Fréttablaðið - 02.12.2009, Qupperneq 56

Fréttablaðið - 02.12.2009, Qupperneq 56
40 2. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is Framherjinn Alfreð Finnbogason, leikmaður Breiðabliks, fór í gær í langþráð frí eftir langt tímabil. Hann hélt til Washington í Bandaríkjunum þar sem foreldrar hans búa og mun hann verða ytra fram yfir áramót. „Þetta er búið að vera strembið tímabil og það verður gott að hvíla sig aðeins,“ sagði Alfreð við Fréttablaðið skömmu áður en hann steig upp í flugvélina. Hann fór á dögunum á reynslu til enska B- deildarliðsins Blackpool en ekkert varð af því að félagið byði honum samning. „Þeir voru greinilega ekki að leita að manni eins og mér. Mér gekk svo sem ágætlega á æfingunum þarna en það varð ekkert meira úr þessu og ég hef ekkert meira heyrt frá þeim. Auðvitað er það pínu svekkjandi en ég er nú samt alveg rólegur,“ sagði Alfreð sem er ekki með fleiri járn í eldinum sem stendur. „Eins og staðan er í dag þá stefnir allt í að ég spili áfram á Íslandi næsta sumar. Ég er í viðræðum við Breiðablik og bíð eftir að heyra hvað kemur út úr því,“ sagði Alfreð en umboðs- maður hans mun sjá um viðræðurnar á meðan hann fer í frí. „Breiðablik er sem fyrr fyrsti kostur hjá mér hérna heima og það er spennandi tímabil fram undan þar. Ef maður held- ur áfram að standa sig þá koma vonandi fleiri tækifæri. Ég held því bara mínu striki og bíð eftir að rétt félag og rétt tilboð komi,“ sagði Alfreð en hann gæti spilað með því liði sem hann vill hér á landi enda hafa öll stærstu félög landsins áhuga á þessum efnilega framherja. „Svo opnast glugginn auðvitað aftur í janúar og maður veit aldrei hvað gerist þá. Ef ég sem við Blikana þá verður það væntanlega með þeim for- merkjum að ég geti farið fyrir sanngjarnan pening. Það þarf að vera sanngirni á báða bóga,“ sagði Alfreð en hvar vill hann helst spila? „Það væri mjög gaman að komast að hjá liði í Danmörku, Hollandi eða Belgíu. Einhverju landi þar sem er spilaður fótbolti sem hentar mér,“ sagði Alfreð Finnbogason. ALFREÐ FINNBOGASON: FÉKK EKKI SAMNING HJÁ ENSKA FÉLAGINU BLACKPOOL Það stefnir allt í að ég spili áfram á Íslandi Fjölskylduhjálp Íslands Jólasöfnun Fjölskylduhjálpar Íslands er hafin Þúsundir fjölskyldna eiga um sárt að binda fyrir jólin. Þeir sem eru aflögufærir fyrir þessi jól geta lagt inn á reikning Fjölskylduhjálpar Íslands 101-26-66090 kt. 660903-2590 Tökum á móti matvælum og fatnaði í Eskihlíð 2-4 þriðjudaga kl 9-13 miðvikudaga kl. 9-18 fimmtudaga kl. 9-13 . Símar 551 3360 og 892 9603 GLÆ SILE G O PNU NAR TILB OÐ! GRE NSÁ SVE GI 1 1 NÝ STÓ RGL ÆSI LEG SPO RTV ÖRU VER SLU N! WWW.BETTERBODIES.SE > Diogo framlengdi til ársins 2011 Jordao Diogo, portúgalski bakvörðurinn hjá KR, er búinn að framlengja samning sinn við Vesturbæjarliðið til ársins 2011. Jordao Diogo hefur verið í herbúðum KR-inga síðan sumarið 2008 og hefur spilað 31 leik fyrir félagið í úrvalsdeild karla. Hann lék mjög vel í vinstri bakvarðarstöðunni síðasta sumar. Jordao Diogo er nýorðinn 24 ára gamall en hann kom til Íslands frá Englandi eftir að hafa komið upp í gegnum unglingastarfið hjá Benfica á sínum tíma. HANDBOLTI Forráðamenn þýska stórliðsins Kiel eru greinilega afar ánægðir með störf Alfreðs Gísla- sonar þjálfara því þeir hafa fram- lengt við Alfreð til ársins 2014 en gamli samningur Alfreðs átti að renna út 2011. Alfreð er á sínu öðru ári með þýsku meistarana. „Þetta er snilldarklúbbur og því var aldrei um annað að ræða en að framlengja. Ég er afar sáttur við þessa niðurstöðu,“ sagði Alfreð við Fréttablaðið í gær. „Þegar maður er búinn að vera hér má eiginlega segja að allt annað sé skref niður á við. Það eru ekki margir klúbb- ar sem komast nálægt því sem er hér hjá Kiel,“ sagði Alfreð sem er hvergi nærri á því að hætta í hark- inu í Þýskalandi. „Ég hef alltaf sagt að ég ætli að taka þennan deildarbolta til sextugs ef ég lifi það af í bókstaflegri merk- ingu. Svo hafði ég hug á að fara í eitthvert vínræktarland sem lands- liðsþjálfari. Það verður því varla á Íslandi nema loftslagsbreytingarn- ar verði rosalegar,“ sagði Alfreð og hló við. „Það er stefnan að ná tíu árum í viðbót í deildarboltanum og draumurinn auðvitað að gera það með Kiel.“ Alfreð gerði Kiel að meisturum og bikarmeisturum í Þýskalandi á fyrsta ári með liðið en það sló þess utan stigamet í deildinni í fyrra. Svo fór Kiel einnig í úrslit Meist- aradeildarinnar. Tímabilið í ár hefur svo farið vel af stað en Kiel hefur enn ekki tapað leik í vetur. Alfreð er þekktur vinnuþjark- ur og hann segir að það heilli ekki að færa sig um set til Spánar. „Það er ekki nógu mikil áskorun. Þar erum við kannski bara að tala um sex alvöru leiki á ári en hitt frek- ar auðvelt. Ég vil hafa meira fyrir hlutunum en það, þó svo það sé æðislegt að búa á Spáni. Það topp- ar ekkert Kiel,“ sagði Alfreð sem segir Kiel sífellt vera að bæta við sig og meðal annars verið að vinna í nýrri æfingaaðstöðu. „Svo er Kiel með þá sérstöðu að það er ekki háð einstaklingi eða einum styrktaraðila. Hér er alltaf fullt hús og margir styrktaraðil- ar. Það býr ekkert annað félag við sama öryggi í rekstri og Kiel.“ Helstu andstæðingar Kiel áttu eflaust von á að Kiel myndi hiksta meira en raun ber vitni í vetur enda missti liðið sterka leikmenn og þar á meðal Nikola Karabatic sem er almennt talinn vera besti hand- boltamaður heims. „Þannig lagað hefur þetta gengið betur. Það er mjög gott hjá okkur að halda meðal annars við Hamburg fyrir aftan okkur en það voru litlar breytingar þar. Maður spyr sig að ef Hamburg nær ekki að halda í við okkur núna, hvernig verður það á næsta ári þegar við erum búnir að spila okkur betur saman? Svo erum við með ágætt forskot á Rhein- Neckar Löwen en það lið á bara eftir að styrkjast,“ sagði Alfreð. Alfreð og fjölskylda una sér vel í Kiel sem hann segir vera þægi- legan smábæ. Hann segir það ann- ars skipta sig engu hvar hann sé að vinna. „Það er það mikið að gera fyrir mig að ég hef ekki einu sinni tíma til að kíkja á tölvupóstinn minn. Ég er bara að þjálfa eða í mynd- bandavinnu allan daginn. Þetta er alltaf eins og ekki beint fjölbreytt líf. Ég hef samt enn sama áhuga og drifkraft og áður. Auðvitað hefur maður séð þjálfara brenna upp og ég veit ekki hvort það gerist fyrir mig ef ég held áfram að horfa endalaust á myndbönd. Það gerist eflaust einhvern tímann. Ég gæti ekki verið í þessu harki í dag ef ég væri með lið í neðri hlutanum. Þá færi ég frekar á sjóinn bara hjá Samherja,“ sagði Alfreð Gíslason. henry@frettabladid.is Ég verð landsliðsþjálfari í vínræktarlandi eftir tíu ár Það er ekkert fararsnið á Alfreð Gíslasyni sem er búinn að framlengja samning sinn við Kiel til ársins 2014. Hann stefnir á að þjálfa deildarlið til sextugs. Á TOPPNUM MEÐ KIEL Akureyringurinn Alfreð Gíslason verður áfram við störf hjá líklega besta félagsliði heims í dag. NORDIC PHOTOS/BONGARTS HANDBOLTI Hinn ungi og efnilegi Hafnfirð- ingur, Aron Pálm- arsson, er undir hand- leiðslu Alfreðs hjá Kiel en hann kom til félagsins frá FH. Alfreð er ánægður með strákinn. „Ég er mjög ánægð- ur með hann. Auðvitað kom hann hingað í engu formi enda búinn að vera lengi meiddur en honum hefur gengið vel að aðlagast. Hann er ótrúlega sterkur miðað við aldur og fyrri störf. Hann getur samt enn bætt sig í grundvallaratriðum eins og úthaldi og snerpu,“ sagði Alfreð. „Hann má samt laga þýskuna hjá sér en hann hefur ekki alveg verið nógu duglegur að læra hana. Ætli hann sé ekki of mikið á Facebook,“ sagði Alfreð léttur og hló. - hbg Alfreð er ánægður með Aron Pálmarsson: Ótrúlega sterkur miðað við aldur og fyrri störf FÓTBOLTI Manchester United og Aston Villa komust í undanúrslit ensku deildarbikarkeppninnar í gær- kvöld. Man. Utd vann þá Tottenham, 2-0, á Old Trafford en Aston Villa vann góðan útisigur á Portsmouth, 2-4. Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, tefldi fram hálfgerðu varaliði eins og venjulega í þessari keppni en aðallið Spurs átti samt ekkert í United. Miðjumaður- inn Darron Gibson skoraði tvö mörk í fyrri hálf- leik og kláraði dæmið fyrir heimamenn. Sjálfsmark Stiliyan Petrov gerði ekkert til þess að hjálpa Portsmouth gegn Aston Villa. Leikmenn Villa svöruðu með þremur mörkum frá Emile Heskey, James Milner og Stewart Downing. Kanu minnkaði muninn þrem mínútum fyrir leikslok en Ashley Young kláraði dæmið fyrir Villa tveim mínútum síðar. - hbg Tveir leikir fóru fram í átta liða úrslitum enska deildarbikarsins í gær: Man. Utd og Aston Villa komust áfram HETJAN Darron Gibson skaut Man. Utd áfram í deildarbikarnum í gær. NORDIC PHOTOS/AFP
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.