Vikan - 22.12.1960, Blaðsíða 27
'' x: • :
NÆRFATAGERÐ I N LAUGAVEGI 31
$
J7jjfiftuÍna í
.v.v.S
.v.v.v
♦.v.v.v
sr.v.v
v.v.v.v.
svXvXr
v*v*v
Hrútsmerkiö (21. marz—20. apr.): Samskipti þin og
konu, sem öfundar þig meira en góðu hófi gegnir,
verða ekki beint þægileg. Einn vinur þinn gæti orð-
ið til þess, að þessi kona hættir að angra þig. Líkur
á einhverju óvæntu í fjölskyldunni, einkum mun
þetla þó koma þér þægilega á óvart. Þú skalt fara varlega i
peningamálum, því að smáútgjöld vikunnar eru meiri en þú
gerir ráð fyrir. Heillatala 7.
Nautsmerkiö (21. apr.—21. maí): Þú stendur þig
ekki sem skyldi á vinnustað. Þú ert annars hugar
út af einhverju, sem gerðist i síðustu viku. Sannaðu
til, — fyrr en varir rætist úr þessu. Hætt er við að
þú gangir of langt í samskiptum þínum við einn vin
þinn og ætlist allt of mikils af honum. Gætir þú sjálfur upp-
fyllt þær kröfur, sem þú gerir til hans?
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Yfirleitt virð-
ist þessi vika ætla að verða mjög ánægjurík. Þó er
hætt við að þér verði á eitthvert glappaskot, sem
þér hærra settar menn fella sig engan veginn við.
Þú veizt vist bezt sjálfur, hvernig ber að bliðka þá.
Þú virðist vera orðinn allt of veraldlegur. Þú ert hættur að
hugsa um andlegan þroska þinn og lætur peninga og veraldleg
gæði glepja þig um of. Bættu úr þessu hið fyrsta.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júli): Þú munt eiga
mjög annríkt í vikunni, en ef þú uppfyllir þær kröf-
ur, sem gerðar eru til þin, mun það verða til þess að
gera þér lifið léttara næstu vikur. Þú ert ekki nógu
framgjarn lætur þig framtíð þína litlu skipta. Það
er hverjum manni brýn nauðsyn að gera sér framtiðaráætlanir.
Laugardagurinn verður viðburðarríku.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þú virðist hafa það
á tilfinningunni, að þú takir eingum framförum og
allir séu á móti þér. Þetta er reginmisskilningur.
Liklega stafar þetta að miklu leyti af þvi, að þú
ræðst yfirleitt í verkefni, sem eru þér algerlega
ofviða. Um helgina munt Þú heyja kapphlaup við tímann. Ef
þú sigrar, verður næsta vika þér afar ánægjurík.
Meyjarmerkiö (24. ág.—23.sept.): Margt bendir til
þess að breytingar á högum þínum séu í vændum.
Nú ríður á að haga sér af skynsemi, til þess að þessar
breytingar verði þér í hag. Hætt er við að misskiln-
ingur valdi því, að þú og ástvinur þinn fjarlægist
hvort annað. Hollast væri ykkur báðum að tala út um málið.
Vogarmerkiö (24. sept—23. okt.): Þú skalt varast að
tka afstöðu til mála, sem Þér eru óviðkomandi í
vikuni, ellegar muntu hljóta verra af. Þú getur orð-
ið til þess að tveir vinir þínir, sem ekki hefur komið
sem bezt saman undanfarið, nái sættum. Láttu ekki
ímyndunaraflið hlaupa með þig í gönur um helgina. Amor
verður á ferðinni, og ekki lætur hann þig í friði.
DrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Þú munt þurfa að
að leysa verkefni i vikunni, sem í fljótu bragði virð-
ist óleysanlegt. En ef þú færir þér fyrri reynslu i
nyt, muntu komast að raun um, að með einu móti
má ráða fram úr þessu á viðunandi hátt. Ef þér
tekst þetta, verður það til þess að hagur þinn batnar til muna.
Þú verður fyrir dýrmætri reynslu um helgina. Þú færð undar-
legar fréttir með bréfi eða í síma.
Bogamaöurinn (23. nóv,—21. des): Það gengur
mikið á í vikunni, og líklega munt þú þurfa að
sinna svo mörgu, að þú leysir ekkert verkefni til
fullnustu. Vinur þinn kemur með skemmtilega
hugmynd, sem aðeins Þú getur orðið til þess að
koma í verk, og það skaltu ekki hika við að gera. Maður í
opinberri stöðu kemur talsvert við sögu í vikunni, og líklega
verður hann til þess að létta af þér áhyggjum. Heillatala 3.
Geitarmerkiö (22. des.-—20. jan.): Þú mátt sannar-
lega hlakka til sunnudagsins. Þann dag gerist at-
burður, sem verður til þess að þú fyllist aukinni
bjartsýni og gleði. Vikan er einkum þeim til heilla,
sem vinna erfiðisvinnu. EVut búinn að gleyma því,
sem þú lofaðir kunningja þínum í vikunni sem leið9 Þú ferð að
likindum í heimsókn í vikunni, og þá munt þú fá skemmtilega
hugmynd, sem mun eiga hug þinn allan næstu vikur.
Vatnsberamerkiö (21. jan.—19 feb.): Hefur þú ekki
vonda samvizku út af því, sem þú hefur vanrækt
undanfarið. Það ættir þú a.m.k. að hafa. Reyndu nú
að bæta ráð þitt, því að ekkert er eins sárt og slæm
samvizka. Taktu ekki mark á því sem ókunnur mað-
ur segir um félaga þinn. Þú munt fá hrós fyrir vel unnið verk
í vikunni. Varaztu samt að miklast ekki af lofinu.
Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz.): Þú virðist hafa
ánægju af því að kvelja sjálfan þig í þessari viku
með óþörfum áhyggjum. Þetta verður til þess að
þér verður ekkert úr verki. Þú ert líklega allt of
kröfuharður — hamingjan kemur ekki af sjálfsdáð-
um til þín, þú verður að leita hennar. Sannleikur er sá, að hún
er þér auðfundin.