Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1982, Page 50
Kjartan Johannsson, formaður Alþyðuflokksins
Landssamband
iðnaðarmqnnq 50 árg
Mér er það sérstakt ánægjuef'ni að f'á tækifæri til þess
að flytja Landssambandi iðnaðarmanna árnaðarósk-
ir og kveðjur Alþýðuflokksins á þessum tímamót-
um.
Aðrir munu rifja upp sögu Landssambandsins. Þó
get ég ekki látið hjá líða að minna á góða samvinnu
Landssambandsins og Alþýðuflokksins, allt frá
stofnun sambandsins. Á ýmsum tímum hafa sumir
af forystumönnum Alþýðuflokksins reyndar enn-
fremur gegnt trúnaðarstörfum fyrir Landssam-
bandið. Er þetta til marks um, að tilgangur og mark-
mið starfs ogstefnu féllu saman í mörgum greinum.
Svo er enn.
Á fimm áratuga ferli Landssambands iðnaðar-
manna, hafa miklar framfarir átt sér stað í iðnaði,
nánast bylting. Og enn stendur iðnaðurinn frammi
fyrir nýrri byltingu, mótaðri af sjálfvirkni og ör-
tölvutækni. Sú ummótun verður vandasöm og krefj-
andi. í henni eru fólgnir ótaldir möguleikar en jafn-
framt hættur, sem verður að varast. Því verður að
leggja rækt við þessa ummótun, þannig að hún nýtist
vinnandi fólki, en verði því hvorki ógn né heldur
ógni lífsafkomu þess.
Þótt árangur og framvinda í iðnþróun hafi verið
mikil á starf'stíma Landssambands iðnaðarmanna, er
ljóst, að mikið vantar á, að iðnaðurinn njótijafnræðis
við aðrar atvinnugreinar í ýmsum starfsskilyrðum. f
Ieiðréttingu þessa felst tækif’æri iðnaðarins til þess að
mæta vaxandi kröfum og axla vaxandi hlutdeild í
íslensku atvinnulífi. Þess vegna hlýtur krafan um
jafnræði atvinnuveganna að f'á aukinn stuðning á
komandi árum.
Næstu ár og áratugir munu fela í sér auknar kröf-
ur til iðnaðarins. Framþróun næstu ára og áratuga,
verður að vera a.m.k. jafnmikil og á liðnum áratug-
um. Til þess þarf ríkari skilning á stöðu og hlutverki
iðnaðarins í nútímaþjóðfélagi. Slíkum stuðningi,
slíkri framvindu, vill Alþýðuflokkurinn vinna að.
Það er ósk mín Landssambandinu til handa á þess-
um tímamótum, að því muni takast á komandi árum,
ekki síður en hingað til, að rækta skilninginn á hlut-
verki iðnaðarins í þjóðarbúinu, til hagsbóta, ekki
einungis fyrir félagsmenn sína, heldur líka þjóðina
alla.
Kjartan Jóhannsson,formaður Alþýðuflokksins.
RIDGID
- Snittverkfæri
- Rörtengur
- Rörahaldarar
- Rörskerar
- Snittolía
• Trésmíðaverkfæri
• Múraraverkfæri
• Fjölbreytt úrval rafmagnsverkfæra
• Penslar-málningarvörur
• Vinnufatnaður
• Hlífðarfatnaður
Ánanaustum
Sími 28855
48
Txmarit iðnaoarmanna