Vikan - 22.12.1960, Síða 33
launungu var gengið frá nýjum
leyríiskjölum.
Út af þessu takmarkalausa neyS-
arástandi sáu forsætisráðherrarnir
engin sköpuð ráð önnur en setjast
við samningaborðið. Hvarvetna voru
skipaðar nefndir og ráð og embætt-
ismenn, og þeim taldist fljótlega
svo til, að það tæki að minnsta kosti
átján ár að ganga frá nýjum skjölum
og uppköstum að endurhervæðingu,
sem væri þó nauðsynlegri nú en
nokkru sinni fyrr.
Og meðan allt væri hálfgert á
því sviði, skyldi friður ríkja um
allan heim. Það var ekki um annað
að gera.
Átján ára friður, — það kom
glettnisglampi í augu jólasveinsins,
og liann hló í skeggið. Hann hafði
komið sínu fram, að minnsta kosti
um hríð.
— Vinir minir, sagði hann við
englana i kringum sig. Ef þeir þarna
niðri á jörðunni verða búnir að
koma sér upp nýjum skjölum eftir
átján ár, förum við aðra ferð eins
og þessa. Og því skulum við halda
áfram, þangað til þeir eru orðnir
þreyttir. Þá fyrst, en fyrr eklci, rík-
ir varanlegur
FRIÐUR Á JÖRÐU.
JT
Astargaldur
Framhald af bls. 20.
líkamnautninni, að þeirra dómi.
Ilcnni væri liugástin j)á bundin og
alháð.
ER ÁSTIN SVONA, AUÐVELD.
Flestir kyniífsleiðbeinendur láta
svo sem þeir ætli leiðbeiningarit
sin fyrst og fremst ungu fólki, sem
er enn lítt teikið í list ástarinnar.
Þetta má tetjast réttmætt, ef þau
fræða um það, sem mestu máli skipt-
ir. Ástin milli manns og konu er
svo örlagarík fyrir þau sjálf og svo
mikilvæg fyrir samfélagið, að um
hana er hverjum manni nokkur
fræðsla holl og nauðsynleg.
Um langa liríð var hún röng, að
mestu byggð á vanþekkingu og
hleypidómum. Nú hafa vísinda-
menn margra þjóða lengi stundað
skipulagðar rannsóknir á kynlífs-
atferli manna og lýst niðurstöðum
sínum með vísindalegu orðfæri, m.
a. i töflum og tínuritum. Ýmsir
minni háttar spámenn skáldsagna-
gerðarinnar leitast síðan við að
Samlmnd 11 Somvínnufélaga
klæða hinar þurru niðurstöður vís-
indanna lifandi holdi. Við það bæt
ist svo aragrúi alþýðlegra fræðslu-
rita, sem hafa fræðin þó aðeins að
yfirvarpi.
Hin bókfróða æska nútimans á
því kost margskonar fræðslu um
samgang kynjanna. Henni gæti virzt
ástin furðulega einföld, úr því að
vandi hennar á að vera fólginn í
þeim tilburðum einum, sem fræðstu-
ritin lýsa og mæla með. Sú upp-
fræðsla verður æskunni ekki hvöt
til þess að rækta nleð sér hugást og
sálræna liæfni til þeiiTaf frjóu lífs-
nautnar, seni rómantíkín hylltí-
Unglingum, sem liafa innrætt sér
þá speki, að ástin væri fólgin i
kynattotum einuni, getur ekki virzt
það mjög örlagarikt skref að byrja
samlíf, hvort sem er í hjónabartdi
eða Utan þess. Vér höfum kynat-
ferlisreglurnar t Ilver sem fylgir
þeim boðorðum, honum fellur ást-
arhamingjan fyrirhafnarlaust í
skaut.
En er galdur ástarinnar svona
einfaldur? Kostar það ekki meira
að vinna ævilanga ást og tryggð?
Samlifskenningin hefir sveiflazt
milli rakalausra öfga: Frá hreinni
huglægri ást, sem þoldi hina saur-
ugu líkamsástríðu sem illa nauð-
syn, til tæknilega fullkominnar
líkamsástar, sem á að tryggja af
sjálfri sér sálrænt samræmi og
hamingju.
í báðum tilvikum liggur til
grundvallar einhliða og grunnfær
skilningur á manneðlinu. Maðurinn
er ekki klofinn í likama og sál,
heldur samrunnin heild jíeirra
beggja. Þess vegna getur hvorugt
afneitað hinu. Hvorki grtur likam-
inn daufheyrzt við kröfum sálar-
innar, né sálin synjað líkamanum
um rétt sinn.
Af þessum sökum er galdur ástar-
innar svo margslunginn og vanda-
samur. Trygg og varanleg ást er m.
a. háð gagnkvæmri virðingu. Fn til
þess að maður og kona virði sér-
stæðan persónuleik hvors annars,
þurfa þau að bera lotningu fyrir
manneðlinu í heild. Að öðrum kosti
brestur þau skilning á þeim stór-
fenglegu örlögum, sem ráðast í lífí
einstaklingsins. Án sliks skilnings
verður ástin eigingjörn, eins konar
drottningargirni, sem lítur á mak-
ann sem nautnalyf, leikfang eða
þræl-
Sá ástargaldur, sem bindnr mann
og konu til ævilolca, tendrast aðeins
gagnvart þeirri heildgerð sálar og
likama, sem við köllum persónu-
leika. Hvorugt má undan skilja,
hvorugt má skyggja á hitt. ★
óskar öllum viðskiptavinum sínum nær og fjær
gleðilegra jóla, árs og friðar með þöklc fyrir
viðskiptin á liðna árinu.