Vikan


Vikan - 22.12.1960, Side 34

Vikan - 22.12.1960, Side 34
Frá firmanu O Pragoexport hinu þekkta í Tékkóslóvakíu fiyljum við inn allar tegundir af Fæst í öllum sérverzlum faudsins. n n ibi. F U Andalækningar Framhald af bls. 7. ræða, ætti hann að ímynda sér sterkan og heil- brigðan maga, sem framkvæmir verk sitt rétt og meltir vel þann mat, sem hann fær, með góðri matarlyst. Ef sjúklingurinn gerir þetta, hjálpar hann sjálfum sér mikið. Síðan ættirðu að segja honum, að magi hans sé STERKUR, STERKUR, STERKUR (í raddsterkum, langdregnum, tilfinn- ingarikum tón) og að eðlilegt ástand sé að skap- ast í maganum fyrir tilverknað hugans. Þú ættir á sem flestan hátt að leiða sjúklingnum fyrir sjónir heilbrigðan maga, því að á þann hátt breyt- irðu sjúku hugarfari hans í heilbrigt hugarástand, og á þann hátt mun árangurinn verða beztur. Ef þú kýst að nota hendurnar í sambandi við lækningarnar, þá gerðu það, þar eð slíkt hefur mjög mikil sefjunaráhrif. Gildi hugsæis við lækningar. Þú munt finna, að mikið afl fylgir þvi að æfa ,,hugsæi“ af gaumgæfni og einlægni. Það er, að þú verður beinlínis að sjá i huganum það ástand, sem þú óskar, að komi fram. Og þegar þú getur gert þetta, verður þér fært að halda athygli sjúkl- ingsins, því að hugur hans fylgir orðum þínum, sem lýsa áframhaldandi bata hans, sem þú óskar eftir að gera. Honum verður kleift að sjá sjálfan sig, ná sér smátt og smátt, ekki einungis alhliða, heldur skynjar hann einnig, að hinn fyrrum sjúki iíkamshluti er nú að læknast og verða sterkari og sterkari. Haltu ávallt fyrir hugskotssjónum þínum mynd þess ástands, sem þú óskar eftir, að verði. Sjáðu það fyrir þér sem raunveruleika nú, — strax og hugur þinn og breytni munu mótast af ímyndun þinni. Með þessu fær sjúklingurinn beztu hugsanleg áhrif til sefjunar og bata. Lækning með huglægum öldum. Þegar hér er komið sögu, verð ég aftur að endurtaka mikilvægi þess, að læknandinn hafi fullkomið vald á ímyndunarafli sínu til að hugsa sér rétta mynd af því, sem lækna skal. Lækning- in mun takast í jöfnu hlutfalli við mátt lækn- andans til að hugsa sér sem lengst hið sjúka iíffæri heilbrigt. „Hugsýnin" er iykillinn að þessu formi huglægra lækninga, og læknandinn ætti að þjálfa hæfileikann til að sjá myndir fyrir sér í huganum. Þú verður að geta hugsað þér sjúkl- inginn læknaðan og líffæri hans starfandi á rétt- an hátt. Slepptu öllum neikvæðum efa, og ein- beittu þér algerlega að verkefninu. Þú munt sjá, að jafnframt þroskun hæfiieikans til hugsýnar muntu öðlast styrk og vald og öryggistilfinningu við störf þín. Kemur af sjálfu sér. Það er ekki svo erfitt að senda frá sér hinar réttu hugaröldur. í sannleika sagt virðist þessi hluti starfsins koma alveg af sjálfu sér. Það, sem þú þarft að gera, er að einbeita þér alger- lega að þeirri hugmynd, sem þú hefur séð fyrir þér, og þú verður einlæglega að vilja framkvæma hugmyndina. Hugsaðu ekkert um hugaröldurnar, því að þær fljóta frítt og hindrunarlaust án nokk- urra sérstakra aðgerða af þinni hálfu. Ágætt er einnig að beita nokkurri viljaorku öðru hverju, því að hún eykur og örvar lækninguna, en venju- lega nær hin ósjálfráða notkun löngunarorkunn- ar hinum tilætlaða árangri. Það er ekki nauð- synlegt að nota hinar erfiðu leiðir, eins og svo margir huglæknendur gera. Það er allt sóuð orka og þreytir mann aðeins án þess að hafa nokkur sérstök áhrif á sjúklinginn. Hin hreina hugmynd, sem þú nærð valdi á með æfingum á hugsýn, framkvæmir verkið fyrir þig næstum ósjálfrátt. Því raunverulegri sem myndin er þér, þeim mun sterkara er það afl, sem framleitt er, og þeim mun betri verður árangur lækningarinnar. Mikilvægt æfingaatriði. Nokkrir ágætir læknendur hafa komizt á snoðir um, að þeir fengu mjög aukinn styrk, ef þeir ímynduðu sér einnig hugarbylgjurnar fljótandi frá sér í áttina til sjúklingsins og að þær umvefðu hann. E’inn mjög góður læknir hefur sagt mér, að hann geti ávallt .séð í hugarfylgsnum sínum sjúklinginn baðaðan í ljósi hugarorku hans. Ég tel, að þessi læknir, sem er kona, hafi á réttu að standa og að með því að bæta þessu við hug- myndina megi ná miklu betri árangri. (Til að skilja þetta fyllilega verður að kynna sér fræði- bækur um hugsanagervinga og eðli þeirra. Hér er of langt mál að taka þá til umræðu.) Lokaaðgerðir. Ég mundi ekki ráðleggja fólki að gera þetta lengi í einu, því að ég tel, að beztum árangri verði náð með æfingum, sem standa ekki lengur en svo sem fimmtán mínútur. Þá ættirðu að skilja við sjúklinginn með nokkrum einlægum, upp- 34 iABAK

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.