Vikan - 17.11.1960, Side 10
Hér sjáum við svipmynd úr eldhúsi flugvélarinnar. Flug-
freyjan er önnum kafin að framreiða lostætið, sem brátt
verður borið fyrir farþega.
<1
Myndin þarfnast tæplega
skýringar. Hér sjáum við,
hvað framreitt er á máltíð-
um fyrir hvern einstakan
farþega. Engin undur, að
gott þykir að fljúga með
Loftleiðum.
Verðlaunakeppnin mun standa yfir í sex blöðum, og
þeir, sem vilja taka þátt í henni, eru beðnir að halda
saman öllum úrlausnum og senda þær í einu lagi til
blaðsins að keppninni lokinni. Lausnir verða því að-
eins teknar til greina, að þær séu skrifaðar á getrauna-
seðilinn, sem prentaður er í hvert blað og hægt er að
klippa út.
Lofleiðir veita farþegum sínum margvíslega fyrirgreiðslu
þeim að kostnaðarlausu, frá því er þeir leggja af stað og unz
komið er á leiðarenda. Þeir fá ýmiss konar veitingar um borð
í flugvélunum, jafnvel koníak með kaffinu, mat og drykk á
áningarstöðunum. Þeir fá blöð og tímarit að lesa sér til dægra-
styttingar — að ógleymdri samfylgd hinna góðkunnu flug-
freyja félagsins.
Enda þótt farþegum sé ekki gert að greiða sérstök gjöld
vegna þessa, þá kostar þó öll þessi fyrirgreiðsla félagið vitan-
lega mikið fé. Getraunin fjallar um þetta atriði að þessu sinni,
og Vikan spyr: ! i í ! •
Hve mikið greiddu Loftleiðir < fyrir farþega-
þjónustu árið 1959:
Kr. 7,937,838,28
- 8,355,671,25
- 8,958,775,30