Vikan - 01.01.1959, Síða 19
\
Skreyttur ís
Abætisréttir
Nougatbúðingur.
70 gr. sykur, 2J4 br. matarl.,
80 gr. möndlur, 2 egg,
J/2 1 rjómi, 30 gr. sjitur.
Matarlímið leyst upp, brætt yfir
gufu. Eggjarauðurnar hrærðar hvít-
ar með sykrinum. Rjóminn þeyttur.
Sömuleiðis hvíturnar. Matarlímið
hálfkælt. Hrært út í rauðurnar, á-
samt nougatinu og rjómanum. Sið-
ast eru stífþeyttar hvíturnar settar
saman við. Látið í glerskálar, skreytt
með þeyttum rjóma.
Nougat.
Möndlurnar saxaðar smátt.Sykur-
inn brúnaðm- á pönnu, möndlurnar
settar saman við, hrært í þar til
þetta er hæfilega brúnt og komin
karamellulykt af. Nougatinu hellt á
fitusmurða plötu. Þegar það er orðið
hæfilega kalt, er það mulið með
kefli eða steytt í mortéli.
Karamellurjómabúðingur.
/ I rjómi 1 br. matarlim,
125 gr. sykur, 3 msk. vatn,
3 msk. vatn, 10 möndlur.
Steikarpanna hituð. Sykurinn
brúnaður þar á, hrært í á meöan,
þar til sykurinn er brúnn og jafn.
Pannan tekin af og möndlurnar sett-
ar á og huldar með karamellunni,
látnar á disk, Pannan sett aftur á
eldinn og hituð þar til myndast hvít
froða. Þá eru 3 matsk. af vatni sett-
ar á og hrært i þar til karamellan
er vel jöfn. Sett í skál og kælt.
Matarlímið leyst upp í köldu vatni,
brætt yfir gufu. Rjóminn þeyttur.
Matarlimið hrært út í karamelluna,
síðast er rjómanum hrært saman
við, sett í skál og kælt. Möndlunum
raðað ofan á.
Kaffibúðingur.
4 dl rjómi, 1/ br. matarlím
2 dl kaffi 65 gr. sykur.
Kaffið er búið til eins og venju-
lega, 'nema það þarf að vera vel
sterkt. Matarlímið brætt. Sykurinn
settur í kaffið. Rjóminn þeyttur.
Matarlímið sett saman við kaffið.
Þegar það er kalt, er stífþeyttum
rjómanum blandað saman við. Sett
í skál og kælt. Skreytið með þeyttum
rjóma.
ís með ávöxtum.
2 egg, niðursoðin jarð-
2 msk. sykur, arber,
vanilla, marengskökur.
'Z/2 di rjómi,
Eggin aðskilin, rauðurnar þeyttar
með sykri, vanilla sett þar í. Plvítur
og rjómi þeytt sitt í hvoru lagi.
Rjómanum blandað saman við eggja-
rauðurnar síðan eru stífþeyttar
eggjahvíturnar látnar þar í. Látið í
ísform eða jólakökumótj sem áður
er skolað úr köldu vatní. Þegar ís-
inn er borinn fram, er hann skreyttur
með ávöxtum og þeyttum rjóma,
Marengskökur eru bornar með.
ís með jarðarherjum
ALLSKONAR
HERRA VÖRUR
/v/vv
VIKAN