Fréttablaðið - 02.12.2009, Síða 36
MARKAÐURINN 2. DESEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR8
F R É T T I R
Ú R F O R T Í Ð I N N I
U M V Í Ð A V E R Ö L D
350.000
300.000
250.000
200.000
150.000
100.000
50.000
0
1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007
400
350
300
250
200
150
100
50
0
Samtals
skuldir
Meðal
skuldir
S K U L D I R S J Á V A R Ú T V E G S F Y R I R T Æ K J A
Svavar Hávarðsson
skrifar
Skuldir allra fyrirtækja í sjáv-
arútvegi námu 323 milljörðum
króna í árslok 2007. Meðaltals-
skuld á hvert fyrirtæki var 288
milljónir króna og af öllum skuld-
um fyrirtækja í landinu námu
skuldir sjávarútvegsins fjórum
prósentum af heildinni.
Þetta sýnir úttekt Creditinfo á
þróun skulda hjá fyrirtækjum í
landinu samkvæmt ársreikning-
um á tímabilinu 1997 til 2007.
Skuldir ársreikninga byggja á
heildarskuldum fyrirtækja; frá
bönkum og fjármálastofnunum,
opinberum aðilum og birgjum.
Skuldir stærstu sjávarútvegs-
og útgerðarfyrirtækja námu ríf-
lega 87 prósentum af skuldum
þessara fyrirtækja en smábátaút-
gerð og fiskeldi báru minni skuld-
ir. Þetta þýðir að tæplega níutíu
prósent skulda sjávarútvegsfyrir-
tækja voru skuldir tæplega þriðj-
ungs þeirra sem starfa í sjávar-
útvegi.
Þegar skuldaþróun greinarinn-
ar á árabilinu sem greining Cred-
itinfo nær til er skoðuð sést að
meðaltalsskuldir fyrirtækjanna
hafa aukist mjög. Árið 1998, en þá
voru meðaltalsskuldirnar lægstar
á tímabilinu, skuldaði hvert fyrir-
tæki 101 milljón króna en var 356
milljónir árið 2001. Heildarskuld-
irnar þessi ár voru 42 milljarðar
1998 en 223 milljarðar árið 2001.
Í lok tímabilsins voru skuldirn-
ar 322 milljarðar og meðalskuld
hvers fyrirtækis 288 milljónir.
Sveiflur á skuldabyrði milli ára
voru mun meiri á árunum 1997
til 2001 en frá 2002 til loka tíma-
bilsins.
Skuldir íslenskra sjávarútvegs-
fyrirtækja eru taldar vera fimmt-
án til átján prósent í íslenskum
krónum í dag. Hlutfallið árin 1997
til 2007 var svipað að mati Arnars
Sigurmundssonar, formanns Sam-
taka fiskvinnslustöðva (SF). Það
undirstrikar hversu mjög sjávar-
útvegurinn er háður gengi krón-
unnar þegar kemur að skuldum.
Arnar gerði þróunina eftir
2007 að umtalsefni á aðalfundi
SF í september. Í lok árs 2008
voru heildarskuldir sjávarút-
vegsins tæplega 500 milljarðar
króna og 550 milljarðar í lok júlí
í ár. Styrking krónunnar í byrjun
árs lækkaði þessa tölu niður í 470
milljarða í mars sem sýnir enn
og aftur hvernig gengið skekkir
rekstrargrundvöll fyrirtækja á
stuttum tíma.
Rétt er að hafa í huga að út-
flutningsverðmæti greinarinnar
eru nátengd genginu á sama hátt.
Þannig voru útflutningstekjur frá
2001 til 2007 á bilinu 122 til 130
milljarðar. Þær voru 171 milljarð-
ur króna árið 2008 og spár gera
ráð fyrir tæplega 200 milljarða
útflutningstekjum sjávarútvegs-
ins á þessu ári.
Útgerðin bar aðeins fjögur
prósent heildarskulda 2007
Skuldir sjávarútvegsfyrirtækja voru 323 milljarðar árið 2007 en 1998 voru
skuldirnar 42 milljarðar. Útflutningsverðmæti ársins stefna í 200 milljarða.
HVAÐ ER AÐ GERAST Í DÚBAÍ?
Heimurinn hefur fylgst grannt
með furstadæminu Dúbaí und-
anfarna daga eftir að fréttir af
gríðarlegri skuldsetningu og
hugsanlegu efnahagshruni bár-
ust. Margir hafa velt vöngum
yfir því sem þar er að gerast.
Paul Krugman, pistlahöfundur
hjá New York Times og prófess-
or í Princeton, segir þrjár kenn-
ingar uppi um hvernig túlka eigi
atburðinga í Dúbaí.
Í fyrsta lagi sé sú skoðun uppi
að vandræðin þar séu bara byrj-
unin á vandræðum fleiri ríkja,
hrun og kreppa í Dúbaí muni
hafa áhrif víðar um heiminn.
Í öðru lagi sé hægt að líta á að
vandræðin í Dúbaí eins og vand-
ræði hvers annars fjárfestingar-
fyrirtækis sem hefur skuldsett
sig um of. Dubai World, fyrir-
tækjasamsteypan sem hefur
verið í forystu uppbyggingar í
furstadæminu, sé þannig bara
eins og hvert annað fjárfesting-
arfyrirtæki þó í ríkiseigu sé.
Í þriðja lagi sé hægt að líta á
Dúbaí sem algjörlega einstakt
fyrirbæri. Krugman hallast að
samblandi tvö og þrjú og bend-
ir á að kreppan í Dúbaí hafi ekki
haft mikil áhrif í Bandaríkjun-
um.
TOMMY LEE Á GRIKKLAND
En það er hins vegar óumdeilt
að þeir sem hafa fjárfest í Dúbaí
eru ekki að græða á
þeim fjárfestingum.
Meðal þeirra sem
hafa fest kaup á eign-
um í lúxushverf-
um borgríkis-
ins eru ríkir
o g f r æ g -
ir Vestur-
landabúar.
Á vefsíðu
viðskipta-
hluta Berl-
ingske tidende er bent á nokkur
dæmi. David Beckham er sagð-
ur hafa keypt hús á átta milljónir
punda vorið 2008, fyrir tengda-
foreldra sína raunar. Tommy
Lee, fyrrverandi maður Pamelu
Anderson, keypti eina af eyjun-
um sem búnar voru til undan
ströndum Dúbaí, Grikkland ku
vera í hans eigu. Kaupárið var
2007 sem þýðir væntanlega að
verðið hefur verið allhátt. Eyj-
una hugðist hann nota til að
verja þar fríum með Pa-
melu og börnunum. Síðan
hefur verðið lækkað og
Pam ela er komin með
nýjan mann. Aðrir
s e m fj á r fe s t
hafa í Dúbaí
eru Richard
B r a n s o n o g
Denzel Wash-
ington og fót-
boltakappinn
Michael Owen.
Á VEIÐUM Heildarskuldir sjávarútvegsfyrirtækja námu í árslok 2008 tæplega 500 millj-
örðum króna en voru komnar upp í 550 milljarða í lok júlí í ár. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
Yukio Hatoyama, hinn nýi forsæt-
isráðherra Japans, hikar ekki við
að prófa nýjungar sem ráðsett-
ari stjórnmálamenn hefðu ekki
látið sér til hugar koma að fram-
kvæma.
Nú síðast tók hann upp á því að
efna til opins fundar um fjárlaga-
gerðina, þar sem æðstu embætt-
ismenn ráðuneytanna sátu fyrir
svörum. „Hvers vegna fer varnar-
málaráðuneytið eitt fram á fleira
starfsfólk?“ er dæmi um spurn-
ingarnar sem dundu á hinum háu
herrum.
Almenningur flykktist á fund-
inn og svo virðist sem framtak-
ið hafi aukið áhuga fólks á stjórn-
málum. Hatoyama hefur lofað því
að draga verulega úr ríkisútgjöld-
um, og virðist notfæra sér þessa
leið til að auka þrýsting á ráðu-
neytin.
- gb
Opinn fundur um
fjárlögin í Japan
Til leigu Skútuvogur 1, 104 Reykjavík
Gott 700 fm lagerhúsnæði. Tvær háar og góðar innkeyrsludyr (3,6h x 3,55b).
Mikið útipláss. Rúmlega 5 metra lofthæð. Brettarekkar og smávöru hillur eru í
húsnæðinu og geta fylgt. Ekkert milliloft - allt á einum gólffleti! Laust strax!
Einnig laust 270 fm lagerhúsnæði og misstór skrifstofurými í sama húsi.
Nánari upplýsingar veitir Ólafur í s. 824-6703 / 534-1023,
olafur@atvinnueignir.is
Helgi Bjarnason, viðskiptafræðingur, MBA,
löggiltur leigumiðlari og löggiltur fasteignasali
Ólafur Jóhannsson, rekstarfræðingur,
löggiltur leigumiðlari
Hafskip hélt hluthafafund á Hótel
Sögu í febrúar 1985. Þar var sam-
þykkt tillaga stjórnar um að fara
í áttatíu milljóna króna hluta-
fjárútboð. Fundurinn var hald-
inn undir formerkjunum Á kross-
götum.
Eftir ágætt gengi félagsins
tók að halla undan fæti snemma
árs 1984 og þegar líða tók á árið
skrúfaði Útvegsbankinn, helsti
lánardrottinn Hafskipa, fyrir
lánveitingar. Ekki bætti verkfall
BSRB um haustið úr skák en við
það féllu skipasiglingar niður í
heilan mánuð.
Örnólfur Árnason segir í bók
sinni Ísland í aldanna rás 1900 til
2000 Hafskipsmenn hafa talið að
nýtilkomnar Atlantshafssigling-
ar myndu skila miklum ágóða og
rétta fjárhaginn við eftir að flutn-
ingar fyrir varnarliðið duttu upp
fyrir. Verkfall og lánaþurrð kom
sér hins vegar illa. Því var hafist
handa við að afla nýs hlutafjár.
Niðurstaðan var kynnt á fundin-
um á Hótel Sögu. Vorið eftir kom
hins vegar í ljós að tapreksturinn
reyndist meiri en áætlað var og
myndi hlutafjáraukningin því að-
eins fleyta fyrirtækinu skamm-
an spöl.
Útvegsbankinn studdi við bak
Hafskipa í kringum hlutafjár-
aukninguna og lánaði félaginu fé
með tryggingu í skuldabréfum,
sem gefin voru út vegna hluta-
fjárloforðanna.
Hafskip var tekið til gjald-
þrotaskipta í desember 1985, eða
fyrir 25 árum. Björgólfur Guð-
mundsson, forstjóri Hafskipa,
sem á myndinni les upp skýrslu
félagsins, var dæmdur í skil-
orðsbundið fangelsi í tólf mán-
uði fimm árum síðar í tengslum
við gjaldþrotið og brot á lögum.
Þrír aðrir stjórnarmenn fengu
sambærilega dóma.
Björgólfur fór síðar til Rúss-
lands með gamlar vélar úr öl-
gerðinni Sanitas og framleiddi
þar bjór. Hann, sonur hans Björ-
gólfur og félagi þeirra, Magnús
Þorsteinsson, högnuðust verulega
á sölu verksmiðjunnar til hol-
lenska bjórframleiðandans Hein-
eken snemma árs 2002. Undir
lok ársins sömdu þeir um kaup á
Landsbankanum. Björgólfur for-
maður bankaráðs fram í október
2008 þegar ríkið tók hann yfir.
Í lok júlí síðastliðnum var Björ-
gólfur úrskurðaður gjaldþrota og
eru öll þau félög sem skrifuð voru
á hann ýmist komin sömu leið eða
í skiptameðferð.
Síðustu skref fyrir fall