Vikan - 16.06.1960, Blaðsíða 23
VIKAI
Öígefandh VJKAK H.F.
Ritstjóri: Hitstjórn og; auglýsingar:
Gísli SigurSsson (ábm.) SlúphoVH 33.
Auglýsingastjóri: Situur: 35320, 35321, 35322.
Ásbjörn Magiíásson Pósthótf 14ö. _ _ ,
Framkvæmdastjóri: Afgreifisla og dreifing:
Hilmar A. Kristjánsson Dlaðadreif.ing, Miklubraut 15, shm laOi/
Verð í lansasðlu kr. 15. Áskriftarverð er Prentun: Hilmir h.f.
200 kr, ársþriðjungslega, greiSist fyrirfram Myudamót: Myndaraot h.f.
í næsta blaði:
★ Sumarstúlka Vikunnar 1960 — Næsti keppandi er
Sigrún Kristjánsdóttir.
★ Hann stal bíl, hvolfdi honum í Hafnarfjarðarhrauni
— og kenndi draugum um óhappið.
★ Ný glæsileg verðlaunakeppni — Þið eigið að þekkja
úrklippur úr herforingjaráðskorti af íslandi og verð-
launin eru þrjár ferðir um landið.
★ Blámaströnd — grein um Cote D‘Azur, Miðjarðarhafs-
strönd Frakklands.
★ „Reykvíkingar vilja ekki sjá okkur“ — grein um fim-
leikafólk í Ármanni.
★ öræfaferð með Úlfari — myndafrásögn.
★ Dáleiðslukukl — eftir Matthías Jónasson.
— ÞaS var vinur minn, sem bað
mig um að selja þetta.
— En dásamlegt að sjá blessuð
börnin við svona hujjljúfa iðju.
&
fjffUuUaX ^ei
m
Hrútsmerkiö (21. marz—20. apríl): Það er ekki nóg
að gefa góð loforð, þú verður að standa við orð þín.
Eftir helgina berast Þér dálítið einkennilegar frétt-
ir, og mun það koma þér í talsverð vandræði. Taktu
þetta samt ekki allt of alvarlega. Einhver ætlar sér
að hafa gagn af Þér á óheiðarlegan hátt, en þú getur með
kænsku snúið málinu þér i hag. Heillalitur vikunnar er rautt,
en gult getur orðið viðsjárvert.
Nautsmerkiö (21. apríl—21. maí): Ef þú hegðar þér
af skynsemi og lætur ekki smávægileg vandamál
draga úr þér kjarkinn, getur helgin orðið skemmti-
legri en þú þorðir nokkurn tíma að gera þér vonir
um. Við loforðið, sem þú gafst í síðustu viku, getur
orðið erfitt að standa. Reyndu að fá því frestað, því að enginn
er hæfari til þessa en einmitt þú. Heillatala 5.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Vikan verður
þér afar hliðholl í hjartans málum. Þú hugsar oft
til manns, sem þú hefur ekki umgengizt lengi, og er
það miður. Reyndu því að ná aftur kynnum við
hann, það verður ykkur báðum til mikillar ánægju.
Þolinmæði þín hefur verið til fyrirmyndar, og í vikulokin munt
þú einnig uppskera rikulega. Vikan er mikil hamingjuvika
fyrir fólk innan við tvítugt. Heillalitur grænt.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Þú færð að ráða
fram úr verkefni, sem þú hefur lengi þráð að vinrta
að, og um leið munt þú vaxa I áliti. Samt skaltu ekki
vanrækja fjölskyldu þína, því að þá fer illa. Reyndu
að beita svolitið meiri gagnrýni á sjálfan þig, þá
mun allt leika í lyndi. Fimmtudagurinn verður sá dagur, sem
skiptir þig mestu í vikunni. Þá tekur þú mikilvæga ákvörðun.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Lánið virðist ætla
leika við þér í þessu máli, sem þér er svo annt um.
Á föstudag eða laugardag kemur til þín einkenni-
legur gestur, sem getur orðið til þess að breyta
áformum þínum til muna, og þótt þér sé ekki sér-
lega vel við Það, skaltu samt fara að ráðum hans. Það kemur
í ljós seinna að það borgar sig margfaldlega.
Meyjarmerkiö (24. ág.—23. sept.): Taktu ekki mik-
ilvægar ákvarðanir fyrr en eftir helgi. Stjörnurnar
lofa þér því, að eftir helgi muni allt ganga að óskum,
en vara þig við að aðhafast mikið fyrr en eftip
helgi. Þú kynnist nokkrum mönnum og konum, sem
þig hefur lengi langað til að kynnast, en ekki er vist, að þéf
sé hollt að bindast þeim allt of sterkum böndum,
Vogarmerkiö (24. sept.—23, okt.); Þú lendir S ákaí-
lega rómantísku ævintýri á laugardag. Þetta gildir
þó ekki um gift fólk, svo að enginn þarf aö óttast
neitt. Vinur þinn er i vanda staddur, reyndu að
koma honum til hjálpar. Ef til vill verður þú fyrir
óréttlátum ásökunum í vikunni, en stjörnurnar ráðleggja þér
að aðhafast ekki, því að Þá leysir málið sig sjálft. Vertu ekki
of óþolinmóður, þótt þessi maður komi ekki strax.
Drekamerkiö (24, okt.—22. nóv.): Þú ert næstum
búinn að ná takmarki þínu, og þótt þú hafir gert
ráð fyrir því að ná því í vikunni, skaltu ekki láta
þér fallast hendur, þótt eitthvað verði til þess, að
þú getir ekki sinnt þessu máli um stundarsaklr. Þú
verður að sýna fórnfýsi, ef vel á að fara milli þín og kunn-
ingja þíns. Loforðið, sem þér var gefið í fyrri viku, verður ekki
uppfyllt. Helgin verður óvenjuskemmtileg,
Bogmaöurinn (23. nóv.—21, des.): Frumkvæði Þitt
fær sannarlega að njóta sín í vikunni, og þér getur
orðið mikið úr verki. Á vinnustað kemur dálitið
einkennilegt atvik fyrir, sem verður til þess að
breyta áformum þínum og kunningja þíns til
Láttu samt ekki gremju þína bitna á starfsfélögum
þínum, því að Þeir eru alsaklausir.
Geitarmerkið (22. des—20. jan.): Atburður um
helgina verður til þess, að þú lifir I sæluvímu næstu
viku. Þú skalt varast að gera nokkuð vanhugsað í
vikunni, því að fljótfærni þín gæti orðið til þess, að
þú verður leiddur í gildru, sem mjög erfitt er að
losna úr, Þú getur aukið afköst þín til muna, Þessa dagana
virðist gæta talsverðrar leti í fari þínu, einmitt nú, þegar þú
þarft svo mjög að láta þendur standa fram úr ermum.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. febr.); Þú skalt ekki
halda, að þú sért eini maðurinn í heiminum, sem á
sér vandamál. Ef þú lítur björtum augum á tilver-
una, leysast vandamái þín svo til af sjálfu sér. Um
helgina ferð Þú i skemmtilegt samkvæmi, sem end-
ar á nokkuð undarlegan hátt. Varastu að taka ákvörðun í
máli félaga þíns fram að helgi. Þú mátt ekki búast við allt of
miklu af þessari konu. Heillatala 4.
Fiskamerkiö (20. febr.—20. marz): Ef þú sýnir
frumkvæði og verksvit, getur vikan orðið þér eink-
ar ánægjuleg. Þó gerist ekki neitt stórvægilegt í vik-
unni, en hún verður þrátt fyrir það skemmtileg.
Vertu ekki svona öfundsjúkur í garð félaga þinna.
Þeir hafa sannarlega unnið fyrir því, hve þeim vegnar vel.
Þetta getur þú hæglega líka.
muna.
m