Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1982, Qupperneq 33
Nokkrir veisluglaðir Hafnfirðingar á lokahófi 12. Iðnþings Islendinga, en það var haldið i Hafnarfirði árið 1950. Vjð borðið sitja, talið frá vinstri,
Kristinn J. Magnússon, málarameistari, Guðjón Magnússon, skósmiðameistari, stjómarmaður i Landssambandi iðnaðarmanna 1945—1952, Asgeir G.
Stefánsson, húsasmíðameistari, stjómarmaður í Landssambandsstjóm 1932—193 7, Magnús Kjartansson, málarameistari, og Þóroddur Hreinsson, húsa-
og húsgagnasmíðameistari.
Landssamband iðnaðarmanna og systursamtök þess á Norðurlöndum mynda svonefnt Norrænt iðnráð, sem starfað hefur siðan 1912 að sameiginlegum
hagsmunamálum samtakanna. Landssamband iðnaðarmanna gekk i Norrtena iðnráðið árið 1936, og er óhatt að fullyrða, að Landssambandið hafi notið
góðs af þessu samstarfi, t.d. ifrteðslu- og verkmenntunarmálum ognúáseinniárum i efnahags- ogatvinnumálum almennt. Hér er myndfrá stjómarfundi i
Norrcena iðnráðinu. Taliðfrá vinstri: Sveinbjöm Jónsson, lslandi, Varti O. Vaara, Finnlandi, Lauri Viljanen, Finnlandi, Kaara Aass, Noregi,formaður,
Einar Höstmark, Noregi, Stig Stefanson, Svíþjóð, og Hans Grundström, Svíþjóð.
Tímarit iðnaðarmanna
31