Vikan - 22.12.1960, Síða 26
Fyrir hverju er draumurinn?
Draumspakur maður ræður drauma fyrir lesendur Vikunnar
Ef yður dreymir þá drauma, að yður leiki forvitni á um þýðingu þeirra, þá skrifið Vikunni,
pósthólf 149 og bréfinu verður komið til draumráðningamannsins. Ráðning kostar ekki neitt,
nema menn vilji fá skriflegt svar, beint frá draumráðningamanninum. Þá kostar ráðningin
50 krónur og bréfið verður að láta í ábyrgð.
DraumráSandi Vikunnar.
Mig dreymdi nú fyrir skömmu að ég stœði
lieima, fyrir sunnan húsið, og horfði til lofts.
Sá ég þá bjarta stjörnu ljósbláa að lit, en þegar
ég horfði á hana, þá springur hú neða splundr-
ast og verður við það álbjart. Eldneista sá ég
þá eða giæringar en út úr þessu kemur eldrák,
sem stefndi í boga til jarðar.
Mér fannst einhverjir fleiri vera að horfa á
þetta, og segi ég við þá: — Þetta sér maður víst
ekki nema einu sinni á ævinni. Ekki var ég neitt
hræddur, en datt í hug að svona gæti jörðin
farið, og var hálfleiður yfir þvi.
Mér fannst vera myrkur þegar þetta gerðist,
en alstirndur himinn, en þessi stjarna vera ein
af þeim björtustu.
Gaman væri að fá einhverja ráðningu á þessu
HvaÖ segja stjörnurnar um hcefileika yOar,
möguleika og framtíðf ViljiÖ þér fá svar viö þessu
þá sendiö upplýsingar um nafn, heimilisfang og
ár, fæöingarstaö og hvenær sólarhringsins þér
fæddust ásamt greiöslu i umslagi merkt pósthólf
2000 Kópavogi og svariö mun berast yöur meö
pósti.
hauslegt yfirlit (sólkort) ........ kr. 50.00
Lauslegt yfirlit meö hnatijfstööum .. — 100.00
Spádómur fyrir 1 ár kostar......... — 200.00
Nákvæmt yfirlit meö hnattafstööum .. — 500.00
AÖ gefnu tilefni tökum viö fram aö fœöingar-
stund má helzt ekki skakka meira en 15 minútum.
Bréfiö veröur aö láta í ábyrgöarpóst.
Þór Báldurs.
frá ykkur við tækifæri. Mér fannst draumurinn
boða mér eitthvað, eða snerta mig á annan hátt.
Spakur.
Svar til Spaks.
Þessi draumur táknar missi og er þá venju-
lega um missi vinar að ræða, þannig, að um
vinslit sé að ræða. Hér er um að ræða hlut,
sem þú taldir vera öruggan en brást þér al-
gjörlega að’ óvörum. Eftir síðari hluta
draumsins að dæma hefurðu í fleiri horn að
líta eftir vinum, svo að ekki skaltu örvænta.
Herra draumráðandi.
Mig dreymdi að ég var frammi í eldhúsi i
ibúð minni við vanaleg störf. Geng ég þá fram
á gang og hitti þar manninn minn. Við erum ný-
skilin. Hann var dapur í bragði og segir: „Þetta
gengur ekki vel.“ Þá finnst mér ég vita, að hann
hafi verið á sáttafundi. Hann ýtir mér á undan
sér inn í herbergi og lokar hurðinni og segir:
„Ég vil þig heldur en þessa flennu þarna niðri“,
og kyssir mig. Svo förum við fram úr herberg-
inu og hittum gamla, gráhærða konu og ég vissi
að hún var sáttasemjari. Hún hét Emma frá
Felli.
Ása.
Svar til Ásu.
Kossar í draumi þegar þeir eru fram-
kvæmdir á þennan hátt eru fyrir vonbrigðum
og leiðindum. Það sem um er að ræða er
hvort þér auðnast að halda fyrrverandi
manni þínum eða ekki, en ég mundi álíta
að gráhærða konan sem lokatákn draumsins
mundi boða að þið næðuð ekki saman aftur.
Eitt sinn kvað skáldið: „Alltaf má fá annað
skip og annað föruneyti."
Herra draumráðandi.
Mig dreymdi eina nóttina að ég var i stóru
tjaldi og þar inni var vinkona mín, í snjóhvit-
um klæðum og í vöggu lá nýfætt barn, sem
mér fannst liún eiga sjálf, hún er trúlofuð
og barnlaus. Barnið var með óskaplega stórt
liöfuð og ferkantað, en að öðru leyti eðlilegt.
Inni i tjaldinu var aðeins grænt gras á gólf-
inu, útbreiddur svefnsófi, sem breitt var yfir
hvítt klæði. Þar á var staflað óskaplega miklu
af livítum þvotti samanbrotnum og náði staflinn
svo að segja upp í loft. Fannst mér vinkona
mín brosa og segja: Lízt þér ekki vel á barn-
ið mitt? Og við það valcnaði ég.
Björg.
P. s. Hvað lestu úr skriftinni?.
Svar til Bjargar
Draumurinn er allur tákn birtu, velgengni
og hamingju. Barnið sem tákn ávaxtar ástar-
innar, er hér tjáning um gott og farsælt ástar-
líf vinkonu þinnar. Grasið er venjulega tákn
auðlegðar eða mergðar. Gæti hér einnig verið
tákn þess að vinkona þín ætti eftir að eignast
mörg börn. Hinn útbreiddi svefnsófi mundi
hér vera tákn um hógvært líferni og hin
hvíta ábreiða merki um heiðarleika og hrein-
leika.
Skrift þín er með ágætum, Björg, og
persónuleiki þinn eftir því.
Bókarmerki.
Byrjið á því að klippa út 15 cm
langa og 5 cm breiða ræmu úr pappa
eða einhverju öðru þykku efni, og
eftir að hafa klippt annan endann i
odd, klippið þið jafnstóra ræmu af
lituðum pappír með lími aftan á, eða
ef þið hafið hann ekki, þá pappir sem
þið hafið litað sjálf eftir smekk og
síðan límið þið hann á pappann. Bak-
hliðina málið þið einnig í einhverjum
smekklegum lit. Síðan náið þið í
kalkipappír og takið ugluna í gegn.
Með saumnál búið þið svo til smágöt
með jöfnum millibilum á útlínur og
aðallínur uglunnar. Siðan er farið
upp og niður götin með garni; notið
þann lit, sem þið viljið. Þegar þið
Þapnig hafið farið einu sinni í gegn-
um öll götin, þá hafa myndazt eyður
inn á milli, svo þið verðið að fara
aftur yfir með garni, að lokum mál-
ið þið ugluna, og hún þarf ekki endi-
lega að vera eins og uglur eru venju-
lega á litinn, það getur verið mjög
skemmtiiegt að hún sé í einhverjum
ailt öðrum litum.
E'fni: 1 örk litaður pappir með lími
aftan á, garn, pappi og helzt kaiki-
pappír.
Saltþraut.
Hellið svolitlu salti niður á borð og biðjið svo einhvern að fjarlægja saltið
án þess að hreyfa við saltinu eða borðinu. Það má ekki heldur blása á
saltið eða hrista borðið. En lausnin er þannig að þið nuddið greiðu fast við
efnisbút og haldið henni svo niður að saltinu. Rafmagnið í greiðunni sér svo
um afganginn.
Flókin fjölskyldutengsl.
Tvær konur sátu að hádegisverði með mönnum sinum, mönnum mæðrr
sinna, feðrum sínum, tengdafeðrum sinum, og barnsfeðrum sínum. HvaC
getið þið ímyndað ykkur að þeir hafi verið fæstir sem voru með þeim?
Lausn á bls. 40.
... því að yður er i dag frelsari
l'æddur, sem er Kristur Drottinn, i
borg Davíðs. Og liafið þetta til
marks: Þér rnunuð finna ungbarn
reifað og liggjandi í jötu. Og i sömu
svipan upphófust englaraddir og lof-
uðu guð og sögðu: Dýrð sé guði i
upphæðum, og friður á jörðu með
þeim mönnum, sem hann hefur vel-
þóknun á ... Hugleiðið þetta, börnin
góð, og minnizt þess ætíð, í hvaða
tilefni jólin eru haldin og hverjum
þið eigið að þakka alla þá ánægju og
þann hátíðleika. Gleðileg jól!
BARNAGAMAN
26 vucau.