Vikan - 22.12.1960, Síða 40
Iðnaðarbankinn
óskar öllum viðskiptavinum sínum nær og fjær
gleðilegra jóla, árs og friðar með þöklc fyrir
viðskiptin á liðna árinu.
Hið praníska afl-
Hér að framan hefur verið rætt
um vitundina, sem mótar efnið, að
því er virðist. 1 Austurlöndum er tal-
að um hið praníska afl eða orku, sem
er undirstaða alls, sem er, var og
verður. 1 trúarbrögðum Hindúa er
rætt um, að vitundin eða hugsun
manns geti mótað og móti hina
pranísku orku í samræmi við viljann.
Eftir þvi er maðurinn nákvæmlega
það, sem hann hefur hugsað, eða
vitund hans hefur gefið honum lög-
un. Með þetta hugfast geta menn gert
sér grein fyrir, hve gífurleg áhrif
réttur og æskilegur hugsunarháttur
getur haft á heilsufarið og annað í
fari manna.
Ljós í myrkri
Framhald af bls. 8.
það er ekki börnunum að kenna,
heldur eldri kynslóðinni, sem fyrst
og fremst á sök á því, að kristni
fer rénandi með þjóðinni. Það er
tímanna tákn, merki um almenna
hagsæld og vellíðan. Menn halla sér
áð trúarbrögðum, þegar á bjátar,
Iiefur einliver sagt. Samt er það
skömm og svivirða, ef það hefur
gleymzt i kapphlaupinu kringum
gullkálfinn að fræða börnin um upp-
runa og tilefni jólanna. ★
Einbýlishús . . .
Framhald af bls. 11.
veggir eru úr gibsonitplötum. Loft-
ið i stofunni hallar eins og þakið
sýnir og ofan við venjulega veggja-
liæð á gaflinum er gluggi. Útlit
hússins er líflegt og fjörugt og vek-
ur ekki hvað sizt athygli á því, enda
sagði frúin, að margir gerðu ferð
sína þangað heim fyrir forvitni-
sakir. Burðarviðir liússins koma
skýrt fram að utanverðu og
eru málaðir Ijósir. Skipta þeir
veggjunum í afmarkaða fleti og
eiga mikinn þátt í því að ljá húsinu
þann létta svip, sem það býr yfir.
Eigandi hússins er Garðar S.
Gíslason, en Ólafur Guttormsson
liefur teiknað það. -fc
— Ég elskaði þig einu sinni Jói,
það er alveg satt, en það var áð-
ur en ég fór að ganga á háum
hælum.
Lausn af bls. 26
Við hádegisverðinn voru tveir menn
fyrir utan konurnar tvær. Mennirnir
eru tveir ekkjumenn, sem hafa gifzt
dætrum hvor annars, en það eru
konurnar tvær.
Guð hjálpar þeim . ..
Framhald af bls. 16.
pollinn, og það þótti nú framtak á
minum dögum af fátækri sveita-
stúlku. Svo vann ég fyrir farinu,
og ég komst, og það þakka ég einnig
stálvilja og ákveðni, sem ég góðu
heilli hef tekið i arf frá móður
minni.
— Við hvað vannstu, Gunnfríður,
áður en þú fórst?
— Ég saumaði, blessuð vertu,
bæði á norðurlöndum, Þýzkalandi
og i Frakklandi, svo fór ég til ítaliu
I 1
óskar öllum viðskiptavinum sínum nær og fjær
G. Helgason & Melsted gleðilegra jóla, árs og friðar með þökk fyrir
viðskiptin á liðna árinu.
40 VTKAN