Fréttablaðið - 02.12.2009, Side 25

Fréttablaðið - 02.12.2009, Side 25
49 Sögurnar... tölurnar... fólkið... Veffang: visir.is – Sími: 512 5000 H E L S T Í Ú T L Ö N D U M Miðvikudagur 2. desember 2009 – 28. tölublað – 5. árgangur Skuldir sjávarútvegsfyrirtækja voru 42 milljarðar króna árið 1998 en 500 milljarðar tíu árum seinna. Á þessum tíma hafa með- altalsskuldir hvers fyrirtækis því margfaldast. Gengisþróun íslensku krónunn- ar hefur sveiflað skuldum sjávar- útvegsins til á milli ára svo skiptir tugum milljarða. Eftir hrunið var sveiflan talin í vikum og mest var hún strax eftir hrun. Á þessu ári fóru skuldirnar úr 550 milljörðum í janúar í 470 milljarða í mars og svo til baka aftur yfir 500 millj- arða á nokkrum vikum. Útflutningsverðmæti íslensks sjávarútvegs stefnir í að verða 200 milljarðar í fyrsta skipti. Verðmætin voru meiri í lok júlí en þau voru allt árið 2005. Sjá síðu 8 Skuldir úr 40 í 500 milljarða Otto B. Arnar ehf. Skipholti 17 - 105 Reykjavík Sími: 588-4699 / Netfang: oba@oba.is Þarftu að farga gömlu skjölunum fyrir áramótin? Öflugir og áreiðanlegir skjalatætarar okkar eru tilvaldir í þessi verk. Farga einnig geisladiskum og plastkortum. ORKUSPARANDI - UMHVERFISVÆNIR! www.oba.is - Margar útfærslur í boði - skjalatætarar ...við prentum! Sviptingar á fjölmiðlamark- aði General Electric hefur ákveð- ið að greiða fjölmiðlafyrirtæk- inu Vivendi 5,8 millj- arða dollara, eða ríflega 700 millj- arða króna fyrir 20 prósenta hlut í NBC Universal. General Electric mun þar með eiga 100 prósenta hlut í NBCU. Talið er að General El- ectric muni í framhaldinu selja Comcast, stærsta kapalfyrirtæki Bandaríkjanna, 51 prósents hlut í NBCU. Bankakreppa í Venesúela Stjórnvöld í Venesúela hafa lokað fjórum einkareknum bönkum í landinu. Privivienda-bankinn og Canarias-bankinn verða látnir fara á hausinn en líklegt er talið að Bolivar-bankanum og Confed- erado-bankanum verði bjargað og þeir þjóðnýttir. Mac-klónar bannaðir Apple hefur unnið höfundarréttarmál gegn tölvufyrirtækinu Psystar sem hefur selt tölvur sem nota Apple OS X stýrikerfið, eða svo- kallaða Mac-klóna. Psystar taldi að þar sem fyrirtækið hefði keypt stýrikerfið með lögmæt- um hætti væri því heimilt að selja það áfram í tölvum sínum. Bandarísk- ir dómstólar höfn- uðu því. Fimm þúsund milljarðar Helgin eftir þakkar- gjörðarhátíðina er einhver sú mik- ilvægasta fyrir bandaríska smá- sölumarkaðinn. Að þessu sinni versluðu Bandaríkjamenn fyrir fimm þúsund milljarða króna sem er 0,5 prósenta aukning frá því í fyrra. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) gaf í síðustu viku út leiðbeinandi regl- ur um ríkisstuðning við banka og fjármálafyrirtæki innan Evr- ópska efnahags- svæðisins. Regl- urnar verða í gildi fram til loka næsta árs. ESA segir í rök- stuðningi sínum ba nka og fjá r - málafyrirtæki hafa notið góðs af ríkisstuðningnum og verði að sjá til þess að hann skekki ekki sam- keppnisstöðu á fjármálamörkuð- um. Því verði að endurskipuleggja rekstur þeirra sem stuðning hafi fengið, þó með þeim fyrirvara að fyrirtækin geti starfað án frekari hjálpar frá hinu opinbera í allra nánustu framtíð. - jab ESA-reglur um stuðning PER SANDERUD Endurnýting: Gamlir farsímar öðlast nýtt líf í þróunarlöndum. Furstinn í Dúbaí: Segir stöðu furstadæmisins sterka.10 Veitingastaðir: Viðskiptamálsverðir á sjávarréttastöðum. Fulltrúar frá leikjadeild japanska tæknifyrirtæk- isins Sony Interactive eru staddir hér á landi. Þeir komu á þriðjudag og funduðu í gær með forsvars- mönnum CCP, sem á og rekur fjölþátttökuleikinn EVE Online. Fyrirtækið vinnur auk þess að þróun nýs leikjar, sem heitir Dust 514. Þeir hittu einnig fulltrúa annarra tölvuleikjafyrirtækja, svo sem hjá Gogogic og nokkra aðra sem aðild eiga að Samtökum íslenskra leikjaframleiðenda (IGI). Heimsóknin til CCP var löngu ákveðin en þegar þeir sáu mikla umfjöllun um íslenska tölvuleikja- geirann í breska tímaritinu Edge Magazine, sem er eitt af þremur stærstu tímaritum í heimi innan tölvuleikjaheimsins og kom út um mán- aðamótin, ákváðu þeir að ræða við hin fyrirtækin. Í tímaritinu kemur fram að tölvuleikjaiðnaður- inn hafi tekið stökk eftir bankahrunið. Þetta sé ört vaxandi geiri, sem sé eftirtektarvert fyrir lítið samfélag. Rætt er við fulltrúa leikja- fyrirtækjanna sem aðild eiga að IGI en þar kemur fram að sökum smæðar samfélagsins hafi þeir reitt sig á nána samvinnu í stað óvin- veittrar samkeppni. Það hafi skilað miklu. - jab Sony skoðar tölvuleikjafyrirtækin Eitt af þremur stærstu tölvuleikjatímaritum heims fjallar um íslensku leikja- fyrirtækin. Samvinna þeirra skilar meiri árangri en blóðug samkeppni. EDGE MAGAZINE Í blaðinu kemur fram að íslenskir tölvu- leikjaframleiðendur reiði sig fremur á samvinnu en óvin- veittri samkeppni. Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar Gangi efnahagslífið fyrir sig án stóráfalla næstu fimm árin mun hér verða blómlegt ástand. Þetta segir Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráð- herra. „Efnahagslífið ætti að vera almennt komið í mjög þokkalegt ástand. Auðvitað eru óvissuþættir, sem maður ræður ekki við. En við ættum að verða búin með mesta skaflinn í ríkisfjármálum þótt ríkið verði enn nokkuð skuldsett,“ segir hann og telur jafnvel líklegt að atvinnuleysi verði komið niður úr tæpum átta prósentum í tvö til þrjú prósent. Það séu eðlilegar tölur á íslenskan mælikvarða. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, og Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður CCP og fleiri fyrirtækja, taka undir með honum. Þórður segir fjölda fyrirtækja vera við þrösk- uldinn og stefni í að um þrjátíu fyrirtæki verði á hlutabréfamarkaði hér í lok næsta árs. Þá muni mörg verða skráð árið 2011. „Við teljum að eftir þrjú til fimm ár verði Kauphöllin búin að ná upp sínum fyrri styrk,“ segir hann og bætir við að ekki sé útilokað að hátt í sextíu fyrirtæki verði þá skráð á markað hér. Þau verði mörg en flest tiltölulega lítil og end- urspegla fjölbreytt atvinnulíf. Vilhjálmur segir, að eftir að hann hafi kynnt sér stöðu efnahagsmála í heiminum um þessar mundir hafi hann orðið sáttari. „Við Íslendingar erum að fara í gegnum mikla hreinsun og munum standa uppi með hagkerfi sem skuldar tiltölu- lega lítið erlendis þegar upp verður staðið.“ Hann telur skuldirnar hér ekki meiri en í öðrum lönd- um auk þess sem lífeyrisskuldbindingar séu nán- ast fullfjármagnaðar og þjóðin ung og vel menntuð. Hann segir mikilvægt að leysa úr gjaldeyriskrepp- unni eins fljótt og auðið er. Lykillinn sé að hefja samstarf við evrópska seðlabankann um gjaldmiðla- stuðning við íslenska seðlabankann. Sjá síður 6-7 Bjart fram undan í íslensku efnahagslífi Hugsanlegt að hátt í sextíu fyrirtæki verði á hlutabréfa- markaði eftir fimm ár, að mati forstjóra Kauphallarinnar.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.