Vikan - 22.12.1960, Qupperneq 28
>? _ óskar öllum viðskiptavinum sínum nær og fjær
gleðilegra jóla, árs og friðar með þökk fyrir
viðskiptin á liðna árinu.
v
Samvinnusparisióðurinn
Súkkulaðikökur.
200 gr smjörlíki, 125
gr flórsykur, 1 eggja-
hvíta, 75 gr saxað
dökkt súkkulaði, ca.
250 gr hveiti.
Smjörlíkið er
hrært með flórsykr-
inum þar til þaS er
létt og Ijóst. Eggja-
hvítan er hrærð þar
í og að síðustu liveitið og súkkulaðið. Búið
til á sama hátt og piparkökurnar. Úr upp-
skriftinni eiga að fást um 80 kökur.
Kókósmakkarónur No I.
300 gr kókosmjöl, 250 gr sykur, 3—4 eggja-
hvítur, rifið hýði af hálfri sítrónu.
Ollu er blandað saman í emelereðan pott
eða eldfast mót og hitað við vægan hita um
það bil 2—3 mín. Hrært vel í svo að deigið
brenni ekki við. Látið með tveim teskeiðum
á smurða plötu. Ath. að liafa dálítið bil á
milli kakanna, þvi að þær renna aðeins út
við baksturinn. Bakað við 200° i 10—15 min.
Kókósmakkarónur No II.
2 eggjahvítur, 100 gr
mjöl.
sykur, 100 gr kókos-
Eggjahvíturnar eru
stifþeyttar, sykri og
kókosmjöli blandað
saman við. Mótað
og bakað á sama hátt
og kókosmakkarónur
nr. I.
Hálfmánar m/sveskjumauki.
200 gr hveiti, 100 gr afhýddar og saxaðar
möndlur, 200 gr smjör eða smjörlíki, 80
gr flórsykur, 1 matskeið rjómi.
Hnoðað deig. Flatt þunnt út og mótað eins
og meðfylgjandi mynd sýnir. Penslað með
eggi og örlitlum sykri stráð yfir ef vill. Bak-
að við 225° hita í 8—10 mín.
Kleinur.
500 gr hveiti, 150 gr sykur, 1|4 tesk. hjarta-
salt, 2 tesk. lyftiduft, f/2 tesk. kardemomm-
ur, 75 gr smjörlíki, 1 egg, 1—2 dl (súr)
mjólk. — Feiti til að steikja úr.
Hnoðað deig. flatt út fremur þykkt. Skorið
í 3—4 cm breiðar ræmur og á ská í 6—7 cm
langa búta. á miðju hvers búts er skorin rifa
og kleinunni snúið við. Raðað á bakka eða
plötu með bréfi undir. Steikt er úr tólg eða
plöntufeiti og er hún hæfilega lieit þegar sýður
í kring um eldspýtu, (stungið niður þeim
megin sem brennisteinninn er ekki). Steiktar
móbrúnar og feitin látin síga vel af. Kældar
á pap])ír sem dregur til sín fitu. Geymdar í
velþéttu íláti.
Laufabrauð.
1 kg hveiti, 1 tesk. lyftiduft, 30 gr smjörlíki,
1 tesk. salt, 5—6 dl mjólk. —Fita til að
steikja úr.
Mjólkin er soðin. Ilveitið sáldrað ásamt
lyftidufti og salti, smjörlikið mulið í. Yætt i
með mjólkinni, sem bezt er að sé vel heit
en þó ekki alveg sjóðandi, þá er erfiðara að
breiða kökurnar út. Hnoðið fljótt saman þar
til deigið er gljáandi, sprungulaust og fremur
hart. Mótað aflangt og deigt stykki lagt yfir
þá harðnar það síður. Bezl er að skera af
deiginu jafnóðum og það er mótað á milli
handanna og flatt svo þunnt sem mögulegt er.
Skorið undan diski. í kökurnar eru svo skorn-
ir margskonar laufaskurðir, mynztur og stafir.
Sleikt við mikinn liita ljósgulbrúnt.
Laufabrauðið er sjálfsagt á jólaborðið og
bezt með hangikjöti.
FYLLTUR SVÍNAKAMBUR.
2 kg svínakambur, J/2 kg epli, J4 kg sveskjr
ur, salt og pipar, % 1. vatn, 60 gr hveiti,
rjómi, sósulitur ef vill.
Kjötið er þerrað með deigum ldút. Sleifar-
skafti stungið inn með rifbeinunum og í gegn
og þar í eru ávextirnir látnir. Einnig má fylla
steikina með sveppum, reyktu fleski og slein-
seljusmjöri (sjá mynd). Steikina má skera frá
beininu, fylla og sauma saman. Kjötið er siðan
nuddað með salti og pipar. Látin í smurða ofn-
skúffu, brúnuð efst, færð niður og heitu vatni
hellt á. Ausið yfir við og við. Steikt ca. 1%
klst. eða þar til hún er gegnum steikt. Soðinu
hellt af. Sósan jöfnuð með hveitijafningi og
rjöma, krydduð og liluð ef vill. Borin fram með
soðnum, brúnuðum eða frönskum kartöflum,
ávöxtum og grænmeti. Rauðkál er mjög gott
með svinasteik.
STEIKTAR RJÚPTJR.
4 rjúpur, 60 gr flesk, 70 gr smjörlíki, 3 dl
soðið vatn + 1 dl mjólk, salt, sósulitur, 30
gr hveiti, rifsberjahlaup, þeyttur rjómi.
Rjúpurnar eru lireinsaðar, þvegnar og þerr-
aðar. (Hjarta og fóhorn er sjálfsagt að skilja
með). Betra er að stinga mjóum fleskræmum
inn í kjötið, þá verður það mýkra og bragð-
betra. Saumað með einu til tveim sporum gegn-
um bringu og læri ef rjúpurnar eru ekki klippt-
ar í sundur og steiktar þannig. Brúnaðar og
raðað þétt í pott. Sjóðandi mjólk og vatni hellt
yfir. Saltað. (Það má ekki fljóta yfir rjúp-
urnar). Soðnar í 1—1V2 klst. við hægan hita.
(Fóhorn og hjarta er soðið með, það gefur
soðinu meira bragð). Soðið sýað, jafnað með
hveitijafningi, kryddað eftir bragði. Gott er að
láta rifsberjalilaup i sósuna. Rjúpunum raðað
á fat heilum eða sundurskornum, ofurlítilli
sósu hellt yfir. Með þeim er borið rauðkál,
franskar kartöflur og hálfsoðin epli. Áður en
sósan er borin fram er stífþeyttum rjóma
blandað i.
HÁLFSOÐIN EPLI.
Eplin eru þvegin, skorin þversum, fræhúsin
te-kin úr. (Flysjuð ef vill). Lögð í kalt vatn.
Soðin í sykurvatni þar til þau eru gegnum
soðin (glær). Raðað á rist eða öfugan disk
þannig að vatnið renni vel af þeim. Rifsberja-
hlaup eða sveskja látin í miðju hvers eplis.
Borin fram með alls konar kjötréttum. Ath. að
sjóða eplin ekki of lengi og ekki fleiri í einu
en að þau fljóti á yfirborði pottsins.
MARENGSKRANS MEÐ JARÐARBERJUM.
4 eggjahvítur, 10 msk. sykur, rjómi, jarðar-
ber, möndlur.
Eggjahvíturnar eru stífjieyttar. Sykrinum
blandað varlega saman við. Látið i hring á
smurða hveitistráða plötu. Bakað við hægan
hita ca 125° í IV2 klst. eða þar til marengsin
er gegnumbakaður. Jarðarber eða aðrir ávext-
ir látnir í miðju liringsins. Skreytt með rjóma
loppum og söxuðum möndlum.
EPLAKAKA M/KÓKOSMAKKARÓNUM.
5—6 epli, 100 gr sykur, Vanilja, 75 gr brauð-
mylsna, 50 gr smjörlíki, 75 gr sykur, kókos-
makkarónur, mauk, vín, þeyttur rjómi.
Eplin eru flysjuð og soðin með sykrinum í
mauk. Vanilja sett í síðast. Brauðmylsnan brún-
uð með sykri og smjöri við hægan hita. Kæld.
(Nota má kókosmjöl saman við brauðmylsnuna
ef vill). Kókosmakkarónurnar (4—6 stk.) settar
á botninn i skálinni. Þar yfir 1—2 msk. gott
mauk og vín (sherry). Því næst er brauðmylsn-
an og eplamaukið látið í lögum, mytsnan efst.
Látin bíða a. m. k. 1—2 tíma. Skreytt með þeytt-
um rjóma, þunnum eplabátum og brauðmylsnu
stráð yfir.
óskar öllum viðskiptavinum sínum nær og fjær
gleðilegra jóla, árs og friðar með þökk fyrir
viðskiptin á liðna árinu.
2B VIKAN
Happdrætti D. A. S.