Fréttablaðið - 02.12.2009, Síða 59

Fréttablaðið - 02.12.2009, Síða 59
MIÐVIKUDAGUR 2. desember 2009 43 FÓTBOLTI Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, er allt annað en ánægður með blaðamann The Independent sem gagnrýndi harðlega ungu strákana hans fyrir frammistöðuna í heimatap- inu á móti Besiktas í Meistara- deildinni í síðustu viku. Rafael da Silva, Gabriel Obert- an, Darron Gibson, Federico Macheda og Danny Welbeck spil- uðu allir allar 90 mínúturnar á móti Besiktas. Blaðamaður The Independent skrifaði eftir Besiktas-leikinn: „Það er engin framtíð fyrir þessa leikmenn og þeirra tími mun ekki koma hjá United“ og þessi pistill hans vakti svo sannarlega við- brögð hjá stjóranum. „Þvílíkt fífl. Ég trúði þessu ekki. Þetta er fáránleg yfirlýs- ing. Þegar Beckham, Butt, Schol- es og hinir ungu strákarnir spil- uðu árið 1996 þá voru þeir 22 ára gamlir eða þremur árum eldri en þessir strákar. Ég get lofað ykkur því að þessi sami blaðamaður mun biðja um viðtöl við þá þegar þeir eru orðnir stórar stjörn- ur. Munið þessi orð mín,“ sagði Ferguson og bætti við: „Það á reka þennan blaðamann fyrir svona rugl,“ sagði Sir Alex ósáttur. - óój Sir Alex Ferguson: Vill láta reka blaðamann SIR ALEX Liggur ekki á skoðunum sínum frekar en fyrri daginn. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Thierry Henry er ekki sloppinn þrátt fyrir að hafa beð- ist formlega afsökunar á því að hafa notað höndina þegar hann lagði upp jöfnunarmarkið mikil- væga fyrir Frakka í umspils leik við Íra. FIFA mun taka mál hans fyrir á fundi á morgun og þar kemur til greina að refsa Barce- lona-manninum fyrir „svindlið“. Sepp Blatter, forseti FIFA, hefur talað við Thierry Henry og þegar Frakkinn spurði út í hugs- anlega refsingu þá svaraði Blatt- er að málið yrði tekið fyrir hjá framkvæmdastjórninni. FIFA mun fara yfir málið á öllum hliðum og líklegt þykir að niðurstaðan verði kynnt um leið og þær aðgerðir sambandsins til þess að koma í veg fyrir svona áberandi mistök í framtíðinni. Meðal þess sem kemur til greina er að setja fimm dómara á leikina á HM næsta sumar þar sem tveimur marklínudómurum yrði bætt við eins og viðgengst í Evrópudeildinni í vetur. - óój Thierry Henry: Verður hugsan- lega refsað HÖNDIN Atvikið sem enn er verið að ræða um. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Argentínumaðurinn Lion- el Messi var í gær útnefndur besti knattspyrnumaður Evrópu. Valið kom engum á óvart enda átti Messi hreint út sagt ótrúlegt tímabil í liði Barcelona sem vann glæsilega þrennu. Messi fékk 473 stig í kjörinu en Cristiano Ronaldo, sem varð annar fékk 233 stig en aldrei áður hefur verið eins mikill munur á milli tveggja efstu manna. Messi var hógvær líkt og áður er honum var tilkynnt um úrslitin í kjörinu. „Að sjálfsögðu gerði ég mér grein fyrir því að ég ætti mögu- leika að vinna þessa útnefningu. Ég átti samt aldrei von á þetta afgerandi kosningu. Þetta er mik- ill heiður og að vinna þessi verð- laun skiptir mig miklu máli,“ sagði Messi við France Football sem stendur fyrir kjörinu. Messi er sjötti leikmaður Bar- celona sem vinnur þessi verðlaun og sá fyrsti í fjögur ár en þá hlaut Ronaldinho þessa útnefningu. „Allir sem hafa unnið þessi verð- laun eru stórkostlegir leikmenn og það eru líka margir frábær- ir leikmenn sem hafa ekki hlotið þessi verðlaun,“ sagði Messi en félagi hans hjá Barcelona, Xavi, varð þriðji í kjörinu með 170 stig og Andres Iniesta kom þar á eftir með 149 stig. - hbg Lionel Messi var valinn knattspyrnumaður Evrópu af France Football með áður óséðum yfirburðum: Átti ekki von á svona afgerandi kosningu LIONEL MESSI Átti hreint ótrúlegt ár með Barcelona. NORDIC PHOTOS/AFP JÓLA GJAFA HUGMY NDIR Þ ÍSLEN SK HÖ NNUN INDRIÐI Heilrennd peysa úr Tecnostretch® efni frá Pontetorto®. 1 brjóstvasi og 2 renndir vasar. Stuttur kragi sem fellur að hálsinum. Stærðir: S-3XL 6.990 kr. JAKOB Heilrenndur jakki. Einn brjóstvasi og 2 hefðbundnir vasar. Rennilás sem hægt er að renna í báðar áttir. Tecnostretch® efni frá Pontetorto®. Mjúkur og hlýr. Stærðir: S - 3XL 7.990 kr. EMBLA Klassísk flíspeysa. 2 renndir vasar á hliðum. Rennilás að framan sem hægt er að renna í báðar áttir. Tecnopile® flísefni frá Pontetorto. Stærðir: XS - 4XL 7.990 kr. JÓNÍNA Sú vinsælasta! Heilrennd með hettu og 2 vösum. Rennilásar eru neðst á ermum sem gefa möguleika á víkkun. Innan í hettu er svart flísefni. Stærðir: XS - 4XL 8.990 kr. KRISTJÁN Heilrenndur jakki gerður úr vatnsfráhrindandi og vindheldu Teflon® húðuðu No Wind® efni frá Pontetorto®. Mjög léttur jakki sem hentar í allskyns útivist. Stærðir: S-3XL 14.900 kr. UNA Heilrenndur jakki. Mjúk, vindheld skel úr No Wind® efni frá Pontetorto® á Ítalíu. Cordura® styrkingarefni á síðum, ermum og öxlum. Einn brjóstvasi og 2 hefðbundnir vasar. Rennilás sem hægt er að renna í báðar áttir. Falin stillanleg teygja í faldi. Klassísk Cintamani flík. Stærðir: XS-3XL 10.990 kr. A3 OUTLETT AUSTURHRAUN 3 210 GAR-DABÆ, S. 5333811

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.