Vikan


Vikan - 22.12.1960, Page 2

Vikan - 22.12.1960, Page 2
Skemmtikraftar með jarðarfararsvip Vika mín góð. Mig langar aö lauma að þér nokkrum orSum um danshljómsveitirnar okkar hér í höfuSstaSn- um. Þær eru nú orSnar æSi margar og aS von- um eins misjafnar, en eitt eiga þær allar sam- eiginlegt, hvort sem þær eru lélegar eSa góSar: Hljómsveitarmennirnir eru allir eins og steyptir í eir eSa þá eins og þeir séu viS jarSarför. Þarna standa þidir, mennirnir sem eiga aS skemmta fólkinu, gersamlega hreyfingarlausir, meS munnvikin lafandi niður og fýlan skín út úr þeim. Væri ekki hægt að koma því inn í gegn um hinar þykku höfuðskeljar þeirra, að til þess að skemmta fólkinu verða þeir að vera svolítið skemmtilegir sjálfir. Þeir ættu t.d. aS taka Los Paraguayos sér til fyrirmyndar, það eru karlar sem ekki eru grónir við gólfiSI L. A. Við höfum fengið fleiri svipuð bréf um svipað efni, og svo er að sjá sem almenn ó- ánægja ríki með þessa hlið hljómlistarmann- anna okkar, sem annars eru viðurkenndir sem allgóðir spilamenn, a.m.k. flestir þeirra. Rétt er það, óskandi væri að þeir sýndu svo- lítið meira líf á sviðinu, væru bæði hreyfan- legri og kátari í allri framkomu. Leynivínsala Sæll Póstur! Ég þakka þér allt gott og skemmtilegt, sem þú hefur flutt, en hitt máttu liirða sjálfur. Fólk er að tala um sprúttsalaplágu, og lögreglan er alltaf á harðahlaupum eftir þessum greyjum, sem að mínu áliti og margra annarra eru ómissandi, en hvernig ætla laganna verðir að komast fyrir það meðan Ríkinu er lokað á stundinni 6. Ef Ríkið væri opið, við skulum segja eins lengi og dans- húsin, þá mundi þetta stórminnka, ef ekki hverfa alveg, öllum aðilum til stóraukinna þæginda, að ég 'tali nú ekki um verðmuninn, og hann er ekkert lítill. Verð á réttu er kr. 170 en á svörtum 240 (brennivín). Með þökk. TogarasjómaSur. Ég var að hugsa um að hirða þetta sjálfur, en sá mig um hönd á síðustu andrá. Mér sýnist sem sé, að þú sért ekki alls kostar á- nægður með sprúttsalapláguna sjálfur, þar sem þú ræðir um leið til bótar á henni. Þessi leið hefur verið rædd áður, eins og þú vænt- anlega veizt en ég hef ekki heyrt að fram- kvæmd á henni sé í nánd. „Forskot" Heiðraði lesari! Mér finnst, að þeir, sem búa utan Reykjavíkur liafi ekki sambærilegar vinningslíkur við þá er i Reykjavík búa og hafa Listasafn ríkisins við hendina, ef svo mætti segja. Ekki efast ég um, að blað yðar er ekki siður keypt úti á landi. en í Reykjavík, og ætti þessvegna að gefa öllum jafnar líkur, en ekki svona „forskot" fyrir Reylc- víkinga, svo margt annað hafa þeir fram yfir okkur, þó að jafnágætt blað og Vikan fari ekki einnig að hlaða undir rassinn á þeim. Vertu blessaður Gestur Kristinsson. Suðureyri, Súgandafirði. Mig minnir, að ég hafi svarað svipuðu bréfi í síðustu viku, eða vikunni þar áður, og hef sáralitlu þar við að bæta. Þó sakar ekki að geta þess, að það er staðreynd að Vikan er mun meira keypt í Reykjavík en annars staðar á landinu, svo nærri lætur að 80—90% af kaupendum blaðsins séu búsettir í Reykja- vík. Það má því með sanni segja, að Reyk- víkingar „hlaði undir rassinn“ á Vikunni, en ekki Vikan „undir rassin“ á þeim. Sögurnar vantar Kæra Vika. Ég er I miklum vandræðum og þess vegna langar mig til að biðja þig um að hjálpa mér. Nýsmíði - Skipa- og vélaviðgerðir Vélaverzlun HÉÐINN VÉLAUMBOÐ annast VÉLAKAUPIN. og tæki á hagstæðustu verði. — Leitið því til vor með vandamál yðar á sviði Hvers konar vélar véltækninnar HÉÐINN hefur um árabil leitazt við að vera í fararbroddi. íslenzkrar tækniþróunar ~ HÉÐINN = Ué€cjU/n£oð Seljavegi 2 — Reykjavík — Sími 2 42 60 (10 línur) 2 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.