Fréttablaðið - 02.12.2009, Side 37

Fréttablaðið - 02.12.2009, Side 37
MARKAÐURINN 9MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2009 H A U S Gamlir, bilaðir og jafnvel ónýtir far- símar geta nú gengið í endurnýjun lífdaga og öðlast framhaldslíf í fjar- lægum þróunarlöndum. Það er fyrir- tækið Græn framtíð sem blæs nýju lífi í farsímana. „Endurnýting eru einkunnarorð 21. aldarinnar,“ segir Bjartmar Al- exandersson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins. Græn framtíð hefur gert samninga við fyrirtæki og ungmennafélög víða um land um söfnun gamalla farsíma. Fyrirtækið greiðir fyrir söfnunina en sendir símana áfram til erlendra fyrirtækja í Evrópu sem nýta íhluti úr mörgum símum til að búa til heila síma. Símarnir eru síðan seldir fyrir brot af upphaflegu kostnaðarverði til þróunarlandanna. Nokkrir endursöluaðilar Grænn- ar framtíðar í Evrópu vinna með Al- þjóðaheilbrigðisstofnuninni sem sér alnæmissjúklingum í Afríkuríkinu Keníu fyrir farsímum en í álfunni er lítið um landlínur og farsímar því mun algengari samskiptamáti. Farsímanotendur geta meðal ann- ars skilað notuðum farsímum sínum í verslanir Tals við Suðurlandsbraut og í Kringlunni. Stefnt er að því að að endurvinna fleiri rafeindatæki með sama hætti, svo sem fartölvur, að sögn Bjartmars. - jab BJARTMAR Græn framtíð blæs lífi í hálfónýta farsíma. MARKAÐURINN/STEFÁN Gamlir farsímar eiga rétt á framhaldslífi AUGLÝSIR GILLETTE Tiger Woods er eitt af andlitum Gillette. Fyrirtækið hefur lýst yfir fullum stuðningi við kylfinginn. GULUR DEMANTUR Í byrjun árs 2008 opnaði De Beers verslun í Tókýó. Þar var þessi 297 karata guli demantur til sýnis. Hann er metinn á 270 milljónir króna. Stjórn De Beers, stærsta fram- leiðanda demanta í heiminum, hefur ákveðið að fara í hlutafjár- aukningu upp á einn milljarð doll- ara, eða 122 milljarða íslenskra króna. Hluthafar hafa þegar sam- þykkt þetta. De Beers á í miklum skuldavanda en talið er að skuldir þess nemi um 3,5 milljörðum dollara, eða 457 milljörðum íslenskra króna. Verð á demöntum hefur fallið á mörkuðum og á fyrri hluta árs- ins dróst hagnaður fyrirtækis- ins saman um 99 prósent. Vegna erfiðra markaðsaðstæðna þurfti De Beers að loka demantanám- um sínum í Suður-Afríku, Botsw- ana og Kanada um tíma á fyrri- hluta ársins. Námufyrirtækið Anglo American á 45 prósenta hlut í De Beers, Opp- enheimar-fjölskyldan í Suður-Afr- íku á 40 prósenta hlut og Botsw- ana á 15 prósenta hlut. - th Demanta- framleiðandi í fjárhags- vanda Stærstu styrktaraðilar kylfings- ins Tiger Woods hafa gefið út yf- irlýsingu um að þeir standi á bak við sinn mann. Mikil umræða hefur verið um Woods í kjölfarið á því að hann ók á brunahana og tré fyrir utan heimili sitt í Flórída. Enn er ekki ljóst hver tildrög slyssins voru og hafa bandarískir fjölmiðlar verið með ýmsar getgátur í þeim efnum. Nike, Gatorade og Gillette hafa opinberlega lýst yfir stuðningi við Woods en AT&T, American Express og Tag Heuer hafa ekki séð ástæðu til þess. Woods er lang- launahæsti íþróttamaður heims. Aðeins brot af auðæfum hans er verðlaunafé. Til dæmis þénaði hann 23 milljónir dollara, eða 2,8 milljarða króna, á golfvellinum á síðasta ári en auglýsingasamning- ar skiluðu honum 105 milljónum dollara það ár, eða 12,8 milljörð- um króna. - th Styrktaraðilar lýsa stuðningi við Woods Vistvæna prentsmiðjan Göngum hreint til verks! Þverholt 13 - 105 Reykjavík - Sími 511 1234 - www.gudjono.is - áratuga reynsla af Svaninum segir allt! Prentsmiðjan GuðjónÓ hlaut umhverfi svottun fyrst árið 2000 hjá Norræna umhverfi smerkinu Svaninum og getur því umhverfi smerkt allar vörur sínar sem koma frá fyrirtækinu. Hjá GuðjónÓ er rík áhersla lögð á gæði, hraða og góða þjónustu sem uppfyllir ströngustu gæðakröfur. Prentsmiðjan er búin vönduðum tækjakosti sem tryggir hágæðaprentun á hagkvæman hátt. GuðjónÓ ætti að vera fyrsti valkostur þeirra fyrirtækja sem vilja að allir þættir rekstursins séu umhverfi svænir. GuðjónÓ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.