Tímarit iðnaðarmanna - 01.07.1976, Blaðsíða 36
AFBROTAVARNIR
Það er engum launung, þeim, sem atvinniurekstur
stundar í einni eða annarri mynd, að innbrot í fyrir-
tæki og mannvirki eru óþarflega algeng hérlendis.
í fjölda tilfella er ckki aðeins um innbrot í auðg-
unarskyni að ræða, það eru líka unnin skemmdar-
verk, þar sem tjónið veltur oft á tugum þúsunda
króna, ef ekki hundruðum þúsunda. Misjafnlega
gengur að upplýsa þessi afbrot, þó hefur lögreglu
og rannsóknarlögreglu tekist mjög vel í baráttunni
gegn þessurn ófögnuði nú hin síðari ár, en betur má
ef duga skal.
I allflestum tilfellum eiga unglingar hlut að
máli, og því er lítið af þeim að hafa til greiðslu á
því tjóni, sem þeir valda fjölda fyrirtækja og ein-
staklinga, jregar þeir láta gamminn geysa um hirslur
og geymslur. Af þessum sökum hlýtur að vakna sú
spurning hjá öllurn hugsandi mönnum, hvað sé hægt
að gera til að sporna við þessu krabbameini í þjóð-
arlíkamanunr.
Undanfarin ár hefur lögreglan í Reykjavík beitt
sér fyrir fræðslustarfsemi meðal samborgaranna, á
allvíðtæku sviði varna gegn innbrotum, þjófnuðum,
bifreiðaþjófnuðum og verðmætaþjófnuðum úr þeim,
ávísanafalsi, hnupli úr verslunum og skemmdarverk-
um, svo eitthvað sé nefnt. Hefur lögreglan fyrst og
fremst leitað til samtaka þeirra þjóðfélagshópa, er
helst hafa orðið fyrir þungum búsifjum af völdum
afbrotamanna. Á þann veg hafa skapast betri tengsl
lögreglu og borgara.
]>að er frumþörf löggæslumanna, að hinn almenni
borgari veiti þeim alla þá aðstoð, sem kostur er á, í
baráttunni gegn öllum tegundum afbrota.
Hefur það orðið að samkomulagi milli afbrota-
deildar lögreglunnar í Reykjavík og stjórnar Lands-
sambands iðnaðarmanna, að haldnir verði nokkrir
fræðslufundur um afbrot og afbrotavarnir fyrir með-
liði samtakanna.
Er það eindregin von okkar, sem að þessari
fræðslustarfsemi stöndum, að félagar í samtökunum
gefi sér tíma til að heimsækja okkur og fræðast, á
þeim fundartímum, sem verða ákveðnir. Gæti það
orðið til þess að fækka ýmsum tegundum afbrota,
spara einstaklingum óþarfa útgjöld, fækka málum
hjá lögreglu og rannsóknarlögreglu og spara þannig
ríkinu stórfé, en þó fyrst og fremst að forða fjölda
unglinga frá að lenda út á afbrotabrautinni.
Grétar Norðfjörð.
Boðað verður til fræðslufunda um þessi mál á
næstunni.
ÖRYGGI YÐAR
ER SÉRGREIN OKKAR
pjófaaðvörunarkerfi Brunaaðvörunarkerfi Neyðarlýsing Skráa- og l/klakerfi |
Leitið rdðgjafar okkar
meðan verkið er á hönnunarstigi j|yu
SÍMI 91-37393
36