Fréttablaðið - 02.12.2009, Qupperneq 48
32 2. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
menning@frettabladid.is
> Ekki missa af…
leiksýningum sem nú eru að
ljúka göngu sinni: Sannleika
Péturs Jóhanns í Borgarleik-
húsinu og Utan gátta Sigurðar
Pálssonar sem sýnt er í Kassa
Þjóðleikhússins. Leikhúsin
hafa auglýst síðustu sýningar á
þessum verkum.
Á morgun verður sýnd einstök
heimildarmynd í Öskju, stofu 132,
frá árinu 1972. Cina - Chung Kuo
eftir Antonioni. Verkið var unnið
á þeim tíma þegar Antonioni var á
hátindi ferils síns og menningar-
byltingin í Kína í rénun. Að baki
voru Blow up og Zabriskie Point
og naut hann almennrar virð-
ingar. Kínversk stjórnvöld buðu
honum að gera heimsbyggðinni
ljósan byltingarkenndan árang-
ur kínversks samfélags með gerð
heimildarmyndar um landið. Hann
eyddi fimm vikum í tökur, meðal
annars í Peking, Henan-héraði,
Nanjing, Suzhou og Shanghai. En
afurðin féll stjórnvöldum ekki í
geð. Myndin þótti draga fram nei-
kvæðar hliðar samfélagshátta og
henni var afneitað. Hún var sýnd á
RAI en fór ekki víða eftir það.
Kvikmyndin Cina - Chung Kuo
varpar fram einstaklega fag-
urri ásýnd kínversks samfélags.
Með dæmigerðu handbragði sínu,
löngum tökum og áherslu á andlit
og látbragð fólks í hversdagslegu
lífi, lét Antonioni eftir sig einstak-
an vitnisburð um samfélag sem að
mestu hafði verið einangrað í ára-
tugi en stóð á þröskuldi viðamik-
illa breytinga. Verkið er í þrem-
ur hlutum alls um 220 mínútur.
Áhorfendum er frjálst að rápa
inn og út að vild en mælt er með
að þeir sem vilja sitja út sýning-
una taki með sér nesti. Sýningin
hefst kl. 17.15. Myndin er sýnd með
enskum texta.
Einstök heimild sýnd
Á morgun verður sannkölluð jóla-
stemning á hádegistónleikum í
Hafnarborg þegar þær Antonía Hevesi
píanóleikari og Dísella Lárusdóttir
sópran flytja sykursæt amerísk jólalög
og tvær aríur, Prendi úr Ástardrykknum
og Eccomi in lieta vesta eftir Bellini.
Dísella Lárusdóttir syngur um þessar
mundir hlutverk Adinu í Ástardrykkn-
um eftir Donizetti í Íslensku óperunni.
Dísella útskrifaðist úr Söngskólanum
í Reykjavík árið 2002 og fór þaðan í
meistaranám við Westminster Choir
College, Rider University í Princeton
í Bandaríkjunum. Þaðan útskrifaðist hún í maí
2005. Stuttu síðar bar hún sigur úr býtum í
Astral Artistic Services 2006 National Audit-
ions, komst í undanúrslit í Lauren S. Zachary
National Vocal Competition, og í undanúrslit í
söngkeppni Plácido Domingo, Operalia 2006.
Árið 2007 sigraði hún svo í Greenfield-keppni
Fíladelfíu-hljómsveitarinnar og í
kjölfarið bauðst henni að koma
fram með hljómsveitinni á árlegum
galatónleikum sem nefnast Academy
Concert & Ball ásamt píanistanum
unga, Conrad Tao, Blue Man Group
og Billy Joel undir stjórn Christoph
Eschenbach. Stuttu eftir sigurinn í
Greenfield-keppninni komst Dísella
í undanúrslit í Metropolitan Opera
National Council Auditions og í
framhaldi af því fékk hún starfs-
samning hjá Metropolitan-óperunni
í hlutverki Miss Schlesen í óperu
Philips Glass, Satyagraha. Í apríl 2008 hélt hún
debut-tónleika sína í New York í Merkin Hall og
fékk einróma góða dóma fyrir. Disella söng með
Sinfóníuhljómsveit Íslands á árlegum Vínartón-
leikum hljómsveitarinnar í janúar 2009 og hlaut
einróma lof fyrir.
Tónleikarnir hefjast á morgun kl. 12.
Dísella, aríur og jólin í Hafnarborg
TÓNLIST Dísella Lár-
usdóttir sópran
ath kl. 12.15
Garðar Cortes heldur tvenna hádeg-
istónleika á Kjarvalsstöðum þar
sem hann flytur helstu jólaperlur
tónbókmenntanna með píanóleikar-
anum Robert Sund. Þeir fyrri eru í
dag kl. 12.15, en hinir síðari á morg-
un á sama tíma. Þeir hafa starfað
saman frá árinu 1980 og lagt áherslu
á flutning á þekktum og vinsælum
dægurlagaperlum. Á Kjarvalsstöð-
um flytja þeir jólalög.
KVIKMYNDIR Antonioni, hinn virti ítalski
leikstjóri.
Í gær hófst tónleikaferð Áshild-
ar Haraldsdóttur flautuleikara og
hörpuleikarans Katie Elizabeth
Buckley um Norðausturland
með tónleikum í kirkjunni
á Þórshöfn. Þar kom einnig
fram Kór Þórshafnarkirkju.
Í kvöld kl. 20.30 spila þær í
kirkjunni á Húsavík. Tónleik-
arnir eru á vegum nýstofn-
aðs tónlistarfélags – FRÓNs
sem hefur það að mark-
mið að miðla tónlist um
hinar dreifðu byggðir
landsins. FRÓN býður
sveitarfélögum til sam-
starfs hverju sinni og
eru samstarfssveitar-
félögin haustið 2009,
Eyjafjarðarsveit, Dalvíkurbyggð,
Langanesbyggð, Þingeyjarsveit
og Norðurþing. Tónleikar Áshild-
ar Haraldsdóttur og Katie
Buckley eru í samstarfi við
Félag íslenskra tónlistar-
manna og Laugarborg tón-
listarhús. Þar halda áfram
og leika 3. des. kl. 20.30 á
Breiðumýri - Þingeyjarsveit
og 5. des. kl. 14 á Laugarborg
- Eyjafjarðarsveit og kl.
17 í Bergi - menningar-
hús - Dalvíkurbyggð.
Á efnisskrá eru verk
eftir Paul Angerer,
Astor Piazzolla, Henk
Badings, Manuel de
Falla og fleiri.
Tónlist um Norðurland
TÓNLIST Áshildur Har-
aldsdóttir flautuleikari.
MYND FRÉTTABLAÐIÐ
Á Norðurlöndum stendur
leikhús fyrir ung börn
djúpum rótum og þar er
viðurkennt að þjálfa verður
börn sem leikhúsgesti með
efni sem sniðið er fyrir
aldur þeirra og þolinmæði.
Árlega er verulegum fjár-
hæðum eytt þar til leikhús-
uppeldis.
Helgina 5. og 6. desember koma
góðir gestir frá Noregi í heimsókn
í Kúluna, barnaleikhús Þjóðleik-
hússins og sýna dansleikhús án
orða fyrir allra yngstu leikhús-
gestina, allt frá ungabörnum til
fjögurra ára barna.
Tvær sýningar eru hvorn daginn,
kl. 13.30 og 15.00. Að auki eru for-
sýningar í dag miðvikudag og á
morgun fimmtudag sem allir geta
sótt.
Verkið kallast Maríuhæn-
an: Hrekkjóttur álfur og óörugg
maríuhæna villast inn í litlaust
land. Fljótlega taka undarlegir
hlutir að gerast, steinar og sveppir
blikka, sólin og tunglið svífa yfir
og landið breytist í ævintýraskóg.
Allir þessir töfrar hafa mikil en
ólík áhrif á álfinn og maríuhæn-
una en að lokum sameinast þau og
áhorfendur í dansi.
Í lok sýningarinnar fá börnin að
skoða sig um á sviðinu, spjalla við
álfinn og klappa maríuhænunni.
Sýningin hefur verið sýnd í Ósló
og nágrenni og hlotið mjög góðar
viðtökur.
Hugmynd, leikmynd og hreyf-
ingar: Inger Cecilie Bertràn de
Lis en hún og Tinna Grétarsdóttir
dansa verkið við tónlist Karoline
Rising Næss.
Nú gefst foreldrum tækifæri til
að fara með ung börn sín í leikhús
á sýningu sem er samin sérstak-
lega fyrir þau og reynir hvorki á
þolinmæði né margt sem einung-
is eldri börn skilja. Eru foreldr-
ar hvattir til að nota tækifærið.
Aðeins þessar sex sýningar verða
í boði. pbb@frettabladid.is
Álfur og maríuhæna saman
LEIKLIST Inger og Tinna í hlutverkum sínum í Maríuhænunni. MYND/ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ