Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1982, Page 90

Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1982, Page 90
Frá 39. Iðnþingi Islendinga. Gert er ráð f'yrir því, að Iðntæknistofnun hafi forystu um samræmingu á störfum iðnráðgjafanna. Iðnráðgjafar eru nú teknir til starfa í 5 landshlut- um og hefur iðnaðarráðuneytið stuðlað að ráðningu þeirra með styrk af iðnþróunarfé. I undirbúningi er nú að hrinda af stað nýstárlegu verkefni til að örva stofnun fyrirtækja, og mun það fyrst og fremst taka til landsbyggðarinnar. Miðar verkefnið að því að auðvelda þeim, sem eru með hugmyndir um nýjan iðnrekstur, að fá úr því skorið, hvort um raunhæfar hugmyndir sé að ræða. Verður í þessu skyni efnt til námskeiða undir leiðsögn manna, sem hafa mikla reynslu úr atvinnulífinu svo og kunnáttumanna á sviði rekstrar. FRÆÐSLUMIÐSTÖÐ IÐNAÐARINS Með starfi endurmenntunarnefndar, sem ráðuneyt- ið skipaði árið 1979, var lagður grundvöllur að átaki til eflingar eftirmenntunar. Lagði nefndin til, að tæknistofnanir iðnaðarins yrðu burðarásarnir í þessu starfi. Hefur nú verið komið á fót svonefndri Fræðslumiðstöð iðnaðarins, sem hefur aðsetur í húsakynnum Rannsóknastofnunar byggingariðn- aðarins á Keldnaholti. Nú er unnið að því að kynna samtökum iðnaðar- ins með hvaða hætti Fræðslumiðstöðin geti aðstoðað við undirbúning námskeiðahalds, sem samtökin telja æskilegt að stofna til. Fræðslumiðstöðin mun fyrst og fremst veita aðstoð á s\ iði námsgagnagerðar og við útvegun og þjálfun leiðbeinenda. A yfirstandandi ári hefur starfsemi Fræðslumið- stöðvarinnar notið fjárveitinga af iðnþróunarfé, er fékkst af aðlögunargjaldi, og í fjárlagatillögum fyrir árið 1982 er gert ráð fyrir 600 þús. kr. framlagi til eftirmenntunar í iðnaði á vegum Fræðslumiðstöðv- arinnar. AÐGERÐIR í IÐNGREINUM Eins og flestum á þessum vettvangi er kunnugt, hef- ur verið unnið að þróunarverkef num í mörgurn iðn- greinum hin síðustu ár. Þannig hefur Samband málm- og skipasmiðja staðið fyrir víðtæku þróunarátaki á sínu sviði. I fyrstu beindist átakið aðallega að innleiðingu flokkunar- og skráningarkerfis, sem nú er að ná til næstum allra greina innan sambandsins. Verið er að Ijúka útgáfu ;í uppsláttarriti unt íslenskan málmiðn- að. Gefinn hefur verið út bæklingur um tölvur, sem á að auðvelda stjórnendum fyrirtækja ákvarðanir, er tengjast vali á tölvum og notkun þeirra. Hrundið hefur \erið af stað átaki varðandi framleiðslu tækja og búnaðar til sjávarútvegs og fiskvinnslu. Starf þetta er unnið með stuðningi frá Iðnrekstrarsjóði, iðnaðarráðuneytinu og sérstökum styrk frá Nor- ræna iðnaðarsjóðnum. 88 Timaril iðnadarmanna

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.