í desember við iðnaðarráð- iierra að skipuð yrði nefnd til J^ess að gera úttekt á málefnum iðnaðarins. Hefur beiðni ]>essi verið sam- þykkt. AUGLÝSINGAR í SJÓNVARPI Þrjár auglýsingaherferðir hafa farið fram i sjón- varpi þar sem komið hefur verið á framfæri upp- lýsingum um íslenskan iðnað og mikilvægi hans. Fyrsta herferðin fór fram í júnímánuði eða nokkru áður en iðnkynning hófst íormlega. Var sú herferð fyrst og fremst farin til reynslu og þá birtar sjón- varpsauglýsingar í u. ]). b. einn mánuð og jafnframt var samið við fyrirtækið Hagvang hf. um að kanna afstöðu almennings til íslensks iðnaðar svo og fleiri þætti sem gætu verið undirbúningsstarfinu til leið- beiningar. I nóvember fór fram önnur auglýsingaherferðin í sjónvarpi og hin Jariðja í desember. Tilgangur með auglýsingaherferðum þessum er fyrst og fremst sá að skapa umræður og umtal um íslenskan iðnað með því að koma á framfæri nokkrum meginstaðreynd- um er skipta verulegu máli. 1 Jniðju auglýsingaher- ferðinni var sérstaklega höfðað til kaupenda og þeim bent á að velja íslenskrar vörur til jólagjafa. í október, nóvember og desember voru birtar 52 auglýsingar í sjónvarpi og hafa jní samtals verið birtar 68 auglýsingar í allt. Þá var einnig dreift á fjölmörgum stöðum veggspjaldi, auglýsingamynd- inni til áréttingar. FRÉTTABRÉF IÐNKYNNINGAR í fyrsta áfanga iðnkynningar hafa verið gefin út 2 fréttabréf. Fréttabréfunum er ætlað ])að hlutverk að veita upplýsingar um starfsemi iðnkynningar og vera tengiliður hennar við ])á sem starfa í íslensk- um iðnaði og gegna trúnaðarstörfum fyrir Jrær stofn- anir, félög og samtök sem aðild eiga að íslenskri iðn- kynningu. í fréttabréfunum hefur verið komið á framfæri upplýsingum um þau viðfangsefni sem fram undan liafa verið hverju sinni. Þá hefur iðn- rekendum og forstöðumönnum iðnfyrirtækja verið sent sérstakt upplýsingabréf þar sem bent er á ýms- ar leiðir sem fyrirtæki í iðnaði gætu gert sjálfum sér í hag og iðnaðinum til stuðnings. I bréfi ])cssu er m.a. hvatt til aukinna átaka á sviði sölu- og mark- aðsmála, svo sem með kynningarstarfi, vöruvöndun, vörumerkingum og fleiru. SAMSTARF VID FJÖLMIÐLA íslensk iðnkynning lrefur frá upphafi átt mjög ánægjulegt og árangursríkt samstarf við fjölmiðla. I blöðum, útvarpi og sjónvarpi hefur mjög ýtarlega verið skýrt frá öllum viðfangsefnum íslenskrar iðn- kynningar og íslensk iðnkynning hefur haft milli- göngu um kynningu á íslenskum iðnfyrirtækjum og viðhorfum og sjónarmiðum forystumanna iðnaðar- ins jafnt iðnverkafólks, iðnaðarmanna og iðrekenda. HEFUR STARF IÐNKYNNINGAR BORIÐ ÁRANGUR? Ætíð er erfitt að meta og vega árangur kynninga- og fræðslustarfs, sem Jretta. Þó hefur frá upphafi verið reynt að fylgjast með Jrví hvort einhverjar breytingar ættu sér stað, og var samið við fyrirtækið Hagvang hf. um að gera kannanir í þessu skyni. Síðasta könnunin fór fram í febrúarbyrjun 1977. I.okaorð þessarar könnunar eru: Ekki verður hjá J)ví komist — á grundvelli þessara niðurstaða — að álykta að boðskapur íslenskrar iðn- kynningar hafi að rniklu leyti komist til skila. Allir vissu hvað urn var rætt, þegar rælt var um kynningarstarfsemina, þannig að þekkingin hefur breyst. Á grundvelli spurninga má draga þá ályktun að afstaða almennings hafi einnig breyst. Varla var búist við að íslensk iðnkynning hefði áhrif á sjálfa innkaupahegðunina. Niðurstöður könnunarinnar virðast ])ó benda til að svo hafi orðið. Markaðshlutdeild íslensks iðnvarnings í Jreim vöruílokkum, sem athugaðir voru í öllum könn- unum liefur stækkað um 6% — stig að meðaltali. 29

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.