Fréttablaðið - 05.12.2009, Síða 2

Fréttablaðið - 05.12.2009, Síða 2
2 5. desember 2009 LAUGARDAGUR Halldór, vitið þið þá nokkuð um hvað þið verðið að fjalla, bræðurnir? „Já, já, við komum ekki af fjöllum í þessum efnum.“ Karlakórinn Fjallabræður tekur þátt í risa- vöxnu alþjóðlegu verkefni þar sem kórar um allan heim syngja Bítlalagið All You Need Is Love á sama tíma. Halldór Gunnar Pálsson sagði kórfélögum að henda texta- blöðunum, þetta væri ekkert flókið. LÖGREGLUMÁL Catalina Mikue Ncogo og samstarfskona hennar hafa verið úrskurðaðar í gæslu- varðhald til 11. desember að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu. Þær voru handteknar í fyrra- dag. Catalina var á þriðjudag dæmd í fangelsi fyrir hórmang og fíkniefnasmygl. Í tengslum við rannsóknina nú hefur lögreglan lokað fyrir vændisstarfsemi í húsi í miðborginni. Konurnar tvær sem nú sæta gæsluvarðhaldi, önnur um tvítugt en hin um þrítugt, eru grunaðar um aðild að mansali og að hafa haft milligöngu um vændi. Þær eru báðar íslenskir ríkisborgarar, en Catalina er ættuð frá Miðbaugs- Gíneu. Lögregla hefur unnið að rannsókn málsins á undanförum vikum Samhliða handtöku Catalinu og hinnar konunnar, sem gegnt hefur starfi eins konar framkvæmda- stjóra hennar voru framkvæmd- ar húsleitir á tveimur stöðum. Á öðrum þeirra fannst lítilræði af fíkniefnum. Að minnsta kosti þrjár konur til viðbótar koma við sögu í málinu en þær eru taldar hafa lagt stund á vændi. Þær eru allar á fertugs- aldri og af erlendu bergi brotnar. Mál einnar þeirrar er jafnframt rannsakað sem mansalsmál en konurnar þrjár hafa verið færðar til skýrslutöku hjá lögreglu. Rann- sóknin tekur einnig til þeirra sem keyptu kynlífsþjónustuna sem veitt var. Ekki fékkst uppgefið hversu margir kaupendur hafa verið yfirheyrðir hjá lögreglu, en þeir eru allir íslenskir og voru að minnsta kosti sumir gómaðir á vettvangi, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Catalina var dæmd í Héraðs- dómi Reykjaness í tveggja og hálfs árs óskilorðsbundið fang- elsi fyrir að hafa haft viðurværi af vændi kvenna sem hún hélt úti í miðborg Reykjavíkur. Þótti dómn- um sannað, í ljósi ýmissa fyrir- liggjandi gagna, að vændisstarf- semin hefði verið umfangsmikil og að vændiskonurnar sem Catal- ina græddi á í hórmanginu hefðu verið fjölmargar. Þá var hún einnig dæmd fyrir að hafa skipulagt og staðið að inn- flutningi á 400 grömmum af kóka- íni til landsins frá Hollandi. Hún var hins vegar sýknuð af ákærum um mansal. Lögmaður Catalinu sagði að dómi gengnum að honum yrði áfrýjað til Hæstaréttar. jss@frettabladid.is Catalina tekin aftur ásamt samstarfskonu Catalina Mikue Ncogo hefur aftur verið hneppt í gæsluvarðhald vegna rann- sóknar lögreglu á stórfelldu hórmangi og mansali. Vændishúsi í miðborginni hefur verið lokað. Erlend kona í vændi hér er talin fórnarlamb mansals. CATALINA MIKUE NCOGO Catalina situr í gæsluvarðhaldi ásamt samstarfskonu sinni vegna rannsóknar lögreglu á stórfelldu hórmangi og mansali. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM GRINDAVÍK Bæjarfulltrúar Vinstri grænna í Grindavík styðja ekki lengur meirihlutasamstarf Fram- sóknarflokks og Samfylkingar, og hafa þess í stað óskað eftir við- ræðum við Sjálfstæðisflokk og Samfylkingu. Ástæða þessa er að bæjarfull- trúar Framsóknar hafa hugsað sér það fyrirkomulag að hafa engan bæjarstjóra starfandi í Grindavík til vors, eða annars þrjá bæjar- stjóra. Frá þessu segir á vef Víkur- frétta. Bæjarfulltrúarnir Björn Haraldsson og Garðar Páll Vignis- son hafa því sent fulltrúum D- og S-lista bréf og biðlað til þeirra að taka höndum saman við stjórn bæjarins, með bæjarstjóra í fullu starfi. - sh Meirihlutaslit í Grindavík: Vilja að borgar- stjóri verði í fullu starfi FULLT HÚS JÓLAGJAFA 2.290 kr. Valbjörn Þor- láksson frjáls- íþróttamaður lést á hjúkr- unarheimil- inu Skógarbæ á fimmtudag, 75 ára að aldri. Íþróttaferill Valbjörns var farsæll en hann lagði einkum stund á tugþraut og hafði sér- stakt dálæti á stangar stökki. Valbjörn keppti á þrennum Ólympíuleikum, árin 1960, 1964 og 1968, varð Norður- landameistari 1965 og heims- meistari öldunga 1979. Í tvígang var hann valinn íþróttamaður ársins, árin 1959 og 1965. Valbjörn starfaði árum saman á Laugardalsvellinum og er Valbjarnarvöllur nefndur eftir honum. Valbjörn Þor- láksson látinn OLÍUVERÐ, AP Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði í gær eftir að birtar voru nýjar tölur um atvinnustig í Bandaríkjunum. Atvinnuleysi reyndist minna vestra en við var búist og er það talið til marks um að eftirspurn kunni að aukast í hagkerfinu, og mögulega orkugeiranum. Viðmiðunarverð hráolíu á skiptimarkaðnum í New York hækkaði um 78 sent, í 77,24 Bandaríkjadali. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum féll niður í tíu prósent í nóvem- ber, samkvæmt nýjustu tölum. Störfum hafði fækkað um ellefu þúsund í síðasta mánuði, sem er mun betri niðurstaða en þau 130 þúsund störf sem hagfræðingar á Wall Street höfðu búist við. Bágar horfur um atvinnu: Verð á olíu snögghækkar FJÁRMÁL Arion banki hyggst ekki krefjast uppboða vegna vangoldinna húsnæðislána til loka ársins 2010. Höfuðstóll erlendra íbúðalána getur lækkað um allt að 40 prósent. Hægt verður að lækka höfuð- stól bæði innlendra og erlendra íbúðalána hjá Arion í 110 prósent af markaðsvirði húseignar innar. Nýjar lausnir á skuldavanda viðskiptavina Arion banka voru kynntar í gær. Boðið verður upp á nokkr- ar leiðir eftir skuldastöðu viðskiptavina og því hvort um er að ræða erlend eða innlend íbúðalán. Þeir sem eru með erlend húsnæðislán getið valið um að annars vegar lækka höfuðstól lánsins um 30 prósent og breyta því í fasteignalán í íslenskum krónum til allt að 40 ára eða að höfuðstóll lánsins verði lækkaður í 110 prósent af markaðsvirði eign- arinnar. Láninu er þá breytt í íslenskt fasteignalán, óverðtryggt eða verðtryggt. Báðar leiðirnar gera hins vegar ráð fyrir allt að 30 til 40 prósenta lækk- unum á höfuðstól núverandi lána. Þeim sem eru með innlend íbúðalán hjá Arion býðst að lækka höfuðstólinn í 110 prósent af markaðsvirði fasteignarinnar. Vaxtakjör verða óbreytt. Þá býður Arion viðskiptavinum að borga eingöngu vexti af fasteignalánum í allt að eitt ár. Þannig geta mánaðarlegar greiðslur lækkað um 10 til 25 prósent eftir lengd lánstímans. - gar Arion banki með nýjum eigendum boðar skuldaniðurfellinga fyrir viðskiptavini: Höfuðstóll íbúðarlána færður niður BLAÐAMANNAFUNDUR ARION BANKA Fulltrúar Arion banka kynntu í gær nýjar lausnir fyrir lántakendur hjá bankanum. Engra uppboða verður krafist út næsta ár. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FJÖLMIÐLAR Frétta- blaðið er 144 síður í dag og hefur aldrei í útgáfu- sögu blaðsins verið stærra. Fréttablaðið er í fjórum hlutum, almenni hlutinn er 112 síður. Þá fylgir blaðinu tólf síðna glæsilegt matarblað, tólf síðna atvinnublað og sérblaðið Allt, sem telur átta síður. Jólaútgáfan í fullum gangi: Fréttablaðið aldrei stærra SAMGÖNGUR Bæjarráð Vestmanna- eyja harmar að sú hugmynd sé komin upp að fækka ferðum Herj- ólfs enn frá því sem nú er. Ráðið fjallaði um málið í gær og sagði hugmyndirnar færa samgöngur til Eyja langt niður fyrir skynsamleg sársaukamörk, eins og segir í frétt á Eyjar.is. Vegagerðin hefur óskað eftir því að kannaðir verði möguleikar til lækkunar kostnaðar með því að fækka ferðum Herjólfs um tvær á viku tímabilið janúar til og með apríl á næsta ári. Rekstrarstjóri Eimskipa segir í bréfi til bæjaryfirvalda að mat Eimskipa sé að sársaukaminnst sé að farin verði ein ferð á miðviku- dögum og seinni ferð þá sleppt. Einnig er lagt til að farin verði ein ferð á laugardögum. Bæjarráð telur að samfélagið geti ekki sætt sig við skerðingu frá því sem nú er, en tvær ferðir eru grunnáætlun ferjunnar. Minnt er á að innan skamms verði hætt með flug milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur, Bakkaflug liggi niðri, hætt hafi verið við nýsmíði á ferju og engar upplýsingar fáist um gjaldskrá og áætlun Herjólfs í Landeyjahöfn. Bæjarráð mun fela bæjarstjóra að gera grein fyrir þeirri afstöðu bæjarráðs að það muni ekki taka afstöðu til þess hvort eða hvaða ferðir verði felldar niður fyrr en tilkynning um slíka ákvörðun berst frá samgönguyfirvöldum. - shá Vegagerðin ámálgar breytingar á grunnáætlun Eyjaferjunnar Herjólfs: Vilja fækka ferðum til Eyja HERJÓLFUR Bæjaryfirvöld spyrja hversu langt eigi að ganga í skerðingu sam- gangna við Eyjar. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON STJÓRNMÁL Varnarmálastofnun verður lögð niður á næsta ári og verkefni hennar færð til borgar- legra stofnanna sem eiga að verða burðarás í fyrirhuguðu innanríkis- ráðuneyti. „Umrædd breyting mun ekki hafa efnisleg áhrif á varnar- og öryggisskuldbindingar Íslands, svo sem þátttöku í starfi Atlants- hafsbandalagsins, varnarsamn- inginn við Bandaríkin eða annað fjölþjóðlegt samstarf um örygg- ismál. Utanríkisráðuneytið mun eftir sem áður hafa forræði yfir utanríkispólitískum þáttum á borð við samskipti við NATO,“ segir í frétt utanríkisráðuneytisins. - gar Utanríkisráðuneytið hagræðir: Varnarmála- stofnun hættir Fleiri farþegar en í fyrra Farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgaði í nýliðnum mánuði saman- borið við sama tíma í fyrra. Fækkun var milli mánaða í fimm mánuði þar til nú, að dæmið fór aðeins að snúast við. Alls 95 þúsund farþegar fóru um flugvöllinn í síðasta mánuði. KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR Sími: 512 5000 MEST LESNA DAGBLAÐ Á Í SLANDI 5. desember 2009 — 288. tölublað — 9. árgangur Minni afleiðingar kreppu í Dúbaí UMFJÖLLUN 38 BÆKUR 60 Huldar Breiðfjörð og Færeyingarnir VIÐTAL 48 TVÖ SÉRBLÖÐ Í DAG matur [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ] desember 2009 FRÉTT ABLAÐ IÐ/GVA Dísætt og draumkennt Í Skandinavíu er rík hefð fyrir því að bakarar fylli borðin hjá sér af skrautlegum marsípan- fígúrum fyrir jól, enda fallegar á veisluborðið og með eindæmum góðar. Gerir allt frá grunni Álfheiður Vilhjálmsdóttur bakar sörur fyrir hver jól. SÍÐA 8 Gómsæt og holl Guðleif Fríður Sigurjónsdóttirhefur ávaxtaköku á aðfangadagskvöld sem hún býr til í nóvember. SÍÐA 4 Markmiðið með sölunni er að auðga líf fatlaðra barna og ungmenna og rennur allur ágóði til starfs í þeirr a þágu. STYRKTARFÉLAG LAMAÐRA OG FATLAÐRA - www.slf.is Sölut ímabi l 5. – 19. desember Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 5 12 5426 Hrannar Helgason hrannar@365. is 512 5441 gEirber Öugur sölumað ur heilbrigðisvar a Traustur starfsmaður með góða reynslu af sölu- og markaðsmá lum óskast til starfa. Við leitum að öugum einstaklin gi með skipulagshæleika, frum kvæði og metnað til að ná árangri í star Starfssvið • Sérhæfð sala og ráðgjöf fyrir h eilbrigðisstofnanir og fagfólk • Samskipti við innlenda og erle nda aðila • Afgreiðsla í verslun • Tilboðsgerð samkvæmt útboð slýsingum • Gerð sölu- og markaðsáætlan a Menntunar- og hæfniskröfu r • Háskólamenntun er æskileg • Reynsla af sölumennsku • Hæfni í mannlegum samskiptu m • Frumkvæði og skipulögð vinn ubrögð • Gott vald á íslensku og ensku Nánari upplýsingar er að nna á www.eirberg.is Umsóknarfrestur er til 14. desem ber og skal senda umsóknir á ne tfangið ahj@eirberg.is Eirberg er innutnings- og þjónus tufyrirtæki fyrir heilbrigðis- stofnanir, fagfólk og almenning sem hefur að markmiði að e heilsu og auka lífsgæði, auðvelda st örf og daglegt líf, stuðla að hagræði og vinnuvernd. Staða bankastjóra A i banka hf KLÆDDU AF ÞÉR KULDANN TÍSKA 86 SLITNIR GÍTARSTRENGIR OG TÓMAR BJÓRFLÖSKUR Fréttablaðið fylgist með múm á túr. HELGIN 56 Bestu og verstu bóka- kápur ársins ALÞINGI Umræður um s íðara Icesa- ve-frumvarp ríkisstj órnarinnar höfðu staðið í um 95 kl ukkustundir þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi. Þá stóð yfi r kvöldfund- ur á Alþingi. Fjölmarg ir þingmenn voru á mælendaskrá. Í gærkvöldi vantaði se x klukku- stundir til þess að Ices ave-umræð- urnar yrðu þær lengst u sem staðið hafa á Alþingi, frá því að þingið fór að starfa í einni málsto fu árið 1991. Þrjár umræður um EE S-samning- inn stóðu samtals í 101 klukkustund þingveturinn 1992-199 3. Rætt var um fjölmiðlafrumvarp í 83 klukku- stundir árin 2003 og 2 004. Icesave-frumvarpið er annað frumvarp ríkisstjórn arinnar um ríkisábyrgð á lántöku trygginga- sjóðs innstæðueigen da. Fyrra Icesave-frumvarpið v ar rætt í 43 klukkustundir á Alþin gi í sumar. Ef ræðutími fyrra o g seinna Icesave-frumvarpsin s er lagður saman var hann í gæ rkvöldi orð- inn 138 klukkustundir . Þingmenn hafa farið 1 .754 sinn- um í ræðustól til að tjá sig um seinna Icesave-frum varp ríkis- stjórnarinnar. Flutta r hafa verið 172 ræður en 1.581 s tutt athuga- semd. Á sumarþingi fór u þingmenn 633 sinnum í ræðust ól, fluttu 86 ræður en gerðu 547 a thugasemd- ir. Alls hafa þingmenn því tekið til máls í 2.387 skipti um Icesave. Fram til 1991 starfað i Alþingi í tveimur málstofum. La gafrumvörp gátu þá þurft allt að n íu umræður í þinginu. Ekki eru til upplýsingar um umræðutíma eins takra mála fyrir 1991. Samkomulag um fram hald þing- funda lá ekki fyrir þeg ar blaðið fór í prentun. Formenn stjórnarands töðuflokk- anna kynntu í gær ti llögu um að vísa Icesave-málinu fr á Alþingi og til meðferðar hjá Evró pusamband- inu. „Við höfum gert þrjár meirihátt- ar tilraunir til að koma vitinu fyrir þau, enþær hafa ekki borið árang- ur,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra. - pg / sjá síðu 6 Icesave að slá met Þingmenn hafa tekið til máls í 2.387 skipti um Icesave. Umræðu rnar slá við lengstu umræðum hi ngað til, sem stóðu í 1 01 klukkustund um E ES-samninginn. – áfram fyrir þig og þína FYRSTI VALKOSTUR ÍSLENDINGA! D Y N A M O R EY K JA V ÍK Opið t il 22 til jóla Sjá auglýsingu bls. 89 MAGNAÐ helgartiboð, allt að 50% afsláttur. FÓTBOLTI Brasilía og Po rtúgal verða í dauðariðlinum á HM næsta sumar ásamt Fí labeins- ströndinni og Norður- Kóreu. Dregið var í riðlana í g ær. Englendingar sluppu v el og mæta Bandaríkjunum , Alsír og Slóveníu. Ítalía og Spánn sluppu samt lík- lega hvað best en þær þjóðir eru í afar veikum riðlum. Opnunarleikur keppni nnar verður viðureign heim amanna í Suður-Afríku gegn Me xíkó. - hbg / nánar á síðu 100 Dregið í riðla fyrir HM: Brasilía er í dauðariðlinum FINNUR SVEIN- BJÖRNSSON Á KAFI Í JÓLAUNDIRBÚN INGI Nú styttist óðum í að jólin gangi í garð enda ann ar í aðventu á morgun. Jóla undirbúningurinn er komin á fullt og ekki seinn a vænna en að fara að hug a að jólagjöfum eða jafnve l jólafötunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓLK „Af því að fólk er að glíma við erfiðar afleiðingar hruns- ins þá er tilhneiging t il að kenna öðrum um eigin ófarir eða erfið- leika sem við er að glíma. Í gangi er því einhver beiskja og vantraust og trúnaðartraust milli fólks og banka,“ hefur beðið skaða segir Finnur Sveinbjörnsson se hættir sem bankastjóri Arion banka um áram ótin. Í helgarviðtali segir F inn- ur einnig frá því að ho num hafi komið þægilega á óvar t að ótti um afskipti stjórnmál amanna af rekstri Nýja Kaupþing s - síðar Arions - hafi reynst ás tæðulaus. „Einhverjar sögusagn ir sem verið hafa á kreiki um að ráð- herrar hafi verið á vap pi og beitt sér í 1998/Haga-málin u eru bara rangar,“ segir bankas tjórinn. - gar Fráfarandi bankastjóri Arion: Eðlileg beiskja hjá almenningi SPURNING DAGSINS
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.