Fréttablaðið - 02.12.2009, Síða 8

Fréttablaðið - 02.12.2009, Síða 8
8 2. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR FRÁBÆRLEGA UNNIN ÆVISAGA saga Runólfs Sveinssonar sandgræðslustjóra og algerðar Halldórsdóttur tir Friðrik G. Olgeirsson.f læsileg bók um merkaG frumkvöðla. SKRUDDA Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is www.skrudda.is Skráðu þig á ring.is, fylltu á fyrir 1.990 kr. á mánuði og þá eignastu 160 þúsund vini innan GSM kerfis Símans og færð 990 kr. til að ringja í fólk í öðrum kerfum. Ring er ný farsímaþjónusta á vegum Símans. Fyrir 1.990 kr. áfyllingu á mánuði færðu 1500 mín/SMS á mánuði til að hafa samband við 160 þúsund vini innan GSM kerfis Símans og 990 kr. inneign til að ringja í fólk í öðrum kerfum. E N N E M M / S ÍA / N M 4 0 10 4 Ringjarar fá 50% afslátt í bíó í dag! Farðu á ring.is og sláðu inn Ring númerið þitt. Þá færðu MMS í símann um 50% afslátt í bíó fyrir einn sem gildir í dag, miðvikudag. Ekkert vesen með afsláttarmiða, þú sýnir bara GSM símann í afgreiðslunni. MMS tilboð í bíó í dag á ring.is Ath. Gildir ekki í lúxussal, á íslenskar myndir og myndir sýndar í digital þrívídd. Tilboðið gildir í tilteknum bíóum Senu: MENNTUN Formaður leikskólaráðs sagði í bréfi í maí að hann hefði, í samræmi við aðgerðaáætlun borgarinnar, lagt megináherslu á að standa vörð um grunnþjón- ustu, störf og gjaldskrár, í áætl- unum um niðurskurð hjá leikskól- um. „Þetta hefur allt verið svikið,“ segir Edda Björk Þórðardóttir, úr starfshópi foreldra sem mótmæl- ir niðurskurði á leikskólum. Í bréfi formannsins, Þorbjarg- ar Helgu Vigfúsdóttur, voru helstu fyrirhugaðar hagræðing- araðgerðir reifaðar. Þær voru til dæmis ódýrari innkaup og ræst- ingar. Síðan hafa foreldrar komist að því að engin opinber skilgreining sé til á grunnþjónustu. Það hefur núverandi formaður leikskóla- ráðs staðfest hér í blaðinu. Svo hefur stöðugildum verið fækkað og gjaldskrá hækk- uð fyrir vistun umfram átta tíma, segir Edda Björk. Ekki sé hægt að standa vörð um innihaldslaust hugtak: „Það var ekkert hæft í þeirri full- yrðingu,“ segir hún. Í næsta atriði, um að verja störfin, hafi víst verið skorið niður: „Aðstoðarleikskólastjórum á tveggja til þriggja deilda leikskólum, sem gæti verið um helmingur skólanna, hefur verið sagt upp. Stöðugildum deild- ar-, verkefna- og sérkennslustjóra hefur víða verið sagt upp. Hver á að sinna þeirra hlutverki?“ spyr Edda Björk. Gjaldskráin, síðasta atriðið, var hækkuð 1. ágúst, þegar leikskóla- ráð samþykkti að „lækka framlag leikskólasviðs Reykjavíkurborgar vegna vistunar barna umfram átta klukkustundir á dag“ eins og segir í fundargerð. Hækkunin var samþykkt í sama mánuði og bréfið fór til foreldra. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, sem nú er í fæðingarorlofi frá starfi formanns ráðsins, segist hafa staðið við sitt. „Ég stend fast á því að ég hafi staðið við þetta. Við höfum farið yfir það í borgarstjórn að átta tímarnir séu grunnþjónust- an og þess vegna er gjald- skrármálið utan þess,“ segir hún. Um störfin segir Þorbjörg: „Það voru of margir á hverjum leik- skóla komnir í stjórn- unarstöðu. Það er ekki verið að segja þeim upp heldur hefur starfsheit- um verið sagt upp. Þetta hefur ekkert verið svik- ið.“ klemens@frettabladid.is Segir helstu fyrirheit leikskólaráðs svikin Fulltrúi foreldra segir að þau þrjú fyrirheit sem formaður leikskólaráðs gaf foreldrum í maí hafi nú öll verið svikin. Þá átti að verja grunnþjónustu, störf og gjaldskrár. „Ég stend fast á því að við höfum varið þessa þætti,“ segir formaður. ÞORBJÖRG HELGA VIGFÚSDÓTTIR Fundi foreldra og fulltrúa leikskólaráðs og leikskólasviðs borgarinnar, sem átti að vera í dag, 2. desember, hefur verið frestað fram í næstu viku, eða þar til fjárhagsáætlun hefur verið rædd í borgarráði. Þetta mun gert í ljósi þess að rekstur borgarinnar á árinu hafi komið betur út en ráð var gert fyrir. Verið sé að endurskoða fjárhagsáætlunina. ENDURSKOÐA ÁÆTLUNINA Hringdu í síma ef blaðið berst ekki EDDA BJÖRK ÞÓRÐARDÓTTIR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.