Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 10

Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 10
10 5. desember 2009 LAUGARDAGUR BRUSSEL, AP Áætlað er að 25 lönd hið minnsta sendi nálægt 7.000 hermenn til viðbótar til Afganistans á næsta ári. Anders Fogh Rasmussen, fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbanda- lagsins (NATO), upplýsti um þetta í gær. Á sama tíma fundaði Hillary Rodham Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, með utanríkisráð- herrum annarra NATO-ríkja og sagði þeim að sameinað átak væri nauðsynlegt til að snúa við taflinu í stríðsrekstrinum í Afganistan. Anders Fogh segist jafnframt eiga von á að fleiri lönd bætist í hópinn. Hann segir þau 44 lönd sem þegar taki þátt í innrásinni í Afganistan vera „algjörlega sameinuð“ í við- leitni sinni í að ná viðunandi árangri í stríðinu í Afganistan sem nú hefur staðið í átta ár. „Öflugustu skilaboð dagsins snúa að samstöðu,“ sagði hann. „Löndin standa við orð sín með aðgerðum.“ Þá sagði James Stavridis, aðmíráll í sjóher Bandaríkjanna, æðsti yfir- maður NATO og herafla Bandaríkj- anna í Evrópu, í viðtali við frétta- stofu AP að kalla mætti til nokkur þúsund hermenn, aðra en frá Banda- ríkjunum, á næsta ári, til viðbótar við þá 7.000 sem Anders Fogh vísar til. „Við leggjum á það áherslu við þau lönd sem mögulega leggja til mannafla að við horfum helst til fólks sem kemur að þjálfun,“ sagði Stavridis. „Og mér heyrist að undir- tektir séu góðar hvað það varðar.“ Hillary Clinton sagði á fundi utanríkisráðherranna að nauðsyn- legt væri að öll viðbót við stríðs- reksturinn ætti sér stað eins fljótt og auðið væri. Hún þakkaði Ítölum og Bretum fyrir skjót viðbrögð og yfirlýsingar um viðbótarherlið, en sagði um leið að aðstoð önnur en með fjölgun hermanna væri jafn mikilvæg. „Knýjandi þörf er á að fjölga hermönnum, en þeir verða ekki endalaust á staðnum,“ sagði hún í ræðu sinni við Norður-Atlants- hafsráðið og vísaði til orða Banda- ríkjaforseta um að hefja ætti brott- flutning bandarískra hermanna frá Afganistan í júlí 2011. „Hraði og umfang brottflutningsins fer eftir aðstæðum í landinu.“ Anders Fogh Rasmussen lýsti svipuðum viðhorfum á blaðamanna- fundi í gær. Hann segir að þótt Afganar fái aukin yfirráð í landi sínu þýði það ekki endilega fullan brottflutning herafla NATO. And- ers Fogh gat ekki um skiptingu milli landa vegna þeirra hermanna sem senda á til viðbótar til Afganistans, en nafnlausir heimildarmenn AP innan NATO segja að staðfest lof- orð nái til um 5.500 hermanna og búist sé við um 1.500 til viðbótar frá öðrum löndum. peturg@frettabladid.is Aðrar þjóðir senda herlið Áætlað er að 25 þjóðir sendi 7.000 hermenn til Af- ganistans til viðbótar við þá 30.000 sem Bandaríkja- menn senda. Þörf er sögð á sameinuðu átaki. Á RÁÐHERRAFUNDI Hillary Rodham Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, tekur í hendina á Sjeik Abdúlla bin Zayed Al Nahyan, utanríkisráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna. David Miliband, utanríkisráðherra Breta, horfir á. FRÉTTABLAÐIÐ/AP VIÐBÓTARHERAFLI NATO Fjölmargar þjóðir jafnt innan Atlantshafsbandalagsins (NATO) sem utan hafa lofað að styðja með auknum mannafla sérstakt átak í hernámi þjóðarinnar. Stuðningurinn bætist við þrjátíu þúsund manna herliðið sem Barack Obama hefur sagt að bætist við setulið Bandaríkjahers í Afganistan. Búist er við staðfestum loforðum á ráðstefnu á mánudag og einnig á alþjóðlegri ráðstefnu um málefni Afganistans í janúar. Samkvæmt upplýs- ingum frá NATO í gær munu í það minnsta 25 þjóðir bæta við heraflann í landinu. NATO-þjóðir Albanía 125 Króatía (til þjálfunar lögreglu) 40 Tékkland 100 Ítalía 1.140 Litháen 20 Pólland (+400 í varalið í Póllandi) 680 Portúgal (+1 í lögregluliði) 120 Rúmenía 100 Slóvakía 240 Tyrkland (til þjálfunar hers Afgana) 60 Bretland 1.200 Þjóðir utan NATO Armenía 40 Ástralía 120 Finnland 25 Makedónía 80 Georgía 923 Svíþjóð 125 Úkraína 22 Möguleg viðbót Kólumbía 84 Kasakstan 5 Mongólía 40 Svartfjallaland 40 S-Kórea 400 ALLS 5.529 HEIMILD: NATO Alhliða uppskrift Pulsa (hituð í vatni, EKKI SOÐIN!!!) Pu lsu- brauð og bara hvað sem þig langar að hafa m eð. (Nema grænar baun ir. Grænar baunir í pu lsu- brauði geta valdið öndunarerfiðleikum .) H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA www.lapulsa.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.