Fréttablaðið - 02.12.2009, Síða 6

Fréttablaðið - 02.12.2009, Síða 6
6 2. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR HEILBRIGÐISMÁL Tólf manns hafa greinst með HIV það sem af er árinu. Af þeim eru fjórir karlmenn og átta konur. Enginn hefur greinst með alnæmi, lokastig sjúkdómsins. Af þeim sem greinst hafa á árinu eru fjórir Íslendingar, allt konur á aldrinum 17 til 48 ára. Þær hafa allar sögu um fíkniefnaneyslu með sprautunotkun í æð. Hin átta sem greinst hafa með HIV-smit eru af erlendu bergi brotin og telj- ast hafa smitast með kynmökum. Enginn samkyn- hneigður hefur greinst með smit á árinu. Sóttvarnalæknir segir það sérstakt áhyggju- efni að þeir Íslendingar sem greinst hafa á árinu neyti fíkniefna með því að sprauta sig í æð. Fram til þessa hafi slík fíkniefnaneysla oftast ekki verið áberandi smitleið fyrir HIV en rétt þyki að vara við henni. Samkvæmt upplýsingum Alþjóðaheilbrigðis- stofnunarinnar, WHO, hefur dregið úr nýju smiti af völdum HIV um sautján prósent á heimsvísu á undanförnum átta árum. Árangurinn má þakka greiðari aðgangi að meðferð, umönnun og forvörn- um gegn HIV. - jss Tólf hafa greinst með HIV á Íslandi það sem af er árinu: Smitaðir Íslendingar sprautufíklar SPRAUTUFÍKLAR Sóttvarnalæknir varar við HIV-smiti af völdum fíkniefnaneyslu í æð. tökum notuð barnaskíði og skó upp í ný SKÍÐASKIPTIMARKAÐUR Bræðraborgarstíg 9 VEÐURBÓK STORMSINS Handhæg bók eftir „Sigga storm“ og Hólmfríði Þórisdóttur um hagnýta veðurfræði og það hvernig fólk getur gert sínar eigin veður- athuganir og haldið veðurdag- bók þar sem einnig er að finna veður- og hamfaraannál alla daga ársins. HEILBRIGÐISMÁL Allt útlit er fyrir að Landspítalinn hefji næsta starfsár sitt með neikvæðan höfuðstól sem nemur 2,8 milljörðum króna. Þetta þýðir mikinn fórnarkostnað. Bara dráttarvextir af ógreiddum skuld- um gæti numið nokkur hundruð milljónum. Björn Zoëga, forstjóri Landspít- alans, útskýrir að um uppsafnaðan halla sé að ræða, aðallega skuldir við birgja. Bara gengistapið hafi verið 2,1 milljarður árið 2008 en milljarður hafi komið inn í rekst- urinn með fjáraukalögum á móti. „Þegar allt er talið enduðum við svo síðasta ár með 1,620 milljónir í mínus. Við höfum þurft að borga háa dráttarvexti. Eftir launa- greiðslur höfum við ekki getað gert upp við birgjana sem selja okkur lyf og aðrar rekstrarvör- ur. Í ár stefnir í að mínusinn verði tólf hundruð milljónir til viðbótar. Uppsafnaður halli verður því 2,8 milljarðar króna eins og þetta lítur út núna.“ Gengistap Landspítalans er 900 milljónir króna í ár til viðbótar við 2,1 milljarð í fyrra. Því væri rekst- ur spítalans á pari ef ekki kæmi til fórnarkostnaður veikrar krónu. Björn segir að fjárhagsáætlana- gerð verði að skoðast í þessu ljósi. Björn treystir sér ekki til að meta hversu háa upphæð spítalinn þarf að greiða vegna uppsafnaðra skulda á næsta ári. Til þess séu óvissuþættir of margir. Hins vegar greiðir spítalinn um 220 milljónir á þessu ári í dráttarvexti. Fljótt reiknað gæti sú upphæð nálgast 400 milljónir að óbreyttum for- sendum. „Það verður há upphæð en þangað til á síðasta ári fékk stofnunin jafnan afslátt af drátt- arvöxtum frá birgjum. En staða fyrirtækjanna er með þeim hætti núna að um það er ekki að ræða lengur.“ Vegna þess hversu mikil áhrif gengissveiflur hafa haft á rekst- ur spítalans ákvað heilbrigðis- ráðuneytið, að höfðu samráði við fjármálaráðuneytið, að spítalan- um bæri ekki að jafna uppsafn- aðan halla ársins í ár. Hins vegar metur Björn stöðuna fyrir næsta ár með þeim hætti að hagræðing- arkrafan á spítalann hafi hækkað úr sex prósentum samkvæmt fjár- lagafrumvarpinu í níu prósent. Þar vísar hann til 1.965 milljóna kröfu fjárlaga ásamt tólf hundruð millj- óna halla ársins í ár. Björn telur það raunhæft markmið að ná hag- ræðingu sem nemur 3,2 milljörð- um. „En það er alveg ljóst að það kemur niður á þjónustu, það sjá það allir.“ svavar@frettabladid.is Dráttarvextir næsta árs yfir 400 milljónir Landspítalinn getur ekki gert upp við birgja eftir að laun hafa verið greidd. Uppsafnaður halli er áætlaður 2,8 milljarðar. Ef forsendur breytast ekki mun Landspítalinn því greiða yfir 400 milljónir í dráttarvexti árið 2010. ERFITT ÁR Björn Zoëga, starfandi forstjóri LSH, og Hulda Gunnlaugsdóttir, sem er í árs leyfi, héldu starfsmannafund vegna niðurskurðar í apríl. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Eftir launagreiðslur höfum við ekki getað gert upp við birgjana sem selja okkur lyf og aðrar rekstrarvörur. BJÖRN ZOËGA FORSTJÓRI LANDSPÍTALANS DÓMSTÓLAR Karlmaður á fimm- tugsaldri hefur verið dæmdur í tíu mánaða fangelsi, þar af sjö á skil- orði, fyrir að svíkja út varning úr verslunum fyrir á fimmtu milljón króna. Maðurinn sveik út vörur með því að framvísa beiðnum um úttektir á vöru, sem hann hafði falsað. Þannig náði hann að svíkja út vörur að verðmæti alls 4.825.966 milljónir króna sem skuldfærð- ar voru á viðskiptareikning fyr- irtækjanna. Hann reyndi einn- ig að svíkja út vörur að verðmæti 1.895.000 krónur með framvísun falsaðs skjals. Einkum var um að ræða tölvur, sjónvörp og slíkt. - jss Karlmaður á fimmtugsaldri: Sveik út vörur fyrir milljónir STJÓRNMÁL Hjá Ríkisendurskoð- un hefur ekki verið ákveðið hve- nær þeir frambjóðendur til síðustu alþingiskosninga, sem trassa að skila inn lögbundnum fjárhagsupp- lýsingum vegna framboðsins, verða kærðir til lögreglu. Samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálasam- taka gætu frambjóðendurnir átt allt að sex ára fangelsi yfir höfði sér. En þetta er í fyrsta skipti sem upplýs- inganna er krafist. „Við sendum frambjóðendunum hvatningu innan tíðar og sjáum svo til hvað gerist,“ segir Lárus Ögmundsson, skrifstofustjóri hjá Ríkisendurskoðun. Nú á 21 frambjóðandi af 371 eftir að skila inn upplýsingum til Ríkis- endurskoðunar. Þrír úr Frjálslynda flokknum eiga eftir að skila, þeir Guðjón Arnar Kristjánsson, Guðni Halldórsson og Sigurður Ó. Hallgrímsson. Úr Samfylkingu Pétur Tyrfings- son. Sjö úr Sjálfstæðisflokki: Árni Árnason, Árni Johnsen, Berg- þór Ólason, Haukur Þór Hauks- son, Kjartan Þ. Ólafsson, Sigurlaug Hanna Leifsdóttir og Þórður Guð- jónsson. Flestir skussarnir eru úr VG, tíu talsins: Heimir Björn Janus- arson, Hörður Þórisson, Jósep B. Helgason, Paul Nikolov, Sigurður Ingvi Björnsson, Sigurjón Einars- son, Trausti Aðalsteinsson, Úlfur Björnsson, Þorsteinn Bergsson og Þorvaldur Þorvaldsson. - kóþ 21 frambjóðandi til Alþingis hefur ekki skilað fjárhagsuppgjöri: Óvíst hvenær fólk verður kært EFTIRSÓTTUR VINNUSTAÐUR Fram- bjóðendur í síðustu alþingiskosningum höfðu frest til 25. október til að skila inn fjárhagslegum upplýsingum vegna framboðsins. Þá áttu tæplega hundrað af 371 eftir að skila inn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Er kjör nýs oddvita Framsóknar í Reykjavík merki um nýja tíma í stjórnmálum? Já 35,5 Nei 64,5 SPURNING DAGSINS Í DAG: Myndir þú draga úr Icesave- kröfunum ef þú værir í sporum Breta og Hollendinga? Segðu skoðun þína á Vísi.is KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.