Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1982, Qupperneq 53
— Aðflutningsgjöld f'alli niður af' aðf'öngum þess
iðnaðar, þ. á m. byggingariðnaðar, sem á í beinni eða
óbeinni samkeppni innanlands sem erlendis.
— Lánasjóðir iðnaðarins verði efldir og arðsemi
1 járfestinga ráði útlánum.
— Rannsóknir, þróunarstarfsemi og þjónustu-
stofnanir iðnaðarins verði efldar og f'yrirtæki örvuð
til virkra aðgerða í þeim efnum.
— Innkaup og verkútboð opinberra aðila örvi
innlendan iðnað og iðnþróun.
— Sérstök áhersla verði lögð á íslenska iðnhönn-
un og listiðnað.
— Verk- og tæknimenntun, framhaldsnám og
endurmenntun taki mið af iðnþróun og aukin verði
samvinna skóla og samtaka iðnaðarins, sem voru
frumkvöðlar iðnmenntunar í landinu.
Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru og ýmsu
sleppt en ekki síst er vakin sérstök athygli á því, að
rafeindatækni og örtölvur opna nýjar leiðir í iðnaði.
Brýn nauðsyn er, að atvinnulífið, ekki síst iðnaður-
inn, sé í stakk búinn að nýta þessa tækni og aðlagast
þeim breytingum, sent henni fylgir.
Aðalsmerki góðra iðnaðarmanna er vandvirkni,
þar sem hugur og hönd vinna saman. Aukin vélvæð-
ing, sem á ekki ósjaldan rót sína að rekja til hugvits
og handlagni iðnaðarmanna sjálfra, breytir þessu
ekki. Aukin samkeppni gerir og auknar kröfur til
iðnaðarmanna og samtaka þeirra.
A 50 ára afmæli Landssambands iðnaðarmanna
er það samdóma álit manna, að vel hafi verið að
verki staðið, en nteð vaxandi mikilvægi iðnaðarins í
íslensku atvinnulífi næstu 50 árin verður til enn
meira ætlast í framtíðinni. Það er afmælisósk, von og
vissa, að Landssamband iðnaðarmanna og íslenskir
iðnaðarntenn láti hvergi deigan síga hér eftir sem
hingað til.
Jeppinn sem fer ótroðnar slóðir.
Sveinn Egrlsson hf.
Skeifan 17. Sími 85100
SUZUKI
Timarit iðnaðarmanna
51