Fréttablaðið - 05.12.2009, Qupperneq 4
4 5. desember 2009 LAUGARDAGUR
EFNAHAGSMÁL Tilkynning Norræna
fjárfestingarbankans á hærri
vaxtakjörum á nokkrum íslensk-
um lánum er í fullu samræmi
við reglur bankans, segir Johnny
Åkerholm, forstjóri bankans. Hann
segir Íslendinga fá sömu meðferð
hjá bankanum og aðra.
„Bankinn hefur ekki tekið neina
ákvörðun um að hætta að fjár-
magna verkefni á Íslandi, alls
enga. En við störfum náttúrlega
einnig, líkt og alþjóðlegar lána-
stofnanir og einkabankar, eftir
reglum um eðlilega bankastarf-
semi og við metum áhættuna
þegar kemur að fjármögnun og
lánveitingum.
Á Íslandi höfum við verið settir
í flokk með fjárfestum í einkageir-
anum og það hefur að sjálfsögðu
aukið áhættu okkar umtalsvert.
Það sést best á því að virðisrýrnun
lána okkar kemur í raun frá
Íslandi.“
Líkt og Fréttablaðið greindi
frá tilkynnti bankinn nokkrum
íslenskum lántakendum um hærri
vaxtakjör á lánum. Á langtíma-
lánum eru vaxtakjör endurskoðuð
reglulega.
„Við endurmat tökum við tillit til
aukinnar áhættu. Við mátum þessi
lán alveg eins og við hefðum gert
við lán frá öðrum löndum, hvort
sem það væri Svíþjóð eða Finn-
land, svo dæmi sé tekið. Áhættan
hefur aukist og því hækka vext-
irnir.“
Johnny segir að vegna mistaka
hafi það gerst í einhverjum tilvik-
um að lántakanum hafi ekki verið
tilkynnt um endurmat innan til-
skilins frests, sem er 45 dögum
fyrir vaxtaákvörðunardag. End-
urskoðun verði frestað í þeim til-
vikum.
„Við endurskoðun hefur bankinn
samband við viðskiptavini og til-
kynnir um breytta vaxtaákvörðun.
Viðskiptavinurinn getur þá kosið
að taka lán annars staðar og greiða
lánið upp hjá okkur ef hann er
ósáttur, eða samþykkt kjör okkar
eða endursamið. Um þetta gilda
sömu reglur fyrir alla.“
Forstjórinn segir bankann
fylgjast vel með því hvað alþjóðleg
matsfyrirtæki gera og ljóst sé að
lánshæfismati Íslands hafi hrakað
umtalsvert. Ísland sé þó ekki eina
landið þar sem áhættumat hafi
breyst vegna efnahagsástandsins
og vextir séu endurmetnir í takt
við það. „Við höfum þó ekki lent
í sérstökum vandræðum nema á
Íslandi.“
Norræni fjárfestingarbankinn á
umtalsverða kröfu í þrotabú gömlu
bankanna. kolbeinn@frettabladid.is
Ísland fær alls enga
sérmeðferð hjá NIB
Forstjóri Norræna fjárfestingarbankans segir eðlilega staðið að vaxtahækkun
íslenskra lána. Bankinn verði að meta áhættu við lánveitingarnar. Töluvert fé
hafi tapast á lánum til Íslands. Ekki sé búið að skrúfa fyrir lán til landsins.
FORSTJÓRINN Johnny Åkerholm, forstjóri Norræna fjárfestingarbankans, segir að
alls ekki hafi verið skrúfað fyrir lánveitingar til Íslands. Meiri áhætta fylgi nú lánum
hingað til lands og það skýri hækkun vaxta.
VESTURBYGGÐ Hafnarskúr sem
nýlega var settur upp við Hafnar-
vogina á Bíldudal olli nokkuð
hörðum orðaskiptum á fundi
hafnarstjórnar Vesturbyggðar á
fimmtudag.
Á fyrri fundi stjórnar hafði
verið samþykkt að taka 600 þús-
und króna tilboði Láss ehf. í gám-
inn og uppsetningu hans. Þegar
upp var staðið kostaði gámurinn
1.580 þúsund krónur með öllu,
og af því fæst ríflega 300 þúsund
króna virðisaukaskattur endur-
greiddur. Einn stjórnarmaður lét
bóka mótmæla við framúrkeyrsl-
una, en hafnarstjórinn sagði hana
hafa verið óhjákvæmilega. - sh
Deilt um bruðl á Bíldudal:
Hafnarskúr tvö-
faldaðist í verði
BAKKABRÆÐUR
FYRIR BÖRNIN
lum börnum erl
auðsynlegt aðn
ynnast þessum
óborganlegu
bræðrum sem
o rækilega hafa
greypt sig inn
þjóðarvitundí
Íslendinga.
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
BÓLUSETNINGAR BEÐIÐ Biðröð eftir
bólusetningu gegn svínaflensu við apó-
tek Bobs Johnson í Seattle í Bandaríkj-
unum í byrjun nóvember. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LONDON, AP Lyfjastofnun Evrópu
hefur bent á að ung börn sem fá
bóluefni GlaxoSmithKline við
svínaflensu kunni að fá hita af
völdum seinni skammts bólu-
efnisins.
Í tilkynningu stofnunarinnar í
gær kemur fram að fleiri börn á
aldrinum sex mánaða til þriggja
ára hafi fengið hita eftir seinni
bólusetninguna af bóluefninu
Pandemrix. Þá voru þau líklegri
til að fá aukaverkanir á borð við
eymsli í vöðva, syfju og ergelsi.
Stofnunin mælir með því að
börn séu bólusett tvisvar með
svínaflensubóluefninu, en Glaxo
segir að einu sinni nægi.
Bóluefni GlaxoSmithKline:
Getur valdið
hita hjá börnum
Sjö seldu börnum tóbak
Sjö sölustaðir tóbaks af 21 seldu
fimmtán ára unglingum tóbak í könn-
un sem forvarnafulltrúi bæjarins stóð
fyrir í lok nóvember.
HAFNARFJÖRÐUR
DÓMSMÁL Lögreglustjórinn á Sel-
fossi hefur ákært tvítugan pilt
fyrir að fella annan pilt í jörðina
og traðka tvívegis á bringu hans.
Þá hefur tæplega tvítugur pilt-
ur verið ákærður fyrir að kýla
annan pilt einu höggi í höfuðið.
Fórnarlambið steinrotaðist við
höggið og féll í jörðina. Pilturinn
sem fyrir árásinni varð hlaut tals-
verða áverka. Hann fer fram á
tæpa milljón í skaðabætur.
Loks var maður á fertugsaldri
ákærður fyrir að gefa dyraverði
á 88 bar á Selfossi þungt olnboga-
skot í andlitið. Dyravörðurinn fer
fram á rúmar 400 þúsund krónur í
skaðabætur. - jss
Þrjár líkamsárásir:
Traðkaði tvisvar
á bringu pilts
Standa vörð um skólastarf
Í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið
2010 er tekið mið af þeim áherslum
sem fram komu á nýlegum íbúa-
fundi. Sérstök fjárveiting er veitt til
að styrkja barna- og unglingastarf
hjá íþrótta- og æskulýðsfélögum í
bænum.
SVEITARSTJÓRNARMÁL
EFNAHAGSMÁL Steingrímur J. Sig-
fússon fjármálaráðherra segir
að stjórnin hafi vonast til að Nor-
ræni fjárfestingabankinn (NIB)
stæði með Íslendingum á erfið-
um tímum. „Það hefði verið betra
frekar en að gera lánskjör erfiðari,
hvað þá að boða gjaldfellingu eða
eitthvað slíkt.“
Gylfi Magnússon viðskiptaráð-
herra tók fyrirhugaða vaxtahækkun
bankans á íslenskum lánum fyrir á
fundi norrænna fjármálaráðherra
í gær. Fjármálaráðherra segir að
stjórnin hafi haft vaxandi áhyggj-
ur af áformum bankans og málinu
verði haldið opnu.
Ergilegt sé að slíkt mál komi
upp, ekki síst þar sem íslensku
lánin hafi verið í skilum. „Það geta
verið frávik á því en að uppistöðu
eru þessi lán í fullum skilum. Við
hefðum viljað að á þessum erfiðu
tímum héldust lánskjör óbreytt.
Þetta eru oftar en ekki gamal gróin
lánasambönd.“
Steingrímur segir að eðlilega
sé farið með kröfur NIB í gömlu
bankana. Stjórnin hafi fundað
um málið með fulltrúum bankans
og sent lögfræðiálit. Gæta verði
jafnræðissjónarmiða við meðferð
krafnanna og það hafi verið gert.
„Meðferð krafnanna er í samræmi
við lög og ekki hefði verið hægt að
gera nokkuð annað.“ - kóp
Steingrímur J. Sigfússon er ósáttur við vaxtahækkun NIB:
NIB ætti að standa með okkur
ÓSÁTTUR Fjármálaráðherra er ósáttur
við fyrirhugaða vaxtahækkun Norræna
fjárfestingarbankans á íslenskum lánum.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
UMHVERFISMÁL Náttúrustofa Vest-
urlands kynnti í nóvember tillögu
sína um að umhverfisvotta Ísland.
Hugmyndin hefur náð eyrum
forkólfa vottunarfyrirtækisins
Green Globe, sem myndu sjá um
umhverfisvottun landsins ef til
kæmi, en það á höfuðstöðvar í
Ástralíu. Hafa forsvarsmenn
Green Globe sýnt því áhuga að
ræða við íslenska ráðamenn um
útfærslur hugmyndarinnar.
Greinargerð Náttúrustofunnar
var send til allra þingmanna og
auk þess valinna aðila víða um
land. Á næstu dögum verður hún
send til forsvarsmanna sveitar-
félaga um land allt. - shá
Umhverfisvottun Íslands:
Vel tekið utan
landsteinanna
GENGIÐ 04.11.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
235,0287
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
121,54 122,12
202,07 203,05
182,97 183,99
24,584 24,728
21,565 21,693
17,649 17,753
1,3755 1,3835
195,32 196,48
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Ranglega var farið með nafn Þórarins
Haraldssonar í myndatexta með grein
um jólaglögg Útons sem birtist í
blaðinu í fyrradag.
Í upptalningu um þá sem skipa
atvinnumálahóp Reykjavíkurborgar,
sem birtist í blaðinu í fyrradag,
gleymdust nöfn Sigurðar Snævars
borgarhagfræðings og Guðfinns Þórs
Newmans.
LEIÐRÉTTING
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
19°
10°
4°
5°
10°
7°
5°
6°
6°
21°
11°
17°
8°
18°
1°
12°
14°
6°
4Á MORGUN
Strekkingur á V-fjörðum.
Hvasst með S-ströndinni.
14
MÁNUDAGUR
Strekkingur á V-
fjörðum, annars hægari.
3 3
4
5
4
33
5 4
6
4
4
4
3
4
5
6
5
6
2
7
10
76
8 8
9
10
8
7
MINNKANDI
VINDUR þegar á
daginn líður og
einnig dregur úr
úrkomu. Það bætir
svo aftur í vindinn
á morgun og verð-
ur hvassast með
suðurströndinni.
Hitinn breytist lítið
fram á mánudag
og því verður
úrkoman sem fellur
að mestu leyti
rigning.
Ingibjörg
Karlsdóttir
Veður-
fréttamaður