Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1982, Side 29

Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1982, Side 29
Svipmyndir úr 50 ára sögu Landssambands iinalarmanna Þegarfarið eryfir þær Ijósmyndir, sem til eru i fórum Landssambands iðnaðarmanna og varða starfsemi þess og samskipti við félagana í 50 ár, kemur fljótt i Ijós, aðfráfyrri hluta þessa timabils eru tiltölulegafá- ar myndir til. Eru ástæðurnarfyrir þessuýmsar. Notk- un myndavéla var tæpastjafn almenn og nú, Lands- sambandið átti engan fastan samastað fyrstu árin, og sjálfsagt hafa ýmsar myndir orðið tímans tönn að bráð eins og gengur. Þá er vitað, að margar foruitnilegar og sögulegar Ijósmyndir brunnu til ösku, þegar skrif- stofa Landssambands iðnaðarmanna varð fyrir elds- voða árið 1967. Er þetta vissulega mikill skaði, því fátt er betur fallið til að frœða menn um liðna atburði og vekja gamlar og góðar endunninningar en góðar Ijósmyndir. Á hinn bóginn er nokkuð til af Ijósmynd- um frá siðustu 15 til 20 árum eða svo, emkum í sambandi við Iðnþing íslendinga. Hér á eftir birtast nokkur leiftur i máli og myndum úr 50 ára sögu Landssambands iðnaðannanna. Langri ogfjölbreyti- legri sögu fjölmennra samtaka verður ekki gerð skil á nokkrum blaðsíðum. Þá eru ekki heldur tök á því að minnast hér á eftir nema tiltölulega fárra þeirra, sem komið hafa við sögu Landssambandsins. Menn verða þvi að virða viljann fyrir verkið, en hafi einhver ánægju af þessari upprifjun, er tilganginum náð. SIGMAR ÁRMANNSSON m " % • ' [J r Fyrsta Iðnþing Islendinga var haldið i Reykjavík i baðstofu iðnaðarmanna við Vonarstrœti dagana 18. til 21. júni 1932. Þingfulltrúar voru 51 og komu frá Reykjaxnk, Hafnarfirði, Vestmannaeyjum, Siglufirði og Akureyri. Á þessufyrsta Iðnþingi var samþykkt að stofna landssamtökfyrir iðnaðarmenn, sem siðar var valið heitið Landssamband iðnaðarmanna. Þessi mynd erfrá fyrsta Iðnþinginu. Timarit iðnaðarmanna 27

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.