Vikan


Vikan - 22.12.1960, Blaðsíða 19

Vikan - 22.12.1960, Blaðsíða 19
Kristín Einarsdóttir. skemmtikraftar Ein er sú stúlka, sem ekki hefur komið mikið fram, en alltaf vakið fádæma athygli. Er hún aðalvon okkar í listrænum tilburðum um Þessar mundir. Kristin Einarsdóttir heitir hún og afgreiðir fótaútbúnað í Skóbúð Reykjavíkur. Nú fer sá tími í hönd, sem Reykvíkingar þrá, vetrarskemmtanatíminn og þá eig- um við kost á að sjá Kristinu í ein- hverju samkomuhúsinu. Hún er 16 ára og ólofuð, kroppur mikill. — Hefurðu nokkurn fastan samn- ing við skemmtistaðina? — Nei, þeir bara hringja í mig og svo kem ég ef ég get. — Eru þeir ekki byrjaðir að hringja? — Jú, jú. -— Ætlarðu að leggja þetta eitt- hvað frekar fyrir þig, fara út eða þess háttar? — Ég er að læra hjá Jóni Valgeir núna, en ætti ég peninga, þá færi ég til útlanda. Meira fáum við ekki að vita því fólkið kemur i sifellu inn og vill sjá skó og máta skó og kannski kaupa skó. Enginn má við margnum, svo við verðum að halda okkar leið, en þó fáum við eina mynd að skilnaði til birtingar. bréf Viltu birta þetta fyrir mig með kærri kveðju til Ómars Ragnars frá einlægum ,,aðdáanda“ (hm). (Þetta má syngja við lagið „Feel SO Fine"). 1 stuði ég er og ég ætia að skemmta mér ég er svaka skvísa og marga mundi fýsa að bjóða mér í partý sem gæti orðið fútt í en ég vil bara einn það er sko enginn jólasveinn. Hann er svo „bright" en fattar ei hvað ég er sæt alveg óð í geimið en svona inn við beinið sálin á í brösum þeir kalla það víst hrösun ég dey af ást ef lengi svona á að þjást. 1 stuði ég er nýbúin að húkka mér rokk og roll hér hljómar og hann heitir Ómar og glanna vel sér sómar rauðhærður og „liðkjó" með englahár en hann er alveg svaka klár. Mér líður svo vel hjá Ómari ég alsæl dvel ó hann er svo kammó og ofsalega djammó fyrir seglum þöndum með mig í báðum höndum hann æðir um baki brotnu á buxunum. kvikmyndir Jólamynd Nýja Bíós er hvorki meira né minna en „Einskonar bros“. Franeois Sagan varð heimsfræg á einni nóttu fyrir þessa sögu. I kvik- myndinni er hún á þessa leið: Domini- que Vallon (Christine Carere) er ást- fangin af Bertrand Griot (Bradford Diilman), sem er stúdent við Svarta- skóla. En er hún hittir Lue Ferrand (Rossano Brazzi) frænda Bertrands hænist hún viljalaust að honum, en hann er ekki við eina fjölina felldur. Tekst nú ekki betur til en að hún missir áhugann á Bertrand og fer með Luc til Rivierunar í vikutíma. Bn slikt kann ekki góðri lukku að stýra, enda kemst kona Lucs að þessu öllu og það er rétt með naumindum að hann geti fengið hana til að fara ekki frá sér. En Bertrand þykist nú alls ekki þekkja Dominique lengur og þarf ekkert smáræði af mann- raunum til að sameina þau aftur. En Könum er ekki fisjað saman og tekst rétt einu sinni enn að bjarga öllu í síðasta atriði. Rétt er að geta þess, enda þótt við getum ekki birt myndir, þá mun Rossano Brazzi og Christine Carere. Trípólibíó sýna einhverja vinsælustu Hróa Hattar mynd sem gerð hefur verið. Leikur Errol Flynn i henni ásamt Olivia deHavilland og Basil Rathbone. Þarf ekki að orðlengja það frekar, allir kannast við Hróa Hött. veiztu aö... Debbie Reynolds. . . . Debbie Reynolds sem var gift hon- um Eddie Fischer, er alls ekki eins óhamingjusöm út af skilnaði þeirra og hamrað var á í bandarískum blöðum. Allan tímann sem hún var að láta taka af sér grátmyndir var hún í slagtogi við einhvern olíu- baróninn frá Texas. Ja, þetta kven- fólk. .. . þétt stutt hár er tákn um fram- takssemi og mjúkt hár sýnir mein- leysi, jafnvel hugleysi. . . . kröftugur skeggvöxtur sýnir karl- mannlega lund en lítill skeggvöxtur undanlátssemi og framtaksleysi. .. . pardusdýrið getur hlaupið þrisvar sinnum hraðar og vel það, en Armin Hary fljótasti maður jarðar. . .. enskur biskup, sem kom til New York á dögunum var spurður, þegar hann gekk af skipsfjöl hvort hann ætlaði að líta við á næturklúbbum borgarinnar og hann svaraði með spurningu: Eru nokkrir næturklúbb- ar í New York? Og næsta dag var fyrirsögnin í blöðum: Það fyrsta sem enskur biskup spyr um er hann stíg- ur á land er hvort hér séu nokkrir næturklúbbar. . . . Cantinflas, sem lék Passepartout í myndinni 80 dagar kringum jörð- ina er hæztborgaði kvikmyndaleik- ari í heimi og þó hefur hann ekki sézt í nema einni mynd utan Suður- og Mið-Ameríku. óskamyndin Heimir Guöjónsson Loksins hefur tekizt að fá mynd af Heimi Guðjónssyni markmanni K.R., en þeir unnu sem kunnugt er bikar- keppnina og eru auk þess Reykjavík- urmeistarar þetta keppnisárið. Satt að segja var hér um bil ógerlegt að koma þessu í verk, en fyrir snarræði ljósmyndarans tókst samt að góma drenginn. Við vonum að aðdáendum Heimis þyki hún góð. hljdmplötur Seint í haust kom út plata, sem sjálfsagt á eftir eða gerir nú þegar mikla lukku, en oitkar allravinsæl- ns+i gr'nsöngvari Ómar Errr teygir tón'nn og oröið á alla vegu og sjálf- an sig lika. svo menn ættu að geta hleg'ð þessar 5 eða 6 r-.in., serr verið ■rr ð spila plötuna. Á öðrum stað í op-umni bir': 6g texta nokkurn Ó-.iari til heiðurs. Hljómsveit Jans Moráveks leikur undir eftir beztu getu og útgefandi er hljóðfæraverzl- un Sigriðar Helgadóttur. skrítlur „Hvernig liöur Nonna á sjukra- húsinu ?“ „Ég liugsa aö hann komi ekki þaö- an út í bráÖ.“ „Af liverju helduröu ]iaö? Talaöir þú viö lcekninn?“ „Nei, en ég sá hjúkrunarkonuna.“ „Nú er liún Stína loksins komin í hjónabandiö." „Og liver er sá hamingjusami f“ „Pabbi hennar.“

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.