Vikan - 25.08.1960, Síða 6
Meinleg örlög margan hrjá
Náttúruhamfarir og einræðis-
herrar valda jafnan ólgu og illum
tíðindum. Við náttúruhamförum er
víst ekki mikið að gera, og það
lítur ekki heldur út fyrir í bráð,
að mannkynið öðlist þann þroska,
að ofbeldisseggjum verði heft för-
in á tind einræðisvalds. Keynslan
af einræði hefur jafnan orðið hin
sama, og ætti þó engum að dyljast,
að með nútíma-hernaðartækni eru
einræðisherrar hættulegri en
nokkru sinni fyrr. E'inræði fylgja
byltingar, og byltingum fylgja
hreinsanir og aftökur, því að bylt-
ingin étur börnin sín.
Myndin við hliðina er frá Chile.
Þar urðu geysilegir jarðskjálftar
s.l. vor, og þarna sést, hvernig
malbikuð gata hefur rifnað og
gengið á misvíxl. Tugþúsundir eru
heimilislausar eftir hamfarirnar,
en um þær er þó engan mannlegan
mátt að saka.
Myndirnar þrjár að neðan eru
frá Cúbu. Þar hefur soðið upp úr
stjórnmálapottinum, og Castró og
menn hans hafa gengið rösklega
fram í Því að farga fylgismönnum
fyrrverandi einræðisherra, Batista.
Það er ekki verið með neinar
málalengingar eða óþarfa vafstur.
Á þessum myndum sjást hermenn'
Castrós uppgötva mann á götu,
sem þá grunar, að hafi verið and-
stæðingur. Hann er umsvifalaust
tekinn, dæmdur til dauða, prestur
látinn tala við hann örfá orð, og
síðan er aftakan framkvæmd á
staðnum. Sænska blaðið Se segir,
að þetta hafi samtals tekið eina
minútu. Það var amerískur ljós-
myndari, sem náði myndunum, og
hlaub hann Pulitzer-verðlaunin
fyrir þær. jl.
í
Þeir fundu hann á götu og
og- réttarhöldin og aftakan
voru framkvæmd á staðn-
um.
6
VIKAN
Nú eru þeir
að verða
uógu gamlir
til þess að
deyja
Jósef
Þeir voru fjórtán ára haustið 1956, þegar byltingin varð í
Ungverjalandi. Þeir voru þá eins og hver önnur böm, sem verða fyrir
áhrifum af umhverfinu, og meðal annars léku þeir „föðurlandsvini“,
— það er að segja, þeir hengdu smástyttu af kommúnistaleiðtoga
upp í staur. Rauða lögreglan tók þá alla fasta. Síðan eru liðin fjögur ár,
og þeir eru enn í fangelsi, — verða flestir 18 ára á næstunni.
Nú hefur það komið i ljós nýlega, hvers vegna þeim er haldið í
fangelsi. Þeir voru allir dæmdir til dauða, — líklega fyrir að taka þátt
í byltingunni eða að óvirða kommúnistaleiðtogann. En samkvæmt
lögum má ekki taka mann af lífi, fyrr en liann er fullráða, og í
Ungverjalandi verða menn fullráða 18 ára. 5n Kadar hefur þótt borga
sig að halda þeim f jögur ár í fangelsi til þess að geta hefnt sin
á þeim, sem tæplega vissu, livað þeir voru að gera.
Jósef er einn af þessum unglingum. Systir hans, Anna, hafði verið
drepin í byltingunni, og Jósef var reiður við kúgarana. Hann stóð
í liópnum, sem var tekinn, og það voru raunar fleiri hópar teknir.
1 lögregluríki er það illa séð, að menn haldi sig í hópum. Það er
aldrei að vita, hvað menn eru að ráða með sér. Þá er öruggara
að hafa þá i fangelsi.
Jósef verður 18 ára í haust. Á afmælisdaginn sinn verður hann
hengdur. Þá hefur lögregluríkið lokið hefnd sinni. Móðir hans flýði
til Svíþjóðar og er þar. Henni var nýlega skrifað um þetta og þar
með, að hún fengi fötin lians send að honum látnum. Það
verður kveðja til liennar frá stjórninni.
Þetta mál var gert að umtalsefni í sænska þinginu, og þingmenn
voru sammála um að reyna að koma í veg fyrir þennan svívirðilega
glæp. En hvernig verður það hægt?
VIKAN