Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1982, Síða 63
efnahagslífi okkar, vakningu almennings um stöðu
atvinnumála og þýðingu heilbrigðs atvinnurekstrar
auk bættrar menntunar í verksmiðjuiðnaði. Fyrsta
krafan um breytingar í efnahagslífinu er auðvitað
sú, að allir atvinnuvegirnir þrír, sjávarútvegur, land-
búnaður og iðnaður, búi þegar í stað við sömu kjör í
skatta-, lána- og aðbúnaðarmálum öðrum. í áföng-
um ber síðan að stefna að því, að fiskveiðar og orku-
iðnaður beri uppi samneyslu þjóðarinnar, þar sem
þær greinar einar njóta hinna sérstöku auðlinda,
sem ísland á. Um breytta verkaskiptingu og aukna
menntun í húsgagna- og innréttingaiðnaði má t. d.
nefna, að við eigum fáa eða enga hæfa sölumenn
fyrir erlenda markaði í fyrirtækjum. Hönnuði, sem
hafa frumleika og tækni góðra iðnhönnuða, er og
tæplega að finna fyrir þessar greinar. Þá er gríðar-
legur skortur á hæfum verkstjórum, sem hlotið hafa
markvissa sérmenntun. Sérþjálfun iðnverkafólks
fyrirfinnst ekki utan þess, sem reynt er að gera innan
fyrirtækjanna sjálfra, og þá venjulega af mönnum,
sem ekki hafa sérmenntun í verksmiðjuvinnubrögð-
um. Um síðustu áramót- var tekin upp svonefnd
innborgunarskylda á innflutning húsgagna og inn-
réttinga. Var það gert í þeim yfirlýsta tilgangi að
aðstoða innlenda framleiðendur í þessum greinum.
Gagnsemi þessarar aðgerðar er þó ekki mikil, held-
ur frestar hún því, að stjórnvöld taki á hinum raun-
verulega vanda, sem við blasir í húsgagna- og inn-
réttingaiðnaði. Breytinga er þörf, það ætti öllum að
vera ljóst. En töfraformúlan á samkeppnismarkaðn-
um er einföld, og hljóðar: „Stattu þig betur en
keppinautarnir". Það getum við á ótal mörgum svið-
um, ef við stillum krafta okkar saman.
Birgir Snorrason:
Brauð og kökugerð
Vart fer hjá því, að almenningur hafi ekki tekið eftir
þeim breytingum, sem hafa orðið í rekstri brauð- og
kökugerða á síðustu árum, sérstaklega hvað við-
kemur vöruúrvali og vöruvöndun. Þessum breyting-
um hefur verið tekið ákafiega vel af viðskiptavinum
og bakarameisturum því verið kleift að bæta sífellt
við og fylgjast með þróuninni. Þetta hefur orðið til
þess, að neysla, sérstaklega á brauðum, hefur aukist.
Aukin brauðaneysla hefur þannig fylgt auknu
brauðaúrvali, jafnframt því sem Landssamband
bakarameistara hefur rekið mikinn áróður fyrir
hollustu brauða og nauðsyn brauða í daglegri fæðu
fólks. í brauð- og kökugerð eru nú starfandi um 60
fyrirtæki, sem veita á sjötta hundrað heilsársstörf.
Til að gera einhvern samanburð má geta þess, að
sælgætisiðnaðurinn veitir um helmingi færra starfs-
fólki atvinnu og mjólkuriðnaðurinn telur innan við
500 ársstörf. Bakarí eru dreifð um allt land og mjög
misstór, allt frá tveggja til áttatíu manna fyrirtækja.
I il að gera sér tölulega grein fyrir stöðu stéttar-
innar, hafa bakarameistarar notið þjónustu Lands-
sambands iðnaðarmanna, en það hef ur nú um árabil
unnið svonefndar lykiltölur fyrir brauð- og köku-
gerð. Ef litið er á síðustu lykiltölur, sem sýna útkom-
una úr rekstrinum 1980, kemur í Ijós, að umtals-
verður munur er á afkomu einstakra bakaría. Með-
altal fyrir rekstur iðngreinarinnar í heild sýnir, að
hagnaður er 1.0% í stað 5.2% fyrir árið áður. Þessar
tölur segja ef til vill ekki mikið, en gefa þó vísbend-
ingu um, hver afkoman er. Búast má við, að afkom-
an á árinu 1981 sé heldur betri en hún var 1980.
Ymsar blikur eru þó á lofti varðandi nánustu fram-
tíð. Þar má sérstaklega nefna innflutning á brauði og
kökum. Eftir því sem tollar á þessum vörum hafa
lækkað hefur innflutningur aukist, og þegar tollar
féllu alveg niður kom verulegt stökk í innflutning-
inn, þar sem erlendar kökur voru orðnar ódýrari en
sambærilegar innlendar kökur. Astæður fyrir því
eru nokkrar. I fyrsta lagi þurfa íslenskir bakara-
meistarar að kaupa mörg af sínum hráefnum dýrari
en erlendir keppinautar. í öðru lagi þurfa íslenskir
bakarameistarar enn að greiða tolla af ýmsum
áhöldum og tækjum til framleiðslunnar. Þar sem
samkeppnisaðstaða innlendra og erlendra framleið-
enda var bersýnilega ekki sú sama, var í september
1980 sett sérstakt tímabundið innflutningsgjald á
kökur, sem standa átti til 1. mars 1982. Þennan tíma
hefur verið reynt að nota, og með aðstoð Landssam-
bands iðnaðarmanna var sett af stað markaðs- og
vöruþróunarverkefni í brauð- og kökugerð. Megin-
markmið þessa verkefnis er að gera stéttina betur
samkeppnishæfa gagnvart erlendum keppinautum.
Fyrsti þáttur þe$s hófst s. 1. haust, þegar ráðinn var
matvælafræðingur með styrk frá iðnaðarráðuneyt-
inu. Verkefni hans er að vinna að ýmsum vöruþró-
unarverkefnum, einkum hvað viðkemur eiginleik-
um og meðferð hráefna og hjálparefna ásamt þróun
framleiðslunnar. Það er hlálegt til þess að vita, að við
innflutning á korni til skepnufóðurs eru alltaf tekin
sýni og gæði þess athuguð. Ef verið er að flytja inn
korn til manneldis eru engar athuganir gerðar, enda
hefur því miður komið fyrir, að hráefni bakarans
hefur verið slæmt. Vonast bakarameistarar eftir því,
að markaðs- og vöruþróunarverkefni þetta fái góðar
móttökur hjá þeim aðilum, sem til verður leitað með
fjármögnun. Ef svo verður, er ætlunin að taka á
nokkuð mörgum þáttum, sem varða rekstur bakarí-
anna. Þetta á að gera bæði með námskeiðshaldi og
beinni ráðgjöf. Mikill áhugi er á framlegðarútreikn-
ingum, en fyrir um það bil 5 árum hóf Landssam-
band iðnaðarmanna að aðstoða fyrirtæki í brauð-
Tímarit iðnaðarmanna
61