Fréttablaðið - 02.12.2009, Blaðsíða 4
4 2. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
FULLT HÚS JÓLAGJAFA
34.990 kr.
ALÞINGI Ragnheiður Elín Árna-
dóttir, Sjálfstæðisflokki, hefur
krafið forsætis-, fjármála- og
utanríkisráðherra um allar upp-
lýsingar um fundi, samtöl og sím-
töl sem þeir, eða
aðilar á þeirra
vegum, hafa
átt við erlenda
aðila um Ice-
save-málið.
Hún vill líka
vita hvort og þá
hvernig utan-
ríkisþjónust-
unni hefur verið
beitt til kynn-
ingar á málstað Íslendinga í Ice-
save. Ragnheiður Elín hefur ítrek-
að kallað eftir upplýsingum sem
þessum á þingfundum en ekki
fengið. Hefur hún því lagt fram
formlegar fyrirspurnir. - bþs
Ragnheiður Elín Árnadóttir:
Vill vita allt um
fundi ráðherra
RAGNHEIÐUR ELÍN
ÁRNADÓTTIR
DÓMSMÁL Fjórir rúmlega tvítug-
ir menn hafa verið ákærðir fyrir
húsbrot og sérstaklega hættulega
líkamsárás.
Þeim er gefið að sök að hafa að
kvöldi laugardagsins 25. október
í fyrra ruðst í heimildarleysi inn
í íbúðarhús við Hverfisgötu 88 í
Reykjavík. Þeir veittust að þrem-
ur mönnum sem voru þar innan
dyra, skipuðu þeim að leggjast í
gólfið, spörkuðu í þá, kýldu þá og
slógu með billjardkjuðum ítrek-
að í höfuð þeirra og víðs vegar
um líkama. Eitt fórnarlambanna
krefst 400 þúsund króna í skaða-
bætur. Mennirnir eru allir af
erlendum uppruna. - jss
Innrás með hulin andlit:
Börðu með
billjardkjuðum
DÓMSMÁL Tveir ungir menn,
annar nítján ára og hinn tvítugur,
hafa verið ákærðir fyrir grófa lík-
amsárás.
Þeim er gefið að sök að hafa í
sumar sparkað margoft í höfuð og
líkama liggjandi manns fyrir utan
Sjallann á Akureyri. Síðan ráðist
með spörkum að unnustu manns-
ins þegar hún lagðist ofan á hann
til að skýla honum fyrir spörkum
árásarmannanna. Bæði fórnar-
lömbin hlutu verulega áverka. Þau
gera bótakröfur á hendur mönn-
unum upp á samtals rúma millj-
ón króna. Þá er yngri maðurinn
einnig ákærður fyrir að slá mann
í andlitið. Bótakrafa í því máli er á
annað hundrað þúsund krónur. - jss
Tveir ungir menn ákærðir:
Misþyrmdu pari
Jónas Þór í landsdóm
Alþingi kaus í gær Jónas Þór Guð-
mundsson lögfræðing sem varamann
í landsdóm í stað Unnar Brár Kon-
ráðsdóttur alþingismanns. Jónas Þór
var tilnefndur af Sjálfstæðisflokknum.
ALÞINGI
Nautalundir og kynlífsegg
Kona á fertugsaldri hefur verið dæmd
í níutíu daga fangelsi fyrir að stela
tveimur nautalundum úr Hagkaupum
og kynlífseggi úr versluninni Adam og
Evu. Með þessu rauf hún skilorð.
DÓMSTÓLAR
Aðgerðir fyrir einstaklinga
Alison Hill, sérfræðingur frá höfuð-
stöðvum mannréttindasamtakanna
Amnesty International, mun halda
fyrirlestur í húsnæði Íslandsdeildar
samtakanna í dag kl. 20. Þar mun
hún fjalla um rannsóknir og aðgerðir
Amnesty í þágu einstaklinga sem
sæta mannréttindabrotum.
MANNRÉTTINDAMÁL
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
8°
3°
3°
7°
4°
4°
4°
4°
22°
11°
18°
12°
28°
-2°
11°
15°
1°
Á MORGUN
Strekkingur NV- og V-til,
annars hægari.
FÖSTUDAGUR
5-10 m/s.
0
-4
-1
-2
-2
-3
-8
2
2
4
0
11
12
15
17
15
8
13
8
7
13
15
-2 -1
2
4
0 2
4
0
-3
-1
LEIÐINDAVEÐUR
Það hlýnar heldur
á landinu í dag,
víðast vægt frost
en frostlaust við
suðurströndina.
Talsverð úrkoma
verður víða um
land í dag, einkum
norðaustanlands, og
veður mun versna
norðvestanlands
síðdegis en búist
er við stormi þar í
kvöld.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
SVEITARSTJÓRNIR Skagaströnd fær
ekki krónu af þúsund milljóna
króna aukaframlagi úr jöfnun-
arsjóði sveitarfélaga og sveit-
arstjórnin mótmælir aðferða-
fræðinni sem notuð var við
úthlutunina.
„Sveitarstjórn mótmælir því að
að þeir sem hafa reynt að standa
með ábyrgum hætti að rekstri
sínum í erfiðu umhverfi þurfi
að takast á við þá niðurstöðu
sem felst í úthlutun aukafram-
lagsins,“ segir sveitarstjórnin.
Skagaströnd fékk hins vegar 7,2
milljónir af 1.241 milljón króna
sem eytt var í tekjujöfnunar-
framlag. - gar
Óánægja á Skagaströnd:
Ekkert aukalegt
jöfnunargjald
SKAGASTRÖND Jákvæð eiginfjárstaða
bitnar á Skagstrendingum.
WASHINGTON, AP Barack Obama
Bandaríkjaforseti stefnir að því
að stríðinu í Afganistan verði lokið
eftir þrjú ár. Fjölgun bandarískra
hermanna í landinu um 30 til 35
þúsund á næstu sex mánuðum er
liður í þeirri áætlun að gera endan-
lega út af við Al-Kaída-samtökin á
skömmum tíma og koma á stöðug-
leika í landinu.
Forsetinn
kynnti þjóð sinni
í gærkvöldi fyr-
irætlanir sínar
varðandi stríð-
ið í ræðu sem
sjónvarpað var
á miðnætti að
íslenskum tíma.
Ræðan hafði
ekki verið flutt
þegar Fréttablaðið fór í prentun,
en ýmsu af innihaldi hennar hafði
verið lekið í fjölmiðla af embættis-
mönnum úr Hvíta húsinu.
Meðal þess var að til stæði að
hefja brottflutning herliðsins frá
Afganistan í júlí árið 2011. Engin
tiltekin dagsetning hefði hins
vegar verið ákveðin fyrir stríðs-
lok, þótt því eigi að vera lokið eftir
þrjú ár.
Ákvörðunin hefur komið nokkuð
á óvart. Annars vegar vegna þess
hversu djarft það er af forsetanum
að tilkynna um svo mikla fjölgun
hermanna níu dögum áður en hann
tekur við friðarverðlaunum Nób-
els, og hins vegar vegna þess að
talsmenn forsetans hafa til þessa
sagt að minnst 12 til 18 mánuði taki
að senda þennan liðsauka út. Nú
skyndilega sé hins vegar stefnt að
því að gera það á sex mánuðum.
Þetta er í annað sinn frá valda-
töku Obama sem hermönnum í
Afganistan er fjölgað, og heyja
nú um 70 þúsund bandarískir her-
menn stríðið sem tekið hefur átta
ár.
Fullyrt var í gær að Obama
myndi í ræðunni einnig óska eftir
auknum liðstyrk frá öðrum þjóð-
um Atlantshafsbandalagsins, alls
fimm til tíu þúsund hermönnum,
en 30 þúsund hermenn annarra
þjóða eru þar nú þegar.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, sagði í gær að Þjóðverjar
væru ekki tilbúnir til að auka við
4.000 manna herafla sinn í landinu
að svo stöddu.
Meðal þess sem Obama legg-
ur mesta áherslu á í áætlun sinni
er að fjölga afgönskum hermönn-
um og lögreglumönnum í landinu
og flýta þjálfun þeirra. Þeim er
ætlað að halda uppi lögum og regl-
um í landinu eftir að erlendir herir
hverfa á brott. Nú er stefnt að því
að 134 þúsund Afganar verði í her-
liði landsins og um 97 þúsund í lög-
regluliðinu, þótt þær tölur kunni
að hækka.
Yfirmaður í afganska varnar-
málaráðuneytinu sagði í gær að
það takmark væri þó ekki nóg.
Heraflinn þyrfti að vera minnst
240 þúsund manns.
stigur@frettabladid.is
Obama boðar stríðs-
lok innan þriggja ára
Barack Obama stefnir að því að stríðinu í Afganistan verði lokið eftir þrjú ár.
Hann kynnti þjóð sinni í gærkvöldi áætlun sína um mikla fjölgun hermanna í
landinu, einungis níu dögum áður en hann tekur við friðarverðlaunum Nóbels.
BARACK OBAMA
HEFUR KOSTAÐ MÖRG MANNSLÍF Fjöldi hermanna hefur fallið í stríðinu og hafa
síðustu mánuði verið einkar mannskæðir. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UMHVERFISMÁL Einstaklingar eða fyrirtæki ættu að
geta endurheimt einn hektara af framræstu votlendi
í náttúru Íslands með því að leggja fram eitthvað á
milli tuttugu til fjörutíu þúsund krónur í náttúrusjóð-
inn Auðlind.
Sjóðurinn var stofnaður fyrir ári og hélt upp á
afmælið í gær. Lengi hafði staðið til að stofna sjóðinn
og þegar loks var slegið til skall á kreppa, segir Sal-
vör Jónsdóttir, formaður Auðlindar.
„Á tímabili komu upp vangaveltur um hvort rétt
væri að gera þetta við þessar aðstæður en við ákváð-
um að fara af stað og nýta tímann til að byggja upp
starfsemina,“ segir hún.
Að mörgu þurfi að huga. Það liggi til dæmis ekki
endilega í augum uppi hvernig eigi að verðlauna fólk
fyrir að stuðla að uppgangi arnarstofnsins.
Tilgangur Auðlindar er að „vernda þjóðararfinn
sem felst í náttúru Íslands og stuðla að sjálfbærri
nýtingu náttúrunnar“, segir í tilkynningu. Þetta
verður meðal annars gert með því að styrkja einstök
verkefni næsta sumar.
Vaxi sjóðnum fiskur um hrygg gæti hann líka
keypt jarðir, sett á þær náttúruverndarskilyrði
og svo selt þær aftur, en fyrirmynd er fyrir slíku
erlendis frá, segir Salvör. - kóþ
Auðlind Náttúrusjóður heldur höfði þrátt fyrir kreppuna:
Hektarinn á 20.000 krónur
VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR Verndari Auðlindar hvatti fólk til
árvekni í náttúruverndarmálum og flutti ljóð eftir Þorstein
heitinn Gylfason. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GENGIÐ 01.12.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
235,2255
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
121,54 122,12
201,31 202,29
183,19 184,21
24,613 24,757
21,560 21,686
17,557 17,659
1,3999 1,4081
195,79 196,95
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR