Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1982, Qupperneq 68
STARFSSKILYRÐI IÐNAÐAR
Erindi flutt af Rórleifi Jónssyni, fframkvæmdastjóra
Landssambands iðnaðarmanna d afmælisfundi
Landssambandsins á Akureyri i janúarmánuði s.l.
Allt frá því að ísland gekk í Fríverslunarbandalag
Evrópu árið 1970, sem leiddi til viðskiptasamning-
anna við Efnahagsbandalag Evrópu árið 1973, hafa
verið skiptar skoðanir um, hvort iðnaðurinn hafi
fengið þau starfsskilyrði, sem stjórnvöld höfðu lofað
honum. Þegar við upphaf inngöngunnar í EFTA
stóðu menn frammi fyrir því, aðjafnframt því sem
erlendir framleiðendur fengju frjálsan aðgang að
íslenskum markaði og reynt yrði að hefja útflutning
iðnvarnings í einhverjum mæli frá íslandi, væri
óhjákvæmilegt að færa starfsskilyrði íslenskra iðn-
fyrirtækja til samræmis við þau starfsskilyrði sem
erlendir samkeppnisaðilar þeirra njóta. Um þetta
var enginn ágreiningur, enda af öllum talin eðli-
leg krafa, að Islendingar sætu við sama borð og
erlendir keppinautar þeirra að þessu leyti. Enn-
fremur var Iítill ágreiningur um, hvað gera þyrfti til
þess að ná þessum markmiðum. Fljótlega eftir inn-
gönguna upphófust hins vegar deilur milli íorráða-
manna félagasamtaka iðnaðarins og opinberra aðila.
Töldu talsmenn iðnaðarins, að málum miðaði seint
og aðlögunartíminn væri ekki nægilega vel nýttur til
þess að efla iðnaðinn og gera hann betur í stakk
búinn til að takast á við aukna samkeppni. Um þetta
má sjálfsagt lengi deila og verður ekki reynt að rifja
upp þau skoðanaskipti, sem hafa átt sér stað um
þetta atriði. Hitt er rétt að fram komi hér, að Lands-
samband iðnaðarmanna hefur haft sérstöðu í þess-
um skoðanaskiptum. Það hefur lagt áherslu á, að
auk þess sem sjálfsagðar breytingar á starfsskilyrð-
unum hefðu fengist fram bæði seint og illa, og væru
varla ennþá allar komnar í höfn, þá hafi þegar í
upphafí verið gerð sú grundvallarskekkja að láta
þessar breytingar einungis ná til hluta af iðnaðinum.
Sérstakt hugtak, samkeppnisiðnaður, var skilgreint
á mjög svo vafasaman hátt og breyting starfsskilyrð-
anna miðuð aðallega við þær iðngreinar, sem hlutu
þá náð að lenda innan þess hóps, sem skilgreining
þessa hugtaks náði yflr. Eg mun síðar víkja nánar að
þessu grundvallaratriði.
A síðustu árum hafa skapast gjörbreytt viðhorf í
iðnþróuðum löndum vegna gífurlegrar samkeppni
Þórleifur Jónsson,framkvœmdastjóri Landssambands iðnaðarmanna.
frá áður vanþróuðum þjóðurn og jafnframt hefur
orðið stórfelld röskun á kostnaðarhlutföllum með
hækkuðu verði á orku. Tækniframfarir hafa
orsakað stórfelldar breytingar á framleiðsluhátt-
um og mikil áhersla er lögð á verndun umhverf-
is og betri skilyrði á vinnustöðum. Afleiðing þessara
miklu breytinga hefur orðið sú, að ýmsar þjóðir, sem
staðið hafa frammi fyrir miklum erfiðleikum af
þessum völdum, hafa gripið til róttækra varnarað-
gerða, er ekki hvað síst hafa komið fram í víðtækum
stuðningi við iðnað í viðkomandi landi. Þegar þess
er gætt, að meginmarkmið stuðningsaðgerða, að
minnsta kosti sumra helstu samkeppnislanda ís-
lendinga, eru þau að bæta rekstrarskilyrði smárra
og meðalstórra fyrirtækja í framleiðslu-, þjón-
ustu- og byggingariðnaði, má ljóst vera, að hið
66
Timant iðnaðarmanna