Vikan - 25.08.1960, Qupperneq 4
Með Vikunni
á ferð til fjarlægra
landa og
framandi borga
Eþíópía er land mikilla andstæðna. Ef stigið er upp í flugvél og haldið
til þessa fjarlæga lands, birtist manni eyðilegt og mannfátt land, 900.000
ferkílómetrar að stærð, þar sem hafast við aðeins 17 milljónir manna. Addis
Abeba, þar sem búa um 400.000. manna, virðist í fljótu bragði furðulega
vestræn borg. Hins vegar sjást enn í Gondar, þar sem áður var aðsetur
ríkisstjórnarinnar, rústir halla frá 17. öld. Eþíópíumenn búa flestir í litlum
kofum; margir hverjir hafa enn ekki bíl augum litið. En í Gondar er nafn-
toguð læknamiðstöð, sem ekki á sinn líka í Afríku. Keisarinn ferðast um
heim allan til þess að ná betri tengslum við hinn siðmenntaða heim, færustu
sérfræðingar sækja hann heim til þess að siðvæða og iðnvæða landið, __________
en á hinn bóginn verðum við þess áþreifanlega vör, að í Eþíópiu lifa menn
sums staðar eins og þeir gerðu í grárri forneskju: Enn tíðkast þar hið júh'-
anska tímatal, og í stað 1960 er þar nú árið 1952. Þótt reynt sé af mætti
að skipa Eþíópíumönnum sess meðal nútímaþjóða, er þó augljóst, að um
almenna menntun og stjórnarfar eru íbúarnar cnn á miðaldaskeiði. í þessu
landi, þar sem allt stendur á völtum fótum, finnst aðeins ein örugg stoð:
keisarinn Haile Selassie.
Hægur andvari fer yfir höfuðborg Eþíópíu. Þótt Addis Abeba sé rétt
við miðbaug, er loftslag þar eins gott og frekast verður kosið, þar eð
borgin er í 2400 metra hæð. Hvaðanæva berst ilmurinn frá eukalyptus-
trjánum, sem voru flutt um síðustu aldamót til landsins frá Astralíu. Við
göngum eftir einni af hinum fögru breiðgötum borgarinnar. Allt ber með
sér evrópskan svijp. Við stönzum við umferðarljós og beygjum inn i hliðar-
götu, — og skyndilega er sem maður sé kominn inn í myrkur Afríkuskóga.
ASeins tvö hundruð metra frá auglýsingaskiltum kvikmyndahúsanna, sem
auglýsa nýjustu Hollywoodmyndir, sjást leirkofar með stráþökum. Á aur-
ugum stígum leika sér hálfnakln börn, og holdugar konur, tötrum klæddar,
bera vatnsker frá brunninum. Flatarmái Addis Abeba er næstum eins
stórt og flatarmál Parlsar. En á þessu viðáttuflæmi býr ekki einu sinni
hálf miiljón manna. Skipulag er ekkert í borginni. Það væri reyndar
miklum erfiðleikum bundið, þar eð fæstar götur hafa nokkurt nafn. Fyrir
tólf árum voru ekki einu sinni til bílar í Addis Abeba. I dag eru göturnar
troðfullar af bílum.
Á skjaldarmerki Hailes Selassie er Ijónið, verndari landsins. Sjálfur á
keisarinn allt að því þrjátíu ljón. Tígulegt og fagurlimað ljón er tjóðrað
nálægt aðaldyrum keisarahallarinnar. Einnig liggur ljón við dyr óperu-
hallarinnar (þar sem sjaldnast eru sviðsettar óperur). E'n það ljón er nú
reyndar úr steini. Við lá, að styttan fengist ekki reist á staðnum, þar eð
rófan visaði niður, en i Eþíópíu er það aldaforn siður, að allar ljósmyndir
skuli skarta rófunni hátt á lofti.
Það er næstum ógerningur að ferðast um landið án þess að verða var
við mátt keisarans. Hinn smávaxni, næstum glettnislegi einvaldur ber
höfuðið hátt, eins og sæmir hátign allra hátigna. Hann er Negus
Negesti, konungur konunganna, — stjórnar elzta riki veraldar og
rekur ættir sínar til Salómons hins vitra og hinnar fögru drottningar
af Saba. Hann gengur undir ýmsum nöfnum: konungurinn í hásæti
Salómos, ijónið sigursæla af ættbálki Júda. — Hann er eini einvald-
urinn í heiminum, og orð hans eru lög og vald hans ótakmarkað.
Furðulegur kafli í sögu Eþíópíu er innrás Itala í landið árið 1935.
Þar eð enginn veitti Eþíópíumönnum lið, hrópaði Haile Selassie:
„Guð og saga mannkynsins munu minnast þessa ódæðis!" En þegar
einvaldurinn sneri heim eftir langa útlegð, verndaði hann Itali
fyrir hefnigjörnum lýðnum og bauð þeim jafnvel að dveljast i land-
inu undir sinni stjórn. Nokkrum árum síðar skall á styrjöldin í
Kóreu, og urðu þá Eþiópíuinenn einna fyrstir til þess að senda
þangað liðsstyrk.
Allt frá því er Menelik II. keisari valdi Addis Abeba, — Nýja
blómið — höfuðborg landsins í byrjun 19. aidar, hafa ferðamenn
sótt æ minna til kastalanna í Gondar. Merki hins liðna sjást sífellt
minna, og læknamiðstöðin í borginni er áþreifanlegt. tákn framfara
Þorpið Lalibela liggur í hjarta Eþíópíu. íbúar þess eru ákaflega trú-
hneigðir, og áttundi hver maður Iærir til prests.
I