Fréttablaðið - 05.12.2009, Qupperneq 6
6 5. desember 2009 LAUGARDAGUR
STJÓRNMÁL Umræða síðustu
daga um meint málþóf stjórnar-
andstöðunnar er á misskilningi
byggð, því Icesave-málið
snýst um „árás á sjálfstæði
þjóðarinnar“. Engin sannarlega
fullvalda þjóð léti bjóða sér slík
málslok án dóms og laga. Því á að
vísa Icesave-deilunni til Evrópu-
sambandsins.
Þetta kom fram í máli Bjarna
Benediktssonar á blaðamanna-
fundi talsmanna stjórnar-
andstöðunnar í alþingishúsinu í
gær.
Vísa á málinu frá Alþingi til
ríkisstjórnarinnar, sem tali við
ESB um að hlutast til í málinu.
Ef þetta gengur ekki eftir á að
hafna ríkisábyrgð samninganna
svo Bretar og Hollendingar þurfi
að sækja málið fyrir íslenskum
dómstólum.
Stjórnarandstaðan telur ýmis
Icesave-tengd mál óútkljáð,
meðal annars hvort Icesave-
frumvarpið samrýmist stjórnar-
skrá.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknar, tók
næst til máls og sagði að þótt
hann hefði ekki viðhaft málþóf
enn, væri Icesave þannig vaxið
að það myndi réttlæta slíkt.
„Þetta fyrirkomulag [mögu-
leiki þingmanna til að tefja mál]
er hluti af lýðræðinu og ekki
aðeins hér á Íslandi heldur víðast
hvar í vestrænum lýðræðisríkj-
um og á að gera stjórnarandstöðu
kleift að veita ríkisstjórn ákveðið
aðhald,“ sagði Sigmundur.
Birgitta Jónsdóttir, þingmaður
Hreyfingarinnar, minnti á
ummæli fjármálaráðherra Hol-
lands um að evrópska innstæðu-
kerfið hefði verið gert fyrir ein-
staka banka en ekki kerfishrun.
„Það eru alltaf að koma nýjar
upplýsingar,“ segir hún og
leggur áherslu á að vita hvort
Íslendingar geti staðið undir
skuldabagganum.
Það sem kallað er málþóf sé
til að tryggja að málið sé unnið
á forsendum þingsins en ekki
ríkisstjórnarinnar. Þetta sé ekki
skemmdarfýsn heldur til að
standa vörð um lýðræðið.
Stjórnarandstaðan var þá spurð
hvort ekki væri lýðræðis legur
réttur meirihlutans að koma
málum til atkvæðagreiðslu.
Sigmundur endurtók þá
ummæli sín um ástæður þessa
fyrirkomulags á þingi og Bjarni
sagði ríkisstjórnina, ekki stjórn-
arandstöðu, koma í veg fyrir að
önnur mál komist á dagskrá.
Spurður hversu lengi stjórnar-
andstaðan vildi ræða málið sagði
Bjarni að það yrði ekki mælt
í mínútum, tæma þyrfti málið
efnislega. Til að mynda þyrfti
að svara spurningum um stjórn-
arskrá.
Þegar fréttamaður Stöðvar 2
spurði hvort Sjálfstæðisflokkur
og Framsókn teldu sig ekki bera
ábyrgð á Icesave-málinu, hvort
ekki skorti hógværð í mál þeirra,
svaraði Sigmundur: „Ertu að
spyrja sem stjórnmálamaður?“
Flokkarnir hefðu horfst í augu
við ábyrgð sína með afgerandi
hætti.
klemens@frettabladid.is
Vilja vísa Icesave til
Evrópusambandsins
Fulltrúar stjórnarandstöðunnar krefjast þess að Icesave-frumvarpinu verði
vísað frá Alþingi. Tillaga þeirra felst í því að Evrópusambandið hafi milligöngu
í deilunni. Annars eigi að hafna öllum kröfum Breta og Hollendinga.
MÁLIN RÆDD Í HERBERGI FORSÆTISNEFNDAR Meðal þess sem kom fram í máli
stjórnarandstöðunnar var að ekki ætti að setja málið í pólitískar skotgrafir heldur
sameinast um íslenska hagsmuni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
EINN VINSÆLASTI SÖNGLEIKUR
ALLRA TÍMA. FRUMSÝNING 26. DES.
FÍASÓL
1.500 kr.
OLIVER!
3.300 kr.
LAXNESSTVENNA
3.000 kr.
7.500 kr.
eftir Lionel Bart
Einstak
t tilboð
til jóla
!
ALÞINGI „Auðvitað eru þarna ungir og
reynslulitlir menn í forystu og verða að hafa
tíma til að sanna sig, en þeir mega þá ekki
færast of mikið í fang,“ segir Steingrímur
J. Sigfússon fjármálaráðherra um leiðtoga
stjórnarandstöðunnar. Hann er ósáttur við
framgöngu þeirra og segir þá ekki standa við
samninga.
„Þegar maður sér að það sem rætt er að
kvöldi er gufað upp að morgni er ljóst að
ekki er hægt að ná samningum.“ Steingrímur
átti að sitja fund fjármálaráðherra Norður-
landanna í Kaupmannahöfn í gær, en segist
hafa orðið að vera til staðar á Alþingi vegna
umræðunnar um Icesave. Gylfi Magnússon
viðskiptaráðherra fór fyrir hans hönd. Stein-
grímur segir fullreynt í samningum við
stjórnarandstöðuna.
„Við höfum gert þrjár meiri háttar til-
raunir til að koma vitinu fyrir þau, en þær
hafa ekki borið árangur ennþá. Mikið lengra
getum við ekki teygt okkur því þá værum við
að búa til slíkar aðstæður í þinginu að ekki
verður búið við.“
Hann segir stjórnina hafa boðist til að
lengja umræðu og bæta við dögum. Stjórnin
hafi vonast til atkvæðagreiðslu um Icesave
á fimmtudag og boðið afgreiðslu á föstudegi
eða laugardegi. „Nú er ljóst að mánudagur-
inn dugar þeim ekki.“ - kóp
Fjármálaráðherra segir stjórnarandstöðuna ekki standa við samninga:
Reynum að koma vitinu fyrir þau
FJÁRMÁLARÁÐHERRA Segir stjórnina hafa reynt sitt
ýtrasta til að ná samningum við stjórnarandstöðuna
um Icesave. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
RÆÐUKÓNGAR ALLRA FLOKKA Í ICESAVE
þingmaður flokkur mínútur fjöldi
Gunnar Bragi Sveinsson B 341 159
Birgir Ármannsson D 282 119
Pétur H. Blöndal D 280 116
Höskuldur Þórhallsson B 277 90
Ásbjörn Óttarsson D 262 99
Ragnheiður E. Árnadóttir D 229 80
Sigurður Ingi Jóhannsson B 219 78
Eygló Harðardóttir B 206 86
Tryggvi Þór Herbertsson D 195 71
Unnur Brá Konráðsdóttir D 194 84
Sigmundur D. Gunnlaugsson B 189 81
Þór Saari H 184 72
Vigdís Hauksdóttir B 183 69
Illugi Gunnarsson D 177 63
Þorgerður K. Gunnarsdóttir D 168 68
Guðlaugur Þór Þórðarson D 166 58
Kristján Þór Júlíusson D 153 27
Birgitta Jónsdóttir H 138 54
Steingrímur J. Sigfússon V 137 45
Guðbjartur Hannesson S 74 30
* 1. OG 2. UMRÆÐA, SKV. ALTHINGI.IS, Í GÆR.
UMDEILD MÁL Á ALÞINGI
mál ár lengd umræðu
EES 92-93 101 klst.
Icesave – seinna frumvarp (1.-2. umr.) haust 09 90 klst*
Fjölmiðlalög 03-04 83 klst.
Sveitarstjórnarlög 97-98 74 klst.
Ríkisútvarpið 06-07 70 klst.
Stjórnskipunarlög 08-09 59 klst.
Gagnagrunnur 98-99 53 klst.
Vatnalög 05-06 52 klst.
ESB-aðildarumsókn sumar 09 48 klst
Icesave – fyrra frumvarp (sumar 09) 43 klst
SKV. UPPLÝSINGUM FRÁ SKRIFSTOFU ALÞINGIS.
*KL. 14.35 Í GÆR.
Þetta fyrirkomulag er
hluti af lýðræðinu og ekki
aðeins hér á Íslandi heldur víðast
hvar í vestrænum lýðræðisríkj-
um.
SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON
FORMAÐUR FRAMSÓKNARFLOKKSINS
Er umræða stjórnarandstöð-
unnar á Alþingi um Icesave-
samninginn orðin of löng?
Já 59,1%
Nei 40,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ætti að skattleggja fjármagns-
tekjur með sömu prósentutölu
og launatekjur?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN