Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1982, Qupperneq 25
silfiiSl
50 ára reynsla tryggir örugg viðskipti
*twt-
atvinnuástandi út um landið. Ég minnist þess að
hafa verið á 7 stöðum á Iðnþingum utan Reykjavík-
ur. Avallt voru okkur sýnd iðnfyrirtæki á stöðunum,
sem þingin voru á, og þar sást, hve gagnmerku hlut-
verki þau gegndu, bæði atvinnulega og eins sem
þjónustuaðilar við byggðalögin.
Landssamband iðnaðarmanna er 50 ára á þessu
ári eins og áður hefir komið fram. Ég flyt því mínar
bestu hamingjuóskir á þessum tímamótum. Lands-
sambandið á að vera og er ráðgefandi stjórnendum
þessa lands í. málefnum iðnaðarins. Landssamband-
inu er vel stjórnað nú, bæði forseti, framkvæmda-
stjórn og starfsfólk hafa unnið mikið og gott starf á
síðustu árum.
Landssamband iðnaðarmanna getur orðið það,
sem þið, félagarnir, viljið að það verði, ef þið standið
öll fast saman um það.
Hjörleif ur Guttormsson
Afmæliskveðja til L.i.
Framhald af bls. 6
ur þó ekki verið vettvangur beinna hagsmunaátaka
um kaup og kjör.
Afmæli Landssambands iðnaðarmanna ber að á
tímum óvenju líflegrar umræðu um framtíðarþróun
iðnaðar í landi okkar. Ef reynt er að greina hismið
frá kjarnanum fer ekki milli mála, að hæst ber þá
spurningu, hvort landsmenn muni á næstu árum
bera gæfu til þess að standa saman um uppbyggingu
fjölþætts iðnaðar, sem lúti forræði innlendra aðila
og segi um leið skilið við þá bónbjargarstefnu og
vantrú, sem hér hefur legið í landi varðandi getu
okkar til að takast á við stærri iðnaðarverkefni og
hagnýtingu orkulindanna í því samhengi.
Ég vil á þessum tímamótum í sögu Landssam-
bands iðnaðarmanna flytja sambandinu, aðilum
þess og forystumönnum árnaðaróskir um leið og ég
þakka mikil og vinsamleg samskipti á liðnum árum.
Tímarit iðnaðarmanna
23