Vikan - 22.12.1960, Síða 42
llmenna Bókafélagið
STAHDA
Eftir Jfjkul Jakobs- Nótnabók og hljóm-
son. — Spennandi plata. — Söngvari
Reykjavíkursaga. Engel Lund.
«11
Eftir dr. Holland.
Ferðabókin sem all-
ir vilja lesa.
Eftir Karl Strand
lækni. Sálfræðibókin
vinsæla.
JARDAR
Eftir Jón Eyþórsson. mennta.
Mjög fögur og glæsi-
leg AiB myndabók.
Eftir Knul Hamsun.
Eitt sfórbrotnasta
verk norrænna bók-
Eldri bækur AB fást nú með
hagstæðum afborgunarkjör-
um. Engin félagsgjöld. Upp-
lýsingar veita umboðsmenn
AB um land allt. Bókaaf-
greiðsla AB í Reykjavík er
í Bókaverzlún Sigfúsar Ey-
mundssonar, Austurstræti 18.
Elzta bókabúð landsins í glæsilegum húsakynnum.
Allar íslenzku jólabækurnar fást hjá okkur.
Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar
Almenna Bókafélagrið
VEFARINN
óskar öllum viðskiptavinum sínum nær og fjær
gleðilegra jóla, árs og friðar með þökk fyrir
viðskiptin á liðna árinu.
Blaðað í bókam
Á forlagi ,Jsafoldarprentsmiöju“ koma út marg-
ar bækur að þessu sinni, eins og endranær, bækur
um þjóðlegan fróðleik, skáldsögur, erlendar og
íslenzkar, ljóð og sagnaþættir.
„Herleidda stúlkan“, skáldsaga eftir Sigfús M.
Johnsen fyrrverandi bæjarfógeta í Vestmanna-
eyjum, er bók sem mörgum mun þykja forvitni-
leg. Eins og nafnið bendir til er hún byggð á
sannsógulegum atburðum í sambandi við Tyrkja-
ránið, en um þá mun höfundur fróðastur allra
núlifandi manna, eins og kaflarnir sem um það
fjalla í hinu mikla ritverki hans, „Saga Vest-
mannaeyja", bera ljóst vitni. Nú hefur hann valið
þeim fróðleik búning skáldsögunnar, enda eru
þeir atburðir vel til Þess fallnir, og áreiðanlega
hefur Sigfús M. Johnsen ekki kastað höndum
til þessa verks, svo hugstæð er honum sagan og
allt það, sem henni er tengt.
„Helga í Stóruvík“, skáldsaga eftir Sólveigu
Sveinsson í íslenzkri þýðingu Aðalheiðar John-
son, mun vera sú fyrsta sem birtist á íslenzku
eftir þennan höfund, sem skrifar á ensku og hef-
ur getið sér góðan orðstýr í Bandaríkjunum. Samt
sem áður er sagan alíslenzk, gerist í íslenzku
sjávarþorpi og fjallar um islenzkar persónur —
og mun mörgum Þykja gaman að kynnast því
hvernig þetta umhveríi og þetta fólk litur út frá
sjónarhóli höfundar vestur þar.
„Prestasögur“, eftir Oscar Clausen, hafa lengi
verið með öllu ófáanlegar, og gott verk og þarft
að gefa þær út á ný. Þessi útgáfa er nokkuð
aukin. Um Þetta verk er óþarft að fjölyrða, það
hefur þegar staðizt sinn dóm — með ágætum.
„Úr byggöum Borgarfjaröar“, Þriðja bindi hins
mikla ritverks Kristleifs heitins Þorsteinssonar,
búið tii prentunar af Þórði syni hans, verður kær-
komin bók þeim fjölmörgu, sem áhuga hafa á
þjóðlegum fræðum um allt land. Kristleifur var
allra manna fróðastur, stálminnugur og kunni
vel að segja frá mönnum og atburðum. Mun þeim,
sem eiga fyrri bindin tvö, hafa þótt biðin eftir
því þriðja alllöng orðin — en nú er hún vel bætt,
því að þetta er mikil bók og góð.
Þarft verk var það að gefa út „LjóÖ“ Jóns
Þorsteinssonar frá Arnarvatni, sem var eitt hið
kunnasta alþýðuskáld íslenzkt á sinni tíð. Ljóð
hans og lausavisur flugu víða um land, þótt hann
væri fyrst og fremst skáld sveitar sinnar norður
við Mývatn; eflaust er það nú flest gleymt sem
hann kvað, en engu að siður stendur þjóðin í
þakkarskuld við hann, fyrir það sem hann var
henni á sínum tíma, og trúlegast eiga stökur hans
hljómgrunn með henni enn í dag.
„Bólu-Hjálmar“ — „æviágrip, þættir og sagn-
ir", eftir Finn Sigmundsson landsbókavörð, tekur
flestu því fram, sem enn hefur verið ritað um
þennan merkilega mann og skáld, og verða allir
margs fróðari um ævikjör hans, umhverfi og sam-
tið við lestur hennar, auk þess sem hún er bráð-
skemmtileg aflestrar.
„Messalína“, söguleg skáldsaga eftir Conte
Costello, hlýtur vafalaust góðar viðtökur meðal
íslenzkra lesenda. Messalína keisaradrottning er
ein af frægustu — og um leið alræmdustu — kon-
um sögunnar; fræg fyrir fegurð sina og töfra-
mátt, illræmd fyrir losta sinn og lausung og hefur
því að vonum orðið mörgum skáldsagnahöfund-
um viðfangsefni.
„Hver ert þú sjálfur", eftir hinn fræga rithöf-
und og dulspeking, Paul Brunton, er öndvegisverk
á sínu sviði, sem öllum hugsandi mönnum er
fengur að kynnast. Frá slíkri bók verður ekki
sagt i fám orðum — aðeins á hana bent. Þorsteinn
Halldórsson hefur annast þýðinguna.