Fréttablaðið - 05.12.2009, Blaðsíða 8
8 5. desember 2009 LAUGARDAGUR
1. Íslenskum pilti hefur verið
boðinn þriggja ára samningur
hjá knattspyrnufélaginu Liver-
pool. Hvað heitir hann?
2. Hver er forstöðumaður Fjöl-
smiðjunnar?
3. Hvað heitir nýr afþreyingar-
og menningarfréttavefur sem
Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
stýrir?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 110
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært karlmann fyrir að hóta
lögreglukonu og stofna lífi henn-
ar í augljósan háska.
Atvikið átti sér stað á bifreiða-
stæði við Ugluhóla 12 í Reykja-
vík. Maðurinn sinnti ekki fyrir-
mælum um að ræða við lögreglu.
Hann settist upp í bíl og ók hratt
og ógætilega af stað í átt að lög-
reglukonunni sem komst naum-
lega undan. Þá hótaði maðurinn
henni ofbeldi í verki. Eftir atlög-
una að lögreglukonunni ók maður-
inn bifreiðinni af vettvangi og
yfir umferðareyju, sem skilur að
bifreiðastæðið og akbraut Suður-
hóla. - jss
Ökufantur ákærður:
Hótaði lög-
reglukonu
STJÓRNSÝSLA Þrjú ráðuneyti hafa á
síðastliðnum fimm árum áminnt
embættis- eða starfsmenn undir-
stofnana og eitt ráðuneyti hefur
þurft að skipa tilsjónarmann með
rekstri undirstofnana sinna á sama
tímabili.
Þetta kemur fram í svari fjár-
málaráðherra við fyrirspurn Þor-
gerðar K. Gunnarsdóttur, varafor-
manns Sjálfstæðisflokksins, um
veittar áminningar starfsmanna
á vegum ráðuneytanna og skipun
tilsjónarmanna með undirstofnun-
um þeirra.
Á tímabilinu hafa undirstofnan-
ir fjármálaráðuneytisins í fjórgang
veitt starfsmönnum áminningu.
Ríkisskattstjóri átti þar tvisvar í
hlut og tollstjóri jafn oft. Mennta-
málaráðherra hefur veitt þremur
embættismönnum áminningu, árið
2004 og tvær árið 2008.
Í tveimur tilfellum var skipaður
tilsjónarmaður með rekstri stofn-
ana menntamálaráðuneytisins, ann-
ars vegar yfir rekstur Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti árið 2008 og
Háskólans á Hólum á þessu ári.
Einn forstöðumaður landbún-
aðarráðuneytisins var áminntur á
tímabilinu og eins þrír starfsmenn
Hafrannsóknastofnunar auk starfs-
manns Rannsóknarstofnunar fisk-
iðnaðarins, undanfara Matís.
Ekki barst svar frá dómsmála-
og mannréttindaráðuneytinu þrátt
fyrir ítrekaðar beiðnir um upplýs-
ingarnar. - shá
Þrjú ráðuneyti hafa áminnt starfsmenn sína á síðastliðnum fimm árum:
Starfsmenn sjaldan áminntir
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ Á SÖLV-
HÓLSGÖTU Ráðuneytið hefur bæði
þurft að áminna starfsmenn og skipa
tilsjónarmenn yfir undirstofnanir sínar á
tímabilinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Óska eftir að kaupa
íslensk-ensku námskeið
Óska eftir að kaupa íslensk-ensku Lingapon námskeið. En ég tel nær fullvíst að
aðeins eitt íslenskt – ensku Lingapon námskeið hafi komið út á Íslandi. Kennslubókin
var innbundin kilja en bæði hærri og breiðari en venjuleg kilja.
Eigir þú námskeiðið þá borga ég glaður 40.000 kr fyrir námskeiðið.
Viljir þú ekki selja getum við samið um greiðslu fyrir afnot af bókinni.
Sími. 865-7013
MP Sjóðir hf. hefur útvistað hluta af verkefnum sínum til MP Banka hf. á grundvelli 18. gr. laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. MP Sjóðir hf. er fjármálafyrirtæki með starfsleyfi
sem rekstrarfélag verðbréfa- og fjárfestingarsjóða skv. 7. tölul. og b-lið 6. tölul. 1. mgr. 3.gr. og 1.-3. tölul. 1.mgr. 27. gr. laga nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Starfsleyfið tekur til reksturs verðbréfa-
og fjárfestingarsjóða og annarra sjóða um sameiginlega fjárfestingu skv. 7. tölul. 1.mgr. 3.gr. laga nr. 161/2002 og til eignastýringar, fjárfestingarráðgjafar og vörslu og stjórnunar fjármálagerninga
í sameiginlegri fjárfestingu skv. 1.-3. tölul. 27. gr. laga nr. 161/2002. Nánari upplýsingar um verðbréfasjóði og fagfjárfestasjóði MP Sjóða hf. má finna á www.mp.is/mp-sjodir. Vinsamlega hafið í huga
að ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð.
Kynntu þér Ríkisskuldabréfasjóð MP
á www.mp.is, í síma 540 3200 eða hjá
viðskiptastjórum í Skipholti 50d eða
Borgartúni 26.
Eignasamsetning
Ríkisskuldabréfasjóðs MP
30.11.2009
ÖRUGGARI
STAÐUR FYRIR
PENINGANA ÞÍNA
Hversu stór hluti af þínum sparnaði er í ríkistryggðum bréfum?
Við bjóðum þér einfalda leið til að tryggja fjármunina þína með
kaupum í Ríkisskuldabréfasjóði MP.
10,2% ávöxtun sl. 12 mánuði
85%
verðtryggð
ríkisskuldabréf
Íbúðabréf 72%
Húsbréf 13%
Ríkisbréf 8%
Innlán 7%
Auglýsingasími
– Mest lesið
ÍTALÍA, AP Forsætisráðherra Ítalíu,
Silvio Berlusconi, er sagður hafa
gert samning við mafíuna á tíunda
áratug síðustu aldar. Þetta kom
fram í framburði dæmds mafíósa,
Gaspare Spatuzza, í réttarhöldum
sem fram fóru á Ítalíu í gær.
Berlusconi hefur borið af sér
ásakanirnar.
Spatuzza er vitni saksóknara í
áfrýjunarréttarhöldum sem fram
fara í máli Marcello Dell‘Utri,
náins pólitísks samstarfsmanns
Berlusconis. Sá var árið 2004
dæmdur til níu ára fangelsisvist-
ar fyrir tengsl sín við mafíuna.
Berlusconi hefur ekki verið kall-
aður til að bera vitni við réttar-
höldin.
Spatuzza, sem situr af sér
lífstíðar dóm fyrir aðild að nokkr-
um morðum, sagði fyrir rétti í gær
að árið 1993 hefði yfirmaður hans,
Giuseppe Graviano, sagt honum
að mafían hefði gert samkomulag
við Berlusconi sem hafa myndi í
för með sér óskilgreindan „ávinn-
ing“ fyrir mafíuna. Fjölmiðlakóng-
urinn Berlusconi hóf feril sinn í
stjórnmálum nokkrum mánuðum
síðar og komst til valda í fyrsta
sinn sem forsætisráðherra í kosn-
ingunum árið 1994.
Ávæningur af ásökunum Spat-
uzzas hefur verið í umræðunni í
nokkra daga.
Bæði Berlusconi og Dell‘Utri
hafa sagt þær vera tilhæfulaus-
ar og fáranlegar og neitað öllum
tengslum við skipulagða glæpa-
starfsemi. oka@frettabladid.is
GASPARE SPATUZZA Sá sem nú ber vitni
um tengsl forsætisráðherra Ítalíu við
mafíuna þar í landi sést hér skömmu
eftir handtöku hans árið 1997.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Vitnar um
samning við
mafíuna
Dæmdur ítalskur mafíósi hefur borið fyrir rétti að
Silvio Berlusconi forsætisráðherra Ítala hafi gert
pólitískan samning við mafíuna á tíunda áratugnum.
VIÐ RÉTTARHÖLDIN Mikil öryggisgæsla var við réttarhöldin í Ítalíu í gær. Gaspare
Spatuzza bar vitni hulinn hvítu tjaldi. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEISTU SVARIÐ?