Vikan


Vikan - 22.12.1960, Blaðsíða 9

Vikan - 22.12.1960, Blaðsíða 9
á allt bættist svo Það, að ég sá í dönsku blaði myndir af svo „smart“ púðum, sem ég varð að sauma. Blessuð góða, hreinasta vitfirring auðvit- að, en svo sannarlega borgaði það sig. Þú hefðir bara átt að sjá svipinn á mágkonum mínum, þeg- ar þær sáu alla dýrðina. Æ, þú, veizt nú, hvernig þær eru. En sem sagt, þarna sem við sátum mitt í öllu draslinu og vissum ekki okkar rjúkandi ráð, segir Kalli spekingslega: Öll þessi endemis- læti fyrir jólin og um jólin ætti að banna með lögum, að minnsta kosti ætti að skipuleggja allan undirbúning nákvæmlega. Já, þetta sagði Kalli, þú veizt nú, hvernig hann er, vill alltaf skipu- leggja alla hluti. Nú, svo ræddum við málið frá öllum hliðum og ákváðum loks, að á næstu jólum skyldi þetta verða öðruvísi. Og við létum ekki sitja við orðin tóm. Kalli settist við ritvélina og bjó langan lista yfir allt, sem við ætluðum að gera, og allt, sem við ætluðum ekki að gera, og þar voru efst á blaði alls konar ákvarðanir við- víkjandi fjölskyldu Kalla, svo sem eins og að hætta að hafa hana í kaffi á aðfangadagskvöld og líka leggja niður þann ljóta vana að reyna sí og æ að gera eitthvað, sem aðrir kunna að öfunda mann af. Þegar á þriðja í jólum hefjast svo sjálfar framkvæmdirnar með því, að Kalli kaupir helling af jólakortum og skrifar á þau. — En sniðugt hjá ykkur, get ég skotið inn i, svona rétt á ská, meðan Kata kastar mæðinni. — Já, þú segir það, hlær vinkona mín. — Við gerðum bara annað, sem var ekki alveg eins sniðugt, við létum kortin nefnilega á svo góðan stað, að við getum hvergi fundið þau. Við erum búin að umsnúa öllu, og nú er ég farin að hallast að því, sem Kalli heldur fram, að ég hafi kastað þeim eða bara sent Þau strax. Þvílikt grín. Ég hefði viljað sjá framan í vini okkar, þegar þeir fengu kort númer tvö frá okkur eftir jólin. Ann- ars hefðum við nú samt þurft að skrifa nokkur upp aftur. T. d. fluttu þau Sigrún og Hans í sum- ar, eins og þú veizt, svo að á þeirra korti var vitlaust heimilisfang, og Ella og Grimur eru í Kaupmannahöfn, svo að þeirra kort hefði líka farið í tunnuna, og Jóhannes er giftur, og eitt- hvað fleira var það nú. En hvað er þetta á móti því, sem skeði í gær. Tengdamamma átti afmæli, og það fyrsta, sem ég rak augun i, þegar ég kom til hennar, var dúkur, sem hún sagði, að Lilja hefði gefið sér. Hugsaðu þér bara, — i sumar keypti ég sams konar dúk handa henni i jólagjöf. Þvílikt reiðarslag. Heyrðu, getur þú ekki keypt dúkinn af mér? Þá hefurðu jólagjöf handa ein- hverri. Ég vildi gjarnan hafa hann sjálf, en tengdamamma er ekki af þeirri sortinni, sem sætt- Ir slg við, að aðrir í f jölskyldunni skarti með sömu hlutunum og hún. Meðal annarra orða: Það getur verið, að ég fái agalega fína kökuuppskrift hjá Ollý, hún fékk hana hjá mágkonu sinni, þessari amerísku. Ef ég fæ hana, skal ég gefa þér hana, viltu það? — Já, blessuð gerðu það, það er svo gaman að bera fram nýjar kökur í jólaboðunum. — Já, ég hlakka svo til að heyra, hvað mág- konurnar segja um hana, hún er víst agalega sérkennileg. — Mágkonurnar, varstu ekki búin að ákveða að gefa þeim fri á jólunum? — Jú, en blessuð vertu, það yrði svo mikil sprenging, að ég þori ekki að fara út í Það. Heyrðu annars, hvernig finnst Þér ég ætti að hafa eld- húsið? Okkur langar svo til að mála það fyrir jólin. Ég ætla að fara að segja, að mig langi mest til að mála mitt eldhús rautt og grátt, en þá hrópar Kata: — Hamingjan hjálpi mér, hvað er ég að hugsa, — ég, sem ætla að skreppa ofan i bæ. Það á að selja svo „smart“ jóla-plastefni í dúka og eld- húsgardínur hjá Haraldi. Ég verð að ná mér í nokkra metra. Bless, ég tala við þig seinna. Jólasaga eftir Guðnýju Sigurðardóttir: uðLij^ að jölUm Eftir jólin i fyrra lofaði ég sjálfri mér að gera jóla- hreingerninguna í september, og kaupa jólagjafir á miðju sumri í stað viku fyrir jól, að skrifa öll jólakortin fyrsta desember og siðast en ekki sizt að láta mér ekki detta i hug að mála eld- húsið fyrir jólin. f efstu línuna skrifa ég stórum stöfum þessa frumlegu og djúpt hugsuðu setningu: Það, sem ég þarf að gera fyrir jólin. VllíAtf 9

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.