Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Blaðsíða 32
SIGIIDUB GUIMUMDSSOM WDSKIPTAHUHINGIR
ILÉITIIM DÚR UIN HLAMLBBSUITÆKIFfERI
Á tímum vaxandi samkeppni er nauðsynlegt fyrir
hvers konar vöruframleiðendur að vera stöðugt á
liöttum eftir framleiðslutækifærum. Á undanförn-
um árum hefur iðnaðurinn notið leiðbeiningar (eða
öllu heldur ítroðslu) af hendi opinberra og hálf-
opinberra stofnana um val framleiðsluleiða, en þar
liefur ekki gætt nægrar hugkvæmni að mati Lands-
sambands iðnaðarmanna. Ódýrasta og besta aðferð-
in til að setja í framleiðslu vöru, er að stela hug-
myndum sem þegar hefur verið tekið einkaleyfi á
erlendis. Hér á eftir verða rakin nokkur dæmi um
vörur, sem íslenskir iðnmeistarar gætu tekið upp
framleiðslu á. Starfsmenn Landssambandsins eru
fúsir til að aðstoða við nánari leit í einkaleyfis-
skrám, ef áhugi er fyrir hendi.
„MJALTASLÖNGUR"
Árið 1910 leystu menn það vandamál kvenna, að
gefa börnunum brjóst á opinberum stöðum án þess
að þurfa að roðna. Á meðfylgjandi mynd af tæk-
inu sést, hvernig móðirin þarf aðeins að draga út
slöngur með túttu á endanum milli hnappanna á
blússunni og gefur þannig barninu að drekka, án
þess að þurfa að roðna.
„HJÁLMBYSSA"
Albert Bacon Patt, efnafræðingur í U.S.A. hefur
breskt einkaleyfi no. 100891 á talsvert sérstæðri
byssu. Hugmynd hans er að gera veiðar skemmti-
legar, og jafnframt spara veiðimanninum (og her-
manninum) erfiðið við að bera byssuna í höndun-
um. Hugmyndin fól í sér að festa byssuna á hatt,
líkt og lampa á hjálmi námuverkamanns. Við gikk-
inn var komið fyrir upplásanlegri blöðru og frá
blöðrunni lá slanga niður með hliðinni á hattin-
um og upp í munn veiðimannsins. Þegar skrjáfar í
runnunum snýr veiðimaðurinn sér ósjálfrátt að
hljóðinu og bráðin og veiðimaðurinn liorfast í augu.
Þegar veiðimaðurinn blæs í slönguna þenst blaðran
út, skotið ríður af og bæði bráðin og veiðimaður-
inn detta dauð niður. Veiðimaðurinn með brotinn
háls.
„SÁPUKÚLUHATTUR“
Ef til vill hefur Albert Patt fengið hugmynd sína
frá landa sínum Alden McMurtry. Nokkrum árurn
32