Vikan


Vikan - 16.06.1960, Page 7

Vikan - 16.06.1960, Page 7
, Kóngurinn óskaði eftir því aði sjá leikritið í Skálholti eftir Kamban. Hann sat að vísu ekki í stúku, af því að hann er svo alþýðlegur, en á eftir tók Klemenz Jónsson á móti honum og sýndi honum leiksviðsbúnað og alla aðstöðu Þjóðleik- hússins. Hér situr hans tign í rakarastólnum, sem Rakarinn frá Sevilla notaði, en til hliðar við hann standa þeir Klem- enz og Hallgrímur Bach- mann ljósameistari. Einn merkasti staður í höfuðborg íslands cr Blóma- og listmuna- kjallari Vilhjálms frá Skáholti. Vilhjálmur bauð upp á kaffi og skemmti kónginum og föruneyti hans á aristókratískan hátt á milli þess sem hann afgreiddi viðskiptavini. Hann gaf hans hátign nýjustu ljóðabók sina, áletraða í tilefni dagsins. Dagurinn var liðinn að kvöldi og kon- ungdómurinn átti stutt eftir. Hans há- tign vissi ekki annan betri stað til kvöldverðar en Lido, og þar var tekið á móti honurn og fylgdarliði hans af glæsimennsku og virðuleika. Hér er Konráð Guðmundsson, framkvæmda- stjóri í Lido, með kónginn á barnum ásamt söngkonunni Lucille Mapp, sem söng i Lido í síðasta sinn þetta kvöld. 4 '4r ■<< v - ; v > i r,J3 Miklir snillingar hljóta þeir að vera í Lido. Hér er lax borinn á borð og voru allir sammála um, að svo snilldarlega hefðu þeir ekki séð mat fram borinn. Það leit út eins og víkingaskip. Sannar- lega konunglegt. Að lokum var skálað fyrir kónginum, og hér er öll hirðin saman komin í Lido. Hans tign var svarin hollusta, enda talið áhættulítið, þar éem aðeins var hálftími eftir af konungdómi hans og sá tími var notaður til þess að aka einn rúnt í bænum og koma hátigninni heim í hvítum Cadillac. Hirðin var alveg dolfallin, þegar hún sá ísinn, sem borinn var fram á eftir. Og hvað haldið þið, að hafi verið undir, nema kápa af Vikunni. í i s

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.